Fréttir

true

Saga Akraness seld á menningarstofnunum bæjarins

Bæjarráð Akraness samþykkti nýverið tillögu bæjarstjóra um heimild til að selja ritið Sögu Akraness á menningarstofnunum bæjarins. Akraneskaupstaður eignaðist 250 sett af ritinu þegar fyrirtækið Uppheimar varð gjaldþrota. Fyrir lagerinn greiddi Akraneskaupstaður 500 þúsund krónur en ásamt Sögu Akraness fékk bæjarfélagið einnig töluvert magn af Árbók Akraness. Regína Ásvaldsdóttir bæjarstjóri vonast til að bæjarbúar vilji…Lesa meira

true

Gjaldskrárbreytingar framundan hjá Veitum

Um áramótin munu Veitur, dótturfyrirtæki Orkuveitu Reykjavíkur, lækka gjöld fyrir raforkudreifingu og kalt vatn, en hækka verð á heitu vatni og fráveitu. Í tilkynningu frá fyrirtækinu kemur fram að jafnaði muni vatns,- rafmagns- og fráveitukosnaður lækka fyrir íbúðarhúsnæði í Reykjavík um 4.100 krónur á ári. Þar kemur hins vegar ekki fram hvernig samanlögð breyting allra…Lesa meira

true

Jólaljósin tendruð á Akratorgi

Margt var um manninn á Akratorgi á Akranesi síðdegis í gær þegar ljósin voru tendruð á jólatrénu við hátíðlega athöfn. Skólakór Grundaskóla hóf athöfnina með flutningi á nokkrum jólasöngvum undir stjórn Valgerðar Jónsdóttur. Sigríður Indriðadóttir, forseti bæjarstjórnar, sagði frá uppruna trésins og aðstoðaði systkinin Wiktoriu Fiszer 8 ára og Przemyslaw Fiszer 12 ára við að…Lesa meira

true

Hvimleiðar vegablæðingar á Holtavörðuheiði

Vegagerðin vekur athygli á því að blæðing er á slitlagi á vegarköflum um Holtavörðuheiði, allt frá Norðurárdal í Borgarfirði og í Hrútafjörð. Þetta getur valdið því að tjara safnast í hjólskálar bíla, en einnig á boddýhluti, raflagnir, fjöðrunarbúnað og hjólbarða. Flutningabílstjórar sem lenda í tjörumengun af þessu tagi hafa í fjölmiðlum bent á að best…Lesa meira

true

Sagnasprek úr Borgarfirði – Sögur og sagnir

Út er komin ný rafbók eftir Braga Þórðarson rithöfund og útgefanda á Akranesi og nefnist hún Sagnasprek úr Borgarfirði – Sögur og sagnir. Þetta er 21. bók höfundar um fólk og mannlíf á Akranesi og í Borgarfirði. Bókaútgáfan emma.is er útgefandi bókarinnar. Bókin er eingöngu fáanleg sem rafbók og seld á á netinu á Amazon.com,…Lesa meira

true

Grindvíkingar stungu Snæfell af í síðari hálfleik

Botnlið Snæfells mætti Grindavík í Domino‘s deild karla í körfuknattleik í gær. Leikið var suður með sjó. Eftir nokkuð jafnan fyrri hálfleik tóku heimamenn öll völd á vellinum í þeim síðari og unnu að lokum 36 stiga sigur, 108-72. Snæfellingar voru sterkari í upphafsfjórðungnum. Þeir náðu tólf stiga forskoti um hann miðjan áður en heimamenn…Lesa meira

true

Stjörnuhrap í Borgarnesi

Skallagrímur tók á móti toppliði Stjörnunnar í Domino‘s deild karla í körfuknattleik í gærkvöldi. Heimamenn léku afar vel allan leikinn bæði í vörn og sókn, börðumst um hvern bolta og unnu að lokum frækinn sigur á firnasterku liði Stjörnunnar, 78-73. Skallagrímur hafði yfirhöndina framan af fyrsta leikhluta en forysta þeirra var þó aldrei meiri en…Lesa meira

true

Styttist í að ný fráveitumannvirki verði tekin í notkun

Veitur, dótturfyrirtæki Orkuveitu Reykjavíkur, hafa á þessu árið unnið við fráveitu í Borgarnesi og á Akranesi. Að sögn Írisar Þórarinsdóttur tæknistjóra fráveitu Veitna er verkefnið örlítið á eftir áætlun en ráðgert að ný fráveita verði tekin í notkun innan tíðar. Í sumar og haust var unnið að lagningu sjólagna í Borgarnesi. Að sögn Írisar var…Lesa meira

true

Framkvæmdahugur og nýliðun í gangi í Lundarreykjadal

Undanfarin misseri hefur íbúafjölgun verið í Lundarreykjadal í Borgarfirði en þar er ný kynslóð Lunddælinga byrjuð að koma sér fyrir svo eftir hefur verið tekið. Á nokkrum bæjum er verið að byggja ný íbúðarhús á meðan annars staðar er ýmist nýbúið að byggja eða stækka útihús og jafnvel byrjað að ráðgera frekari framkvæmdir. Að sögn…Lesa meira

true

Skammdegið er skollið á – láttu sjá þig!

Slysavarnadeildin Líf á Akranesi leggur áherslu á sýnileika. Við höfum í allmörg ár gefið endurskinsmerki til barna í leik- og grunnskólum á Akranesi og í Hvalfjarðarsveit. Þar að auki gáfum við þúsund endurskinsmerki árið 2015 en þá mönnuðum við vaktir við verslanir á Akranesi og brýndum fyrir fólki að nota þau. En betur má ef…Lesa meira