
Rjúpnaveiðimaðurinn sem leitað hefur verið að á Austurlandi síðan á föstudaginn fannst í morgun heill á húfi. Björgunarsveitamenn á vélsleðum fundu manninn þar sem hann var á gangi með hundi sínum á austanverðum Ketilsstaðahálsi upp úr klukkan tíu í morgun. Maðurinn var vel á sig kominn þegar hann fannst, en kaldur. Björgunarsveitamenn hlúðu að manninum…Lesa meira








