Fréttir

true

Viðburðaríkt ár framundan hjá vestlenskum hestamönnum

Mikill hugur er í vestlenskum hestamönnum fyrir komandi ár sem verður afar viðburðaríkt ef marka má þá dagskrá sem þegar liggur fyrir. Á næsta ári er fjórðungsmótsár og stefnt á að halda mótið í Borgarnesi um mánaðamótin júní og júlí. Þá er nú þegar búið að ákveða dagsetningar fyrir fyrstu mótin, en þau byrja í…Lesa meira

true

Rjúpnaskyttan fannst heil á húfi

Rjúpnaveiðimaðurinn sem leitað hefur verið að á Austurlandi síðan á föstudaginn fannst í morgun heill á húfi. Björgunarsveitamenn á vélsleðum fundu manninn þar sem hann var á gangi með hundi sínum á austanverðum Ketilsstaðahálsi upp úr klukkan tíu í morgun. Maðurinn var vel á sig kominn þegar hann fannst, en kaldur.  Björgunarsveitamenn hlúðu að manninum…Lesa meira

true

Fórnarlamba umferðarslysa minnst á morgun

Alþjóðlegur minningardagur um fórnarlömb umferðarslysa verður haldinn hátíðlegur á morgun, sunnudaginn, 20. nóvember, við þyrlupall bráðamóttöku Landspítalans í Fossvogi í Reykjavík. Dagurinn er ekki aðeins tileinkaður minningu látinna í umferðinni heldur hefur skapast sú venja hér á landi að heiðra þær starfsstéttir sem sinna björgun og aðhlynningu þegar umferðarslys verða. „Það er ekki síst mikilvægt…Lesa meira

true

Samkeppni um nafn á nýborinn háhyrningskálf

Þann 4. mars síðastliðinn urðu starfsmenn “Orca Guardians Iceland” varir við nýborinn háhyrningskálf í þekktum hópi háhyrninga sem heldur sig við Snæfellsnes á veturna. Efnt hefur verið til samkeppni um nafn á nýja einstaklinginn og er hægt að taka þátt á fésbókarsíðu félagsins. Lengi hefur verið fylgst með þessum tiltekna hóp en hann ferðast á…Lesa meira

true

Steypt þrátt fyrir fyrsta snjóinn

Snjó hefur kyngt niður í Borgarfirði undanfarna daga líkt og víðar um landið. Þrátt fyrir það halda verktakar áfram með framkvæmdir við stækkun Fosshótels Reykholti. Eins og fram hefur komið í fréttum Skessuhorns er búið að jarðvegsskipta fyrir stækkun hótelsins og þá verður einnig eldra hótelrými endurnýjað mikið. Hótelið er lokað af þessum sökum fram…Lesa meira

true

Jólamarkaður í Breiðabliki á sunnudaginn

Hinn árlegi jólamarkaður Sveitamarkaðarins á Breiðabliki í Eyja- og Miklaholtshreppi verður haldinn sunnudaginn 20. nóvember nk. Hefst hann klukkan 12 og stendur til kl. 18. Framleiðendur eru frá býlum á sunnanverðu Snæfellsnesi, allt frá Hítará að Hellnum, eða hafa tengingu inn á svæðið. Á boðstólnum verður ýmiskonar matar- og handverk. Matur eins og reykt læri,…Lesa meira

true

Minningarsjóður Lovísu Hrundar gaf FVA áfengismæli

Miðvikudaginn 16. nóvember síðastliðinn var nemendum og starfsfólki Fjölbrautaskóla Vesturlands boðið til viðburðar á sal skólans í tengslum við forvarnarfræðslu og heilsueflingu FVA. Fór þar fram formleg afhending á nýjum áfengismæli sem Minningarsjóður Lovísu Hrundar færði skólanum af gjöf. Sigurður Már Gunnarsson afhenti mælinn fyrir hönd sjóðsins. Áfengismælirinn kemur til með að nýtast nemendafélagi skólans,…Lesa meira

true

Mikið um að vera hjá Skíðaráði Snæfellsness

Skíðaráð Snæfellsness stendur í ströngu þessa dagana og er mikið um að vera hjá félaginu. Á dögunum fjárfesti félagið til að mynda í Pisten Bully 200D snjótroðara. Mikið hefur verið um sjálfboðaliða sem hafa verið að vinna við skíðalyftu og skíðaskála félagsins. Búið er að endurnýja nánast alla skíðalyftuna en skipt var um vír, diska…Lesa meira

true

Grátlegt eins stigs tap Skagamanna

Skagamenn tóku á móti Fjölni í 1. deild karla í körfuknattleik í gær. Var þetta önnur viðureign liðanna á stuttum tíma, en Fjölnismenn slógu ÍA með nokkuð sannfærandi hætti út úr bikarkeppninni á dögunum. Annað var uppi á teningnum í gær og heldur meiri spenna í leiknum og sérstaklega í síðari hálfleik. Fór að lokum…Lesa meira

true

Vara við tínslu á kræklingi við núverandi aðstæður

Að gefnu tilefni vill Matvælastofnun koma á framfæri athugasemdum við grein sem birtist í Fréttatímanum í dag, í frétt sem ber heitið: „Gott um helgina: Tína krækling.“ Matvælastofnun varar við tínslu kræklings í Hvalfirði þar sem fyrirliggjandi niðurstöður á sjósýnum úr firðinum benda til að DSP eitur eða niðurgangseitur geti verið yfir viðmiðunarmörkum. „Mælingar á…Lesa meira