Fréttir

true

Treg veiði en síldin er stór og falleg

Síldveiðin hefur verið fremur treg að undanförnu. Skip HB Granda; Víkingur AK og Venus NS, hafa verið við leit og veiðar síðustu daga. Um helgina komu skipin með 800 og 940 tonna afla til vinnslu á Vopnafirði. Gunnlaugur Jónsson skipstjóri á Venusi sagði á vef fyrirtækisins um helgina að veiðarnar hefðu verið fremur daprar. Þeir…Lesa meira

true

Rjúpnaskytturnar fundnar

Rjúpnaskytturnar sem leitað hefur verið síðan í gærkvöldi fundust heilar á húfi rétt fyrir klukkan 14 í dag. Mennirnir höfðu leitað sér skjóls undan veðrinu ofarlega í hlíðum Gráborgar, ofan Hestdala sem ganga inn af Kolgrafafirði. Mennirnir eru þokkalega á sig komnir, miðað við aðstæður, en bæði blautir og kaldir. Þeir gerðu björgunarsveitafólki vart við…Lesa meira

true

Varðskipið Týr mætt til að bæta fjarskiptin á leitarsvæðinu

Varðskipið Týr er nú komið á Faxaflóa og er á siglingu suður af Staðarsveit þar sem tveggja rjúpnaskytta er nú leitað í fjalllendi ofan við bæinn Slitvindastaði í Staðarsveit. Varðskipið var sent á svæðið til að bæta fjarskipti, en mjög stopult fjarskiptasamband er á svæðinu sem torveldar leit. Mennirnir héldu í gærmorgun til rjúpnaveiða frá Slitvindastöðum.…Lesa meira

true

Búist við hvössum vindstrengjum í dag

Veðurstofan býst við hvössum vindstrengjum á norðanverðu Snæfellsnesi og á Vestfjörðum í dag og nótt. Einnig er gert ráð fyrir snörpum vindviðum á Kjalarnesi og á veginum við Hafnarfjall. Í tilkynningu frá Vegagerðinni segir að vegir eru auðir á Suður- og Vesturlandi en það er mjög hvasst og hviðótt á norðanverðu Snæfellsnesi og sums staðar…Lesa meira

true

Víðtæk leit að tveimur rjúpnaskyttum

Leit að tveimur rjúpnaskyttum í Staðarsveit á Snæfellsnesi hefur verið efld til muna, en mannanna hefur verið saknað frá því í gærkvöldi. Þeim tókst að láta vita af sér klukkan 23 í gær, en gátu ekki gefið upp staðsetningu. Þeir voru þá kaldir og hraktir. Mennirnir héldu til veiða frá Slitvindastöðum í Staðarsveit í gærmorgun.…Lesa meira

true

Komu göngumanni til aðstoðar

Björgunarsveitir frá Akranesi og höfuðborgarsvæðinu voru kallaðar út síðdegis í dag til aðstoðar göngumanni á Leggjabrjótsleið, en hún liggur frá Hvalfirði í Þingvallasveit. Maðurinn var orðinn blautur og kaldur eftir að hafa tapað áttum þar sem hann var á göngu í þoku. Björgunarsveitir héldu til leitar bæði upp úr Hvalfirði og Öxarárdal við Þingvelli. Þokunni…Lesa meira

true

Átta Vestlendingar í U16 og U19 landliðunum

Fimm Vestlendingar hafa verið valdir til úrtaksæfinga með yngri landsliðum Íslands sem haldnar verða dagana 11. – 13. nóvember næstkomandi. Um er að ræða úrtaksæfingar fyrir U19 ára landslið karla annars vegar og U16 ára landslið karla hins vegar. Til æfinga með U19 ára hópnum hafa verið valdir Borgfirðingurinn Helgi Guðjónsson, leikmaður Fram og Skagamennirnir…Lesa meira

true

Skagamenn fundu ekki taktinn í tapleik gegn Val

Skagamenn fengu Val í heimsókn í 1. deild karla í körfuknattleik í gær. Valur hafði fyrir leikinn þrjá sigra en ÍA einn eftir fyrstu fimm leiki vetrarins. Skagamenn voru án tveggja lykilmanna, Fannars Freys Helgasonar og Áskels Jónssonar, sem er rifbeinsbrotinn. Hafði það sitt að segja í leiknum í gær. Gestirnir voru mun einbeittari og…Lesa meira

true

Vinnur að ritun bókarinnar Frá reipum til rúllubagga

Bjarni Guðmundsson á Hvanneyri sagði nýlega frá því í færslu á heimasíðu Landbúnaðarsafnsins að hann hefur um hríð verið að draga saman föng til þjóðfræði heyskapar á tuttugustu öld. Er hann m.a. inspíreraður af eftirbreytniverðum verkum Þórðar í Skógum sem unnið hefur að öllum hinum öldunum. Nú kveðst Bjarni verða komin með það sem hann…Lesa meira

true

Skallagrímsmenn skotnir í kaf á lokamínútunum

Skallagrímsmenn mættu Njarðvíkingum í Domino‘s deild karla í körfuknattleik í gær. Leikið var suður með sjó. Njarðvíkingar höfðu yfirhöndina heilt yfir og þrátt fyrir að Skallagrímur hafi oft gert atlögu að forskoti heimamanna máttu Borgnesingar á endanum sætta sig við tap, 94-80, eftir lokamínútur þar sem þriggja stiga skyttur Njarðvíkinga fóru mikinn. Njarðvíkingar gáfu tóninn…Lesa meira