Fréttir

true

Endurvekja húfuverkefnið í Snæfellsbæ

Kvenfélagasamband Íslands í samvinnu við Ljósmæðrafélag Íslands og kvenfélögin í landinu stóð fyrir Húfuverkefni árið 2010 í tilefni af 80 ára afmæli Kvenfélagasambandsins. Húfuverkefnið snérist um að prjóna húfur og færa öllum börnum sem fæddust á landinu það árið. Það árið fæddust 4907 börn og fengu þau öll húfu. Kvenfélag Ólafsvíkur ákvað fyrr á þessu…Lesa meira

true

Leiguheimili gætu risið á Akranesi innan tíðar

Sótt var um stofnframlög úr ríkissjóði til að byggja eða kaupa 104 Leiguheimili á landsbyggðinni, þar af sex á Akranesi, en 467 á höfuðborgarsvæðinu. Samtals sóttu 14 aðilar um framlög til byggingar eða kaupa á 571 íbúð á 28 stöðum í 17 sveitarfélögum.  Á Akranesi var það Brynja, hússjóður Öryrkjabandalagsins, sem óskaði eftir því að…Lesa meira

true

Öll starfsemi undir merkjum Samskipa

Öll starfsemi Samskipa á Íslandi var nýverið sameinuð undir einu merki og nafni – Samskipa. Þar á meðal er öll starfsemi sem áður var undir nafni og merki Landflutninga. „Af þessari ástæðu þarf nú að endurmerkja um eitt hundrað bíla og tæki hjá Samskipum. Auk þess þarf að breyta merkingum á húsnæði, pappírum og kynningarefni,…Lesa meira

true

Er sjálfstæð manneskja og þakklát fyrir ákveðið uppeldi sem hún hlaut

Guðríður Sigurðardóttir er fædd að Stóru-Giljá 19. júní árið 1935. Bærinn er í þjóðbraut rétt við austanvert mynni Vatnsdals í Húnavatnssýslu. Þaðan var fyrsti kristniboðinn á Íslandi, Þorvaldur Koðránsson hinn víðförli, sem ferðaðist um landið nokkru fyrir árið 1000 með saxneskum biskupi, sem Friðrik hét, og boðaði kristna trú. Þeir höfðu ekki erindi sem erfiði.…Lesa meira

true

Nýjar reglur auðvelda matvælavinnslu í smáum stíl

Ný reglugerð um lítil matvælafyrirtæki og hefðbundin matvæli tók gildi 17. október síðastliðinn. Markmið reglugerðarinnar er að auka sveigjanleika í lítilli og hefðbundinni matvælaframleiðslu til að auðvelda framleiðendunum að uppfylla kröfur matvælalöggjafarinnar. Reglugerðin felur í sér talsverðar nýjungar fyrir lítil matvælafyrirtæki þar sem vinnsla matvæla er hliðarbúgrein með annarri starfsemi. Hún veitir afslátt af ákveðnum…Lesa meira

true

Bræður eignuðust barn sama daginn

Tilviljun réði því að bræðurnir Sigurður og Kristján Guðmundssynir frá Hvanneyri eignuðust báðir barn á sjúkrahúsinu á Akranesi síðastliðinn mánudag. Á sunnudagskvöldið snæddu þeir kvöldverð hjá foreldrum sínum, ásamt barnsmæðrum sínum, og þegar þeir kvöddust þá um kvöldið áttu þeir ekki von á því að lenda saman á fæðingadeildinni. Þó var vitað að annað barnið…Lesa meira

true

Bændur verða að hafa einhvern ávinning af lífrænni framleiðslu

  „Ég held að við séum innan við tíu sem höfum lífræna vottun,“ segir Sigurður Jakobsson bóndi á Varmalæk í Bæjarsveit í Borgarfirði í samtali við Skessuhorn. Sauðfjárbúið á Varmalæk er eitt fárra slíkra á landinu sem hefur lífræna vottun og hefur haft undanfarin þrjú ár. „Hér var byrjað á þessu fyrir nokkrum árum þegar…Lesa meira

true

Haustfagnaður Félags sauðfjárbænda í Dölum

Haustfagnaður Félags sauðfjárbænda í Dalasýslu (FSD) var haldinn um liðna helgi. Dagskrá hátíðarinnar var með nokkuð hefðbundnu sniði, en hún hefur markað sér sess sem fjölsótt og menningarleg héraðshátíð. Á hádegi á föstudaginn hófst lambhrúta- og gimbrasýning norðan girðingar á Svarfhóli í Laxárdal. Sviðaveisla með hagyrðingum og dansleik var í íþróttahúsinu á Laugum í Sælingsdal…Lesa meira

true

Nágrönnum boðið í heimsókn

Nýverið bauð sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar í heimsókn kjörnum fulltrúum og framkvæmdastjórum í nágrannasveitarfélögunum; Akraneskaupstað, Borgarbyggð og Skorradalshreppi. Móttaka fyrir hópinn var í Heiðarskóla og þaðan var haldið í Bugavirkjun þar sem Leirárgarðabændur kynntu virkjunina og þá starfsemi sem þar fer fram. Því næst var haldið að Hlöðum þar sem gestir fengu leiðsögn um safnið og kynningu…Lesa meira

true

Sjálfstæðisflokkur og Píratar stærstir

Samkvæmt könnun MMR sem fram fór dagana 19. til 26. október mælist Sjálfstæðisflokkurinn stærstur flokka með 21,9% fylgi. Píratar koma næstir með 19,1% fylgi og Vinstri-grænir eru þriðji stærsti flokkurinn með 16,0% fylgi. Framsóknarflokkurinn mældist nú með 10,0%, Vireisn með 9,3% og Björt framtíð 8,8%. Fylgi Samfylkingarinnar mældist 7,6% og fylgi Flokks fólksins mældist 3,4%.…Lesa meira