Fréttir

true

Skagamenn skelltu nýkrýndum deildarmeisturum

Álftanes og ÍA áttust við í 1. deild karla í körfuknattleik í gærkvöldi og var viðureignin á Álftanesi. Eftir leik fengu heimamenn deildarmeistarabikarinn afhentan en á mánudaginn tryggðu þeir sér sæti í Subway deildinni með sigri á Skallagrími. Svo virtist sem Álftnesingar væru ekki alveg búnir að jafna sig eftir fagnaðarlætin í byrjun vikunnar því…Lesa meira

true

Haraldur í starf bæjarstjóra á Akranesi og hættir á Alþingi

Bæjarstjórn Akraneskaupstaðar náði í gærkvöldi samkomulagi við Harald Benediktsson, bónda á Vestri-Reyni og alþingismann Sjálfstæðisflokksins í Norðvesturkjördæmi, um að taka við starfi bæjarstjóra á Akranesi. Meirihluti bæjarstjórnar er skipaður Samfylkingu og Sjálfstæðisflokki en einróma niðurstaða var í bæjarstjórn um ráðninguna, einnig í röðum Framsóknar og óháðra sem skipa minnihluta. Samhliða því að taka við nýju…Lesa meira

true

Fjölmenni mætti í Geirabakarí

Sigurgeir Erlendsson bakari og Annabella Albertsdóttir eiginkona hans hafa nú kvatt Geirabakarí sem eigendur. Af þessu tilefni buðu þau gestum og gangandi í kaffi síðdegis í gær til að þakka fyrir sig, um leið og samglaðst var með nýjum eigendum, þeim Sigurþóri Kristjánssyni (Sissa) og Þórdísi Arnardóttur. Geirabakarí er gamalgróið fyrirtæki í Borgarnesi, jafnframt því…Lesa meira

true

Fermingarbörn munu dansa í sólarhring og styrkja gott málefni

Hópur fermingarbarna í Borgarfirði mun dansa í heilan sólarhring en um er að ræða 24 klukkustunda dansmaraþon í Reykholtskirkju sem hefst um miðjan dag í dag, föstudaginn 17. mars. Með dansinum ætla krakkarnir að safna áheitum fyrir Hjálparstarf kirkjunnar og bæta aðgengi að drykkjarhæfu vatni með ágóðanum. Verkefnið er endurtekið frá í fyrra þegar fermingarbörn…Lesa meira

true

Breytingar í Safnahúsi Borgarfjarðar

Í lok febrúar hófust breytingar í Safnahúsi Borgarfjarðar við Bjarnarbraut í Borgarnesi sem miða að því að opna og auka flæði á annarri hæð hússins. Búið er að taka niður vegg sem afmarkaði bókasafnið, komið er nýtt og nútímalegra afgreiðsluborð þaðan sem þjónað verður afgreiðslu og upplýsingagjöf til gesta sem sækja Safnahúsið heim. Fram kemur…Lesa meira

true

Auglýst eftir tilnefningum um Eyrarrósina

Listahátíð í Reykjavík, Byggðastofnun og Icelandair hafa nú auglýst eftir umsóknum um Eyrarrósina. Viðurkenningin er veitt framúrskarandi menningarverkefni á landsbyggðinni og hefur sem slík fest sig í sessi. Umsóknarfrestur er til miðvikudagsins 13. apríl. Meðal fyrri verðlaunahafa má nefna Þjóðlagahátíðina á Siglufirði, Bræðsluna á Borgarfirði eystra, Skaftfell, Frystiklefann í Rifi, Aldrei fór ég suður, Ferska…Lesa meira

true

Framkvæmdum lokið á Borgarfjarðarbrú

Búið er að koma upp nýjum og mun öruggari vegriðum á Borgarfjarðarbrú, stærstu brú landsins. Framkvæmdir hafa staðið yfir síðan í lok nóvember og umferð stýrt á annarri akrein með ljósastýringu meðan unnið var við brúna fjóra daga vikunnar. Verkinu er nú lokið hálfum öðrum mánuði fyrr en áætlað hafði verið. Það var brúarvinnuflokkur Vegagerðarinnar…Lesa meira

true

Öndin gaf upp öndina

Barátta upp á líf og dauða átti sér stað yfir Grundarfirði í gær þegar stæðilegur haförn hafði fengið augastað á gómsætum síðdegisbita. Önd var á matseðlinum og eftir æsilegan eltingarleik hafði örninn betur og settist með bráð sína á frosinn sjóinn rétt vestan við Grundarfjörð. Örninn er vel merktur og augljóst að hann hefur haft…Lesa meira

true

Fimm ára samningur fyrirhugaður við Háskólann á Bifröst

Á Samráðsgátt stjórnvalda hefur verið opnað fyrir umsagnir um áform Háskóla-, iðnaðar og nýsköpunarráðuneytis um gerð samnings til fimm ára um kennslu og rannsóknir við Háskólann á Bifröst. Samráðsgátt er vettvangur ráðherra til að leita eftir athugasemdum frá almenningi áður en ráðuneyti lýkur vinnslu mála. ,,Háskólinn á Bifröst hefur hlotið viðurkenningu á fræðasviði félagsvísinda í…Lesa meira

true

Árni Friðriksson HF 200 landar í Grundarfirði

Skip Hafrannsóknastofnunar, rannsóknaskipið Árni Friðriksson HF 200, kom til hafnar í Grundarfirði í dag og landaði þrjátíu tonnum af blönduðum afla. Skipið er núna við stofnmælingar botnfiska á Íslandsmiðum, eða á svokölluðu marsralli, ásamt þremur öðrum skipum. Skipin toga á tæplega 600 stöðum á 20-500 metra dýpi umhverfis landið. Þetta er 39. skiptið sem þessar…Lesa meira