Oddvitar bæjarstjórnarflokkanna á Akranesi ásamt verðandi bæjarstjóra. F.v. Valgarður Lyngdal Jónsson, Haraldur Benediktsson, Líf Lárusdóttir og Ragnar B Sæmundsson.

Haraldur í starf bæjarstjóra á Akranesi og hættir á Alþingi

Bæjarstjórn Akraneskaupstaðar náði í gærkvöldi samkomulagi við Harald Benediktsson, bónda á Vestri-Reyni og alþingismann Sjálfstæðisflokksins í Norðvesturkjördæmi, um að taka við starfi bæjarstjóra á Akranesi. Meirihluti bæjarstjórnar er skipaður Samfylkingu og Sjálfstæðisflokki en einróma niðurstaða var í bæjarstjórn um ráðninguna, einnig í röðum Framsóknar og óháðra sem skipa minnihluta. Samhliða því að taka við nýju starfi mun Haraldur hætta á Alþingi. Hefur hann tilkynnt Óla Birni Kárasyni þingflokksformanni um ákvörðun sína sem og Bjarna Benediktssyni formanni flokksins. Teitur Björn Einarsson varaþingmaður mun nú taka sæti Haraldar á Alþingi. Haraldur tekur við bæjarstjórastarfinu 1. maí næstkomandi. Sævar Freyr Þráinsson bæjarstjóri hættir um næstu mánaðamót þegar hann tekur við starfi forstjóra Orkuveitu Reykjavíkur. Steinar Adolfsson sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs mun brúa bilið og gegna starfi bæjarstjóra í millitíðinni.

Ánægja með ráðninguna

„Haraldur hefur þekkingu og reynslu sem við bæjarfulltrúar erum fullvissir um að muni nýtast vel í starfi bæjarstjóra, Akraneskaupstað og samfélaginu hér á Akranesi til heilla. Alger einhugur ríkir í bæjarstjórn um ráðningu Haraldar og við erum þess fullviss að hann muni veita bæjarfélaginu öfluga forystu á áframhaldandi uppgangstímum bæjarins,“ segir Valgarður Lyngdal Jónsson, forseti bæjarstjórnar Akraness. „Bæjarstjórn Akraness hlakkar til samstarfsins við Harald en hann mun hefja störf á næstu vikum.“

Á þingi í áratug

„Ég mun í lok apríl í vor verða búinn að sitja á Alþingi í áratug fyrir Norðvesturkjördæmi, lengst af sem fyrsti þingmaður kjördæmisins. Það er ágætur tími og því fannst mér núna kominn tími til breytinga í ljósi þess að leitað var til mín,“ segir Haraldur. Hann mun nú sem áður halda áfram rekstri kúabús á jörð sinni ásamt Lilju Guðrúnu eiginkonu sinni.

Haraldur segir Akranes vera eitt mest spennandi sveitarfélag landsins og að það sé sannarlega heiður að vera trúað fyrir starfi bæjarstjóra. „Ég hlakka til að takast á við verkefnin með öflugum hópi bæjarstjórnar og starfsmanna Akraneskaupstaðar.“

Haraldur Benediktsson. Ljósm. mm

Formaður BÍ og síðar alþingismaður

Haraldur er fæddur á Akranesi 23. janúar 1966. Foreldrar hans voru Benedikt Haraldsson bóndi á Vestri-Reyni og Halldóra Ágústa Þorsteinsdóttir húsmóðir og bóndi. Eiginkona Haraldar er Lilja Guðrún Eyþórsdóttir bóndi á Vestri-Reyni og fv. ráðunautur. Börn þeirra eru þrjú. Haraldur lauk búfræðiprófi frá Hvanneyri 1984 og síðar diploma í stjórnun í fjarnámi. Hann hefur verið bóndi undir hlíðum Akrafjalls síðan 1995. Samhliða því hefur hann ætíð tekið virkan þátt í félagsstarfi. Var m.a. í stjórn Búnaðarsambands Borgarfjarðar sem síðar varð Búnaðarsamtök Vesturlands, var fulltrúi á búnaðarþingi og kjörinn formaður Bændasamtaka Íslands árið 2004. Því starfi gegndi hann í þrjú kjörtímabil, eða níu ár, eða til 2013, sama ár og hann tók sæti á Alþingi. Sem þingmaður hefur Haraldur setið í atvinnuveganefnd, stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd en auk þess í fjárlaganefnd, þar af formaður hennar í tvö ár og varaformaður eftir 2017. Á þingmannstíð sinni hefur Haraldur beitt sér fyrir ýmsum málefnum landsbyggðarinnar. Upp úr stendur vinna hans fyrir verkefnið Ísland ljóstengt, ljósleiðaravæðing á landsbyggðinni.

Haraldur í starf bæjarstjóra á Akranesi og hættir á Alþingi - Skessuhorn