
Nemendur á unglingastigi Grunnskóla Snæfellsbæjar finna sér ýmislegt til að gera í frímínútum og láta símaleysi ekki trufla sig. Mikið hefur lifnað yfir á göngum skólans eftir að símabann var sett 1. apríl á síðasta ári og eru nemendur t.d. duglegir að spila á spil, tefla eða leika borðtennis. Margir verja einnig frímínútum á bókasafninu…Lesa meira








