
Bæjarhátíðin heim í Búðardal var vel sótt síðasta sumar. Ljósm. úr safni
SSV fær 16 milljóna styrk fyrir verkefnum í Dalabyggð
Sigurður Ingi Jóhannsson, innviðaráðherra, hefur úthlutað styrkjum að upphæð 130 milljónum króna til tólf verkefna á vegum sjö landshlutasamtaka sveitarfélaga. Styrkjunum er ætlað að efla byggðir landsins og segir á vef Stjórnarráðsins að þeim sé úthlutað til sértækra verkefna á sóknaráætlanasvæðum í samræmi við stefnumótandi byggðaáætlun fyrir árin 2022-2036. Alls bárust 32 umsóknir um styrki fyrir árið 2023 að heildarupphæð 857 milljóna króna.