Fréttir

true

Skagamenn með tap á móti Sindra

ÍA tók á móti Sindra í 1. deild karla í körfuknattleik í gærkvöldi og fór leikurinn fram í íþróttahúsinu við Vesturgötu. Jafnt var á flestum tölum í fyrsta leikhluta, um miðjan leikhlutann var staðan 10:11 Sindra í hag og þeir höfðu fjögur stig á heimamenn þegar heyrðist í bjöllunni, staðan 19:23 Sindra í vil. Sindri…Lesa meira

true

Tíundi bekkur í Brekkó snýr aftur til níunda áratugarins

Nemendur tíunda bekkjar í Brekkubæjarskóla á Akranesi hafa í vetur unnið að ýmsum þemaverkefnum sem snúa að tilteknum tímabilum. Nýjasta þemað hjá þeim er níundi áratugurinn. Fram kemur á FB síðu skólans að í þemanámi er tiltekið viðfangsefni skoðað út frá mörgum námsgreinum sem eru samþættar í fjölbreytt verkefni. Í nýjasta þema tíunda bekkjar var…Lesa meira

true

Staðarfell 2 selt fyrir 56 milljónir

Ríkiskaup hafa, fyrir hönd Ríkissjóðs, selt Staðarfell 2 á Fellsströnd í Dölum. Þetta staðfestir Halla Björg Evans lögmaður hjá Ríkiskaupum í samtali við Skessuhorn. Um er að ræða fimm byggingar sem í upphafi hýstu starfsemi húsmæðraskólans en í síðari tíð starfsemi SÁÁ. Húseignirnar eru skólabygging, tvö íbúðarhús með samtals fimm íbúðum, véla- og verkfærageymsla og…Lesa meira

true

Staðgreiðslutekjur sveitarfélaga hækka um tæp 12% milli ára

Útsvar sem innheimt var í staðgreiðslu árið 2022 hækkaði um 11,7% frá fyrra ári. Útsvar er lagt á tekjur einstaklinga og er einn veigamesti tekjustofn sveitarfélaga. Samband íslenskra sveitarfélaga sendi í byrjun vikunnar frá sér tölulegar upplýsingar um hækkun á staðgreiðslu útsvars um allt land og er hér gripið niður í þær tölur. Suðurnesin er…Lesa meira

true

Gríðarlegir vatnavextir í ám á Vesturlandi

Áfram berast fregnir af flóðum í ám og lækjum víðsvegar um Vesturland. Miklar skemmdir hafa orðið á vegum og á það jafnt við um Snæfellsnes, Dali og Borgarfjörð. Nú síðdegis í dag flaut vatn milli brúnna yfir Ferjukotssýkin og þá eru mikil flóð við Hvítárbakka og raun hvarvetna um héraðið. Meðfylgjandi mynd er af hinum…Lesa meira

true

Ákæra gefin út vegna styttuþjófnaðar

Ákæra hefur verið gefin út af hálfu héraðssaksóknara á hendur listakonunum Bryndísi Björnsdóttur og Steinunni Gunnlaugsdóttur vegna þjófnaðar þeirra á styttu Ásmundar Sveinssonar á Laugarbrekku á Snæfellsnesi í apríl í fyrra. Styttan er af Guðríði Þorbjarnardóttur, einni víðförlustu konu fyrri tíma. Eru listakonurnar ákærðar fyrir brot framin gegn almennum hegningarlögum og höfundarlögum og geta þau…Lesa meira

true

Flæðir yfir vegi í Lundarreykjadal – myndband

Víðast hvar streyma nú ár upp úr farvegi sínum vegna leysinga en ástandið er þó misalvarlegt á landinu. Á myndbandinu hér fyrir neðan má sjá Grímsá við Oddsstaði í Lundarreykjadal en áin flæðir nú yfir veginn beggja megin við brúnna. Myndbandið tók Þór Þorsteinsson.Lesa meira

true

Hlaut nafnbótina Manneskja Borgarfjarðar

Manneskja Borgarfjarðar 2022 var útnefnd á þorrablóti í Borgarnesi um liðna helgi. Var það Eiður Sigurðsson sem hlaut nafnbótina í ár. Eiður hlaut tilnefninguna fyrir störf sín í Íþróttamiðstöðinni í Borgarnesi en þar hefur hann sinnt góðu starfi allar götur síðan 1997. ,,Mér fannst þetta í rauninni alveg frábært og mikill heiður. Hér vinn ég…Lesa meira

true

Sinntu óveðursútköllum í Ólafsvík

Mikið hefur verið að gera hjá björgunarsveitarmönnum í Lífsbjörgu í Snæfellsbæ í morgun og fram yfir hádegi, vegna óveðurs. Hafa björgunarmenn sinnt óveðursútköllum. Einkum hefur verið um að fjúkandi þakplötur að ræða, en mjög hvasst er í Ólafsvík. Sveitin færði einnig til húsbíl sem var við það að fjúka, festi landfestar og tryggði kofa sem…Lesa meira