Fréttir

true

Segir ömurlegt að þurfa að ströggla við að leita réttar síns

Í síðustu viku var í fréttaskýringaþættinum Kastljósi í Ríkissjónvarpinu til umfjöllunar vandamál kaupenda gallaðra húseigna og glímu þeirra við að leita réttar síns gagnvart seljendum. Þegar kaupandi nýrrar húseignar kemst að raun um galla á hann samkvæmt lögum að geta leitað réttar síns og fengið gert við eða greiddar bætur sem viðgerðum nemur. Meðal þeirra…Lesa meira

true

Sigrún fórnar hárinu síðdegis á morgun safnist milljón

Síðdegis á morgun mun Sigrún Ríkharðsdóttir, gallhörð Skagakona, mæta í rakarastólinn hjá Gísla rakara við Stillholt á Akranesi. Hún mun verða krúnurökuð náist markmið um eina milljón í fjársöfnun til stuðnings Helgu Ingibjörgu Guðjónsdóttur sem glímir við krabbamein. Áður hafði Gísli rakari heitið á viðskiptavini og vini almennt að ef hann næði að safna 200…Lesa meira

true

Þóra Arnórsdóttir til Landsvirkjunar

Þóra Arnórsdóttir hefur verið ráðin forstöðumaður Samskipta og upplýsingamiðlunar hjá Landsvirkjun. Þóra er þekkt fjölmiðla- og heimildarmyndagerðarkona og hefur starfað við frétta- og dagskrárgerð í um aldarfjórðung. Hún hefur unnið bæði í útvarpi og sjónvarpi, hjá Stöð 2 og RÚV, síðustu ár sem ritstjóri fréttaskýringaþáttarins Kveiks. Þóra var einnig stundakennari við Háskóla Íslands um árabil…Lesa meira

true

Níu manna sérfræðihópur til hjálparstarfs í Tyrklandi

Gríðarlega öflugur jarðskjálfti reið yfir Tyrkland og Sýrland á sunnudaginn. Í dag var ljóst að yfir fimm þúsund íbúar þessara landa fórust og margra er enn saknað. Tyrknesk yfirvöld hafa þegið boð Íslands um aðstoð vegna jarðskjálftanna. Íslenskur hópur sérfræðinga fór því utan til Tyrklands í dag til að aðstoða við björgunaraðgerðir. Hópinn skipa níu…Lesa meira

true

Tvö í framboði til formanns VR

Framboðsfrestur vegna formanns- og stjórnarkjörs VR rann út á hádegi í gær. Kjörstjórn VR bárust tvö einstaklingsframboð til formanns, frá Elvu Hrönn Hjartardóttur og Ragnari Þór Ingólfssyni. Kjörstjórn VR hefur úrskurðað 16 einstaklingsframboð til stjórnar VR fyrir kjörtímabilið 2023-2025 löglega fram borin. Alls verður kosið til sjö sæta í stjórn og þriggja í varastjórn. Frambjóðendur…Lesa meira

true

Stjórn SSV skorar á yfirstjórn RÚV

Á síðasta fundi stjórnar Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi var m.a. rætt um stöðu fréttamanns RÚV á Vesturlandi. Í kjölfar umræðu samþykkti stjórn SSV eftirfarandi bókun: „Stjórn SSV skorar á yfirstjórn Ríkisútvarpsins að ráða í stöðu fréttamanns á Vesturlandi.“ Undanfarin ár hefur fréttamaður RÚV verið staðsettur í Borgarnesi og flutt fréttir af Vesturlandi og Vestfjörðum. Það…Lesa meira

true

Skallagrímur með sterkan sigur á Ármanni

Ármann og Skallagrímur áttust við í 1. deild karla í körfuknattleik í gærkvöldi og var leikurinn í sal Kennaraháskólans í Reykjavík. Ármann byrjaði leikinn með tveimur þriggja stiga körfum en Skallagrímur náði fljótlega áttum og staðan jöfn 8:8 eftir fimm mínútna leik. Jafnt var á flestum tölum fram að lokum fyrsta leikhluta en Orri Jónsson…Lesa meira

true

Ræsið hafði ekki undan

Rétt vestan við Grundarfjörð, áður en komið er að áningarstaðnum við Kirkjufell, er lítill pollur þar sem vatn safnast saman áður en það rennur út í sjó í gegnum ræsi sem liggur undir veginn. Þar liggur líka gamli vegurinn sem nú er notaður af hestamönnum og gangandi vegfarendum. Í vatnsveðrinu og asahlákunni síðasta sunnudag virðist…Lesa meira

true

Blint veður á fjallvegum

Í ábendingu frá Vegagerðinni í morgun segir að hér um vestanvert landið verða talsverð él í allan dag og skafrenningur með hvössum suðvestan vindi  Blint verður með köflum á flestum fjallvegunum. Dregur heldur úr vindi þegar líður á daginn.Lesa meira

true

Fjallaði um sjálfstraust, vegferð og velgengni

Gerður Huld Arinbjarnardóttir, eiganda, stofnanda og framkvæmdastjóri Blush var með erindi fyrir fullum sal þegar FKA boðaði nýverið til fundar í Breiðinni þróunarfélagi á Akranesi. Gerður fjallaði um sjálfstraust í fyrirtækjarekstri, markaðsmál og hugrekki til að takast á við þau verkefni sem koma upp í starfinu. Um var að ræða opinn viðburð á vegum Félags…Lesa meira