Fréttir

true

Ferðabók Gísla Einarssonar (en hvorki Eggerts né Bjarna) af stað á ný

Sýningin Ferðabók Gísla Einarssonar (en hvorki Eggerts né Bjarna) var frumsýnd á Sögulofti Landnámssetursins 14. janúar á þessu ári og stóðu sýningar fram í maí. Nú hefur þráðurinn verið tekinn upp að nýju og voru tvær sýningar um liðna helgi. Blaðamaður Skessuhorns sló á þráðinn til Gísla Einarssonar í tilefni þessa. Ferðabókin á ferðalagi í…Lesa meira

true

Undirrituðu samning við KPMG vegna Brákareyjar

KPMG mun sjá um að móta tillögur að stofnun þróunarfélags um uppbyggingu í Brákarey í Borgarnesi en samningur var undirritaður milli Borgarbyggðar og KPMG í byrjun síðustu viku. ,,Þessi samningur markar spennandi tímamót fyrir áframhaldandi þróun og framtíðarsýn fyrir Brákarey, eina helstu perlu Borgarbyggðar. Mikilvægt er að áfram verði unnið markvisst, faglega og skynsamlega að…Lesa meira

true

Háhyrningur strandaður í minni Gilsfjarðar

Vegfarendur um Gilsfjarðarbrú tóku eftir því síðdegis í dag að háhyrningur hafði orðið innlyksa í grynningum við minni fjarðarins þegar fjaraði út. Steinþór Logi Arnarson sendi Skessuhorni meðfylgjandi mynd.Lesa meira

true

Borgin auglýsir breytingu á aðalskipulagi vegna Sundabrautar

Reykjavíkurborg hefur nú auglýst fyrirhugaðar breytingar á aðalskipulagi Reykjavíkur 2040 vegna væntanlegrar Sundabrautar. Vegurinn er stofnbraut og nýr þjóðvegur í Reykjavík, en mun eins og kunnugt er tengjast Vesturlandsvegi um Kjalarnes og því verður hann mikilvæg samgöngubót fyrir alla íbúa norðan Kollafjarðar, þ.m.t. íbúa Vesturlands, Vestfjarða og Norðurlands. Borgarstjórn Reykjavíkur samþykkti 14. september sl. verkefnalýsingu…Lesa meira

true

Stefnt á opnun nýja íþróttahússins vorið 2025

Opnað var fyrir útboð á innanhússfrágangi við nýja íþróttahúsið á Jaðarsbökkum á Akranesi í síðustu viku og verða tilboðin opnuð 19. október næstkomandi. Samkvæmt útboðsgögnum á að afhenda kjallararými mannvirkisins 30. janúar árið 2025 og allt húsið í lok maí sama ár. Að sögn Ásbjörns Egilssonar, verkefnastjóra á umhverfis- og skipulagssviði Akraneskaupstaðar, varðandi frágang á…Lesa meira

true

Vel heppnuð U2 messa í Akraneskirkju

Kór Keflavíkurkirkju ásamt hljómsveit var með tónleika í Akraneskirkju á laugardaginn þar sem flutt voru lög írsku hljómsveitarinnar U2 og voru allir textar sungnir á íslensku. Textarnir eru eftir fjóra meðlimi kórsins og á Ómar Ólafsson fimm þeirra, Sólmundur Friðriksson samdi fjóra texta og kórstjórinn Arnór B. Vilbergsson og Freydís Kneif Kolbeinsdóttir sömdu bæði einn…Lesa meira

true

Prentmet hættir útgáfu auglýsingablaðsins Póstsins

Á forsíðu auglýsingablaðsins Póstsins, sem kom út í dag, er tilkynnt að útgáfunni hafi nú verið hætt. „Tekin hefur verið sú ákvörðun að hætta útgáfu Póstsins. Er þetta því okkar síðasta tölublað.“ Blaðinu hefur undanfarin ár verið dreift í 3.900 eintökum í hús á Akranesi en auk þess legið frammi í verslunum í Borgarnesi. Prentverk…Lesa meira

true

Þyrma lífi líflamba með ARR arfgerð þótt þau hafi verið línubrjótar

Sigurbjörg Ólöf Bergsdóttir, sérgreinadýralæknir nautgripa og sauðfjár hjá MAST, segir til um það í tilkynningu hvernig bregðast skuli við komi línubrjótar sauðfjár fram í haustréttum. „Vangaveltur hafa vaknað varðandi það hvernig eigi að bregðast við ef línubrjótar reynast vera af ARR/x-arfgerð. Það er niðurstaða Matvælastofnunar að túlka megi 1. mgr 25.gr laga nr 25/1993 um…Lesa meira

true

Röst átti viðkomu í Stykkishólmi og á Brjánslæk

Ferjan Röst, sem Vegagerðin hefur keypt frá Noregi til að taka við ferjusiglingum yfir Breiðafjörð af Baldri, kom til heimahafnar í Stykkishólmi í gær. Röst hafði þá verið á siglingu frá því um helgina frá Noregi. Eftir stutta viðkomu í Stykkishólmi var einnig siglt til Brjánslækjar til að kanna hvort þörf væri á að breyta…Lesa meira