Fréttir

true

Elkem fjárfestir í endurbótum á ljósbogaofni

Endurbætur á ljósbogaofni í verksmiðju Elkem Ísland á Grundartanga standa nú yfir. „Elkem á Íslandi hefur ákveðið að flýta áformum um endurbætur á einum af ljósbogaofnum sínum á Grundartanga í þeim tilgangi að bæta rekstraröryggi, hagkvæmni og auka öryggi starfsfólks. Fjárfesting félagsins vegna endurbótanna nemur 100 milljónum norskra króna, eða um 1,2 milljarði íslenskra króna.…Lesa meira

true

Þungur rekstur fyrstu sex mánuðina hjá Akraneskaupstað

Á fundi bæjarráðs Akraneskaupstaðar síðasta fimmtudag kom fram að rekstrarniðurstaða samstæðu Akraneskaupstaðar, þ.e. A- og B hluta, var neikvæð um samtals 133,5 milljónir króna fyrir fyrstu sex mánuði ársins en áætlun tímabilsins gerði ráð fyrir neikvæðri rekstrarniðurstöðu að fjárhæð 162,4 m. kr. Framlegð tímabilsins, eða EBITDA, var neikvæð um 174,8 milljónir króna og nemur framlegðarhlutfallið…Lesa meira

true

Iðnaðarsýning framundan

Dagana 31. ágúst til 2. september verður haldin Iðnaðarsýning í Laugardalshöll í Reykjavík. Sýningin verður með stærri sýningum hér á landi en á annað hundrað fyrirtæki kynna þar vörur og þjónustu. Sýningin var haldin af Ritsýn sf. en Samtök iðnaðarins eru samstarfsaðili. Innan samtakanna eru um 1.400 fyrirtæki. Á sýningunni verður meðal annars lögð áhersla…Lesa meira

true

Sýningin Blái þráðurinn fjallar um strandstíg á Akranesi

Mastersverkefni Ásu Katrínar Bjarnadóttur, Blái þráðurinn, í sjálfbærri borgarhönnun fjallaði um þematengdan strandstíg á Akranesi. Námið stundaði Ása Katrín við Háskólann í Lundi í Svíþjóð. Verkefnið hefur verið hengt upp í Breið nýsköpunarsetri á Akranesi og er hægt að skoða sýninguna þar á opnunartíma kl. 8-16. „Blái þráðurinn“ er hönnunarsýning um menningu, sögu, náttúru og…Lesa meira

true

Bambahúsi komið fyrir í skógræktinni á Akranesi

Síðastliðinn föstudag var Bambahúsi sem leikskólinn Akrasel keypti fyrr í sumar komið fyrir í Skógræktinni á Akranesi. Húsið verður notað í umhverfismenntarvinnu og ævintýraferðir leikskólans. Þarna verður hægt að rækta grænmeti og blóm meðal annars. Börnin munu verða í aðalhlutverki í nýtingu hússins, þar munu þau hafast við að planta, vökva og passa upp á…Lesa meira

true

Tólf kvígur týndar í Norðurárdal

Guðrún Sigurjónsdóttir bóndi á Glitstöðum í Norðurárdal auglýsti um miðja síðustu viku eftir fjórtán kvígum sem hurfu úr girðingu við bæinn helgina áður. Mánudaginn 21. ágúst fundust þær í fjallgirðingu við bæinn Krók, innar í dalnum. Kvígurnar voru reknar áleiðis heim en þurftu heimamenn að skilja við hópinn við bæinn Hól þegar komið var myrkur.…Lesa meira

true

Hjúkrunarrýmum fjölgað á Brákarhlíð

Í lok síðustu viku náðist samkomulag milli stjórnar Brákarhlíðar í Borgarnesi og heilbrigðisráðuneytisins um fjölgun hjúkrunarrýma á Brákarhlíð. Fjölgunin felst í að fimm dvalarrýmum heimilsins verður breytt í fimm hjúkrunarrými fyrir Landspítala og því til viðbótar fær Brákarhlíð tvö ný varanleg hjúkrunarrými. „Samkomulagið gerir ráð fyrir að Brákarhlíð geti nýtt biðhjúkrunarrýmin fimm ef Landspítalinn nýtir…Lesa meira

true

Skagamenn komnir upp að hlið Aftureldingar eftir sigur á Selfossi

ÍA og Selfoss áttust við á Akranesi í Lengjudeild karla í knattspyrnu á föstudagskvöldið og var leikurinn á Norðurálsvelli. Fyrir leik var mínútu þögn til að minnast Einars Skúlasonar sem lést laugardaginn 19. ágúst en Einar var mikill stuðningmaður félagsins í gegnum tíðina. Fyrsta færi leiksins fékk fyrrum leikmaður ÍA, Guðmundur Tyrfingsson, á elleftu mínútu…Lesa meira

true

Minningartafla baráttumanns

Bókaútgáfan Sæmundur undirbýr nú útgáfu á skáldsögu eftir Kristján L. Guðlaugsson (1949-2023) blaðamann sem einnig var þekktur baráttumaður vinstri manna að fornu og nýju. „Kristján bjó seinustu ár sín á Spáni með eftirlifandi eiginkonu sinni, Sigríði Huld Sveinsdóttur. Andlát hans bar brátt að í júní síðastliðnum og var undirbúningur skáldsögunnar Draumur Jórsalafarans þá á lokastigi.…Lesa meira

true

Skallagrímur með dramatískan sigur á Álftanesi

Það var alvöru dramatík og nóg af mörkum í leik Álftaness og Skallagríms í 4. deild karla í knattspyrnu sem fram fór síðasta fimmtudag á OnePlus vellinum á slóðum forsetans. Heimamenn höfðu veika von með að halda sér uppi með sigri en Skallarnir vissu það að þeim nægði jafntefli til að halda sæti sínu í…Lesa meira