
Elsta deild leikskólans Akrasels fylgdist spennt með komu Bambahússins. Ljósm. akranes.is
Bambahúsi komið fyrir í skógræktinni á Akranesi
Síðastliðinn föstudag var Bambahúsi sem leikskólinn Akrasel keypti fyrr í sumar komið fyrir í Skógræktinni á Akranesi. Húsið verður notað í umhverfismenntarvinnu og ævintýraferðir leikskólans. Þarna verður hægt að rækta grænmeti og blóm meðal annars. Börnin munu verða í aðalhlutverki í nýtingu hússins, þar munu þau hafast við að planta, vökva og passa upp á það sem ræktað verður í húsinu.