Fréttir

true

Rökkurdagar framundan í Grundarfirði

Rökkurdagar í Grundarfirði verða haldnir 13. til 22. október næstkomandi. Rökkurdagar eru árleg menningarhátíð í sveitarfélaginu og er þetta í fimmtánda sinn sem hún fer fram. Að vanda verður nóg um að vera. „Við ætlum að byrja Rökkurdaga á því að opna myndavefinn www.baeringsstofa.is, sem er myndasafn Grundfirðingsins Bærings Cecilssonar. Hann var bæði áhugaljósmyndari og…Lesa meira

true

Framkvæmdir við heita potta og heita laug á Akranesi hefjast 17. október

Fyrr í dag var undirritaður samningur Akraneskaupstaðar við Pípó Pípulagningarþjónustu og GS Import vegna framkvæmda við endurnýjun á heitum pottum Jaðarsbakklaugar og gerð heitrar laugar við Langasand. Stefnt er að því að framkvæmdir hefjist mánudaginn 17. október næstkomandi. Áætlað er að endurnýjun pottanna við Jaðarsbakkalaug verði lokið 1. apríl og að heit laug við Langasand…Lesa meira

true

Bílaleigubíll og kerra fuku við Hafnarfjall

Í gær gerði nokkuð stífa sunnanátt um vestanvert landið og stóð hvassviðrið yfir fram undir miðnætti. Þegar verst lét í gærmorgun náði vindhraði í hviðum 46 metrum á sekúndu við Hafnarfjallið. Tóm snjósleðakerra fauk aftan úr bíl og endaði för eina 200 metra norðan við veginn. Þá fauk einn hinna léttbyggðu Suzuki Jimmy bíla, sem…Lesa meira

true

Byggingarnefnd samþykkti teikningar að hótelbyggingu

Umhverfis,- skipulags- og landbúnaðarnefnd Borgarbyggðar samþykkti á fundi sínum í gær útgáfu byggingarleyfis fyrir 59 herbergja hótelbyggingu á lóðinni Borgarbraut 59 í Borgarnesi. Byggir sú ákvörðun á gildandi deiliskipulagi frá 16. maí 2007, en eins og kunnugt er felldi Úrskurðarnefnd um umhverfis og auðlindamál 23. september sl. úr gildi deiliskipulag frá því í vor þar…Lesa meira

true

Orkusalan gefur öllum sveitarfélögum hleðslustöð fyrir rafbíla

Fyrirtækið Orkusalan hefur ákveðið að gefa öllum sveitarfélögum á landinu hleðslustöð fyrir rafbíla. „Með framtakinu er ætlun fyrirtækisins að gera rafbílaeigendum það auðveldara að ferðast um landið en hingað til hefur það verið illmögulegt vegna fárra hleðslustöðva á Íslandi. Eftir að stöðvarnar sem Orkusalan ætlar að gefa verða settar upp geta eigendur rafbíla keyrt hringinn…Lesa meira

true

Skallagrímur sigraði Vesturlandsslaginn

Fyrsta umferð Domino‘s deildar kvenna í körfuknattleik hófst í gær. Sannkallaður Vesturlandsslagur var í Borgarnesi þar sem nýliðar Skallagríms tóku á móti ríkjandi Íslands- og bikarmeisturum Snæfells. Báðum liðum hefur verið spáð toppbaráttu í deildinni í vetur og leiksins var beðið með mikilli eftirvæntingu. Áhorfendur fjölmenntu á leikinn. Ekki var autt sæti í húsinu og…Lesa meira

true

Tokic hættir með Víkingi

Fotbolti.net greinir frá því að Hrovje Tokic, króatíski sóknarmaður Víkings Ólafsvíkur, muni ekki spila með liðinu á næstu leiktíð. Jónas Gestur Jónasson formaður Víkings staðfestir þetta. Ejub þjálfari hefur jafnframt sagt að mikilla breytinga sé að vænta á Víkingsliðinu fyrir næstu leiktíð. Tokic skoraði 9 mörk með liðinu í sumar og var þriðji markahæsti maður…Lesa meira

true

Tökur á sjónvarpsþáttum standa yfir á Akranesi

Þessa dagana standa yfir tökur á tveggja þátta sjónvarpsseríu sem nefnist Líf eftir dauðann. Verður hún sýnd á RUV um páskana. Akranes og nágrenni er umgjörðin í flestum upptökum og var meðal annars myndað á Vestri Rein í gær. Áætlað er að tökur standi yfir í sjö daga á Akranesi. Margir kunnir leikarar koma við…Lesa meira

true

Mótmæla lágum niðurgreiðslum og háum aldri við innritun í leikskóla

Hópur íbúa á Akranesi hefur hrundið af stað undirskriftasöfnun þar sem skorað er á bæjaryfirvöld á Akranesi að auka niðurgreiðslur vegna gæslu barna og rýmka reglur um aldur þeirra við innritun í leikskóla. „Við skorum á bæjaryfirvöld á Akranesi að endurskoða reglur varðandi niðurgreiðslur til foreldra með börn hjá dagforeldrum og innritunarreglur í leikskóla bæjarins.…Lesa meira

true

Kynnir verkefnaáætlun til uppbyggingar á ferðamannastöðum

Í dag mun Sigrún Magnúsdóttir umhverfisráðherra  kynna verkefnaáætlun til uppbyggingar á ferðamannastöðum víða um land. Áætlunin er til verndar náttúru- og menningarsögulegum minjum sem eru undir álagi af ferðamennsku.  „Áætlunin er í samræmi við lög um landsáætlun um uppbyggingu innviða sem Alþingi samþykkti nýverið og nú er verið að innleiða sem nýtt vinnulag og stjórntæki.…Lesa meira