Fréttir

true

Einstakt samstarf fólks af öllum skólastigum

Næstkomandi þriðjudag frá klukkan 10-11 hefst allsérstakt verkefni á Hvanneyri sem Landbúnaðarháskóli Íslands stendur fyrir. Þá koma nemendur af öllum skólastigum á Hvanneyri og nágrenni saman og skrásetja lífrræðilega fjölbreytileika á landssvæðum umhverfis skólann. Á ensku nefnist verkefnið Biodiversity Challenge – Bio-Blitz 2023. Á opnunarviðburðinum á þriðjudaginn koma saman; leikskólinn Andabær, Grunnskóli Borgarfjarðar, Menntaskóli Borgarfjarðar…Lesa meira

true

Vestlendingar hlutskarpir á garpamóti í sundi

Opna Íslandsmeistaramótið í garpasundi fór fram dagana 5.-6. maí sl. í Sundlaug Kópavogs. Vel á annað hundrað keppendur 25 ára og eldri skráðu sig til leiks frá ellefu félögum. Bæði Sundfélag Akraness og Sunddeild Skallagríms í Borgarnesi áttu fulltrúa á mótinu, og er óhætt að segja að Vestlendingarnir hafi náð glæsilegum árangri með samtals 28…Lesa meira

true

Fóru í skólabúðir á Reykjum í Hrútafirði

Í síðustu viku voru nemendur 7. bekkjar í Brekkubæjarskóla á Akranesi í skólabúðum á Reykjum í Hrútafirði ásamt jafnöldrum sínum í Lundaskóla á Akureyri. Lagt var af stað á mánudegi og komið heim á föstudegi. Markmið skólabúðanna er að gefa nemendum tækifæri til þess að efla leiðtogahæfni og sjálfsmynd sína og vinna með styrkleika og…Lesa meira

true

Hætti á frystitogara eftir aldarfjórðung þar og keypti sér smábát

Haraldur Jónsson sjómaður á Akranesi hefur reynt ýmislegt á lífsleiðinni Skessuhorn er nú byrjað að birta gömul en áhugaverð viðtöl úr eldri árgöngum blaðsins hér á vefnum. Fyrir fimm árum síðan var rætt við Harald Jónsson sjómann á Akranesi, Hadda Jóns. Viðtalið tók nafni hans Bjarnason blaðamaður: Hann kemur út á svalainnganginn um leið og…Lesa meira

true

Kátir krakkar að leik í vettvangsferð

Blaðamaður Skessuhorns var á ferð við Byggðasafnið í Görðum í morgun og hitti þá hressa krakka úr 3. bekk í Grundaskóla á Akranesi sem voru að forvitnast um ferðir blaðamanns. Þau voru í vettvangsferð í blíðunni og heimtuðu að fá hópmynd sem var hið minnsta mál. Þau kvöddu síðan og héldu áfram leik enda veður…Lesa meira

true

Bjóða út ræstingar í stofnunum

Á fundi byggðarráðs Borgarbyggðar i gær var lagt til og samþykkt að bjóða út ræstingar í nokkrum stofnunum sveitarfélagsins. Það eru Grunnskólann í Borgarnesi, Aldan, Frístund, Óðal, Leikskólinn Andabær, Tónlistarskóli Borgarfjarðar og ráðhús Borgarbyggðar. Samþykkt var að bjóða verkið út 1. júní nk. og að leitað verði liðsinnis ráðgjafa við gerð útboðsgagna. Að öðru leyti…Lesa meira

true

Sviptur ævilangt og átta mánaða fangelsi

Karlmaður var í Héraðsdómi Vesturlands 27. apríl síðastliðinn dæmdur til átta mánaða fangelsisvistar, sviptingar ökuréttinda ævilangt og til greiðslu ríflega 40 þúsund króna sektar fyrir ölvunarakstur. Í ákæruskjali kemur fram að málið væri höfðað fyrir; „umferðarlagabrot með því að hafa að kvöldi föstudaginn 13. janúar 2023 ekið bifreiðinni HX-M90, óhæfur til að stjórna henni vegna…Lesa meira

true

Sjóferð um sundin býðst börnum á svæði Faxaflóahafna

Faxaflóahafnir og Fjölskyldu- og húsdýragarðurinn hafa endurnýjað samstarfssamning um verkefnið „Sjóferð um sundin“, þar sem grunnskólabörn sveitarfélaga Faxaflóahafna er boðið í siglingu á Faxaflóa undir leiðsögn starfsmanna Fjölskyldu- og húsdýragarðsins. Samstarfsverkefnið hefur staðið grunnskólanemendum til boða í yfir tvo áratugi og hefur gefið nemendum í Reykjavík, Akranesi, Hvalfjarðasveit og Borgarnesi kost á að læra um…Lesa meira

true

Lengjudeildin hefst á ÍATV

Fyrsti leikur Skagamanna í Lengjudeildinni 2023 verður í beinni á ÍATV í kvöld þegar Grindvíkingar koma í heimsókn á Akranesvöllinn. Upphitun hefst kl. 18:45 en flautað verður til leiks 19:15. Örn Arnarson og Sverrir Mar Smárason lýsa leiknum og Björn Þór Björnsson aðstoðar við upphitun. Góða skemmtun! Áfram ÍA!Lesa meira

true

Vilja finna nýjan stað fyrir grenndargáma

Á þessu ári voru settar upp þrjár grenndarstöðvar á Akranesi og eru þær staðsettar við Bíóhöllina á Vesturgötu, við bílastæði fyrir aftan Bókasafn Akraness og við Byggðasafnið í Görðum við Garðaholt. Á fundi skipulags- og umhverfisráðs Akraneskaupstaðar síðasta þriðjudag var tekin fyrir bókun Menningar- og safnanefndar frá fundi hennar um miðjan apríl þar sem fjallað…Lesa meira