Fréttir

true

Eyþór útskrifast sem sjóliðsforingi frá US Coast Academy

Eyþór Óskarsson frá Stykkishólmi var á dögunum annar Íslendingurinn til að útskrifast úr US Coast Guard Academy, háskóla og sjóliðsforingjaskóla bandarísku strandgæslunnar. Frá skólanum eru útskrifaðir verðandi stjórnendur stofnunarinnar á ýmsum sviðum en skólinn er í New London í Connecticut fylki. Nánasta fjölskylda Eyþórs var viðstödd útskriftina ásamt fulltrúum frá Landhelgisgæslu Íslands, þeir Georg Kr.…Lesa meira

true

Áfengi og kannabisefni kom við sögu í umferðinni

Það var frekar rólegt hjá lögreglunni á Vesturlandi í vikunni sem leið. Helst bar þó til tíðinda nokkrir ökumenn sem betur hefðu setið heima. Um miðjan dag síðasta þriðjudag ók ökumaður út af veginum á Bröttubrekku í Dölum eftir að hafa mætt bíl. Lögreglan kom á staðinn og kom þá í ljós að ökumaður var…Lesa meira

true

Síðasti sveitarstjórnarfundurinn í Reykhólahreppi

Fimmtudaginn 12. maí var síðasti reglulegi fundur fráfarandi sveitarstjórnar í Reykhólahreppi. Við það tækifæri var meðfylgjandi mynd tekin og er hún dæmigerð fyrir fundahöld síðari helming kjörtímabilsins en þá urðu fjarfundir algengt fundarform. Í fundargerð má sjá að nokkur stór mál voru afgreidd, til dæmis verksamningur um endurbætur á Reykhólahöfn, yfirtaka Bríetar leigufélags á íbúðum…Lesa meira

true

Hátt álverð stórbætir afkomu OR

Tekjur samstæðu Orkuveitu Reykjavíkur á fyrstu þremur mánuðum þessa árs jukust um 14% frá fyrra ári og er helsta skýringin auknar tekjur Orku náttúrunnar af raforkusölu til stóriðju. Hagnaður tímabilsins nam 6,8 milljörðum króna en einskiptiskostnaður og tjón í óveðrum febrúarmánaðar hækkuðu rekstrarkostnað tímabilsins miðað við fyrsta ársfjórðung á síðasta ári. Árshlutareikningur samstæðu Orkuveitu Reykjavíkur…Lesa meira

true

Fengu búninga að gjöf

Leikskólinn í Stykkishólmi fékk nýverið að gjöf yfir 30 búninga af ýmsum stærðum að gjöf frá Anne Helenne sem rekur vefverslunina annelitla.is. Sonur hennar, Ingvar Njáll er nemandi á leikskólanum og nokkuð ljóst að þessir búningar verða mikið notaðir. Þetta kemur fram á heimasíðu bæjarins. Í bréfi sem fylgdi gjöfinni frá Anne segir: „Það er…Lesa meira

true

Stéttarfélögin stefna á meiri uppbyggingu ódýrs húsnæðis

Forseti ASÍ, formaður BSRB, formaður VR og framkvæmdastjóri Bjargs íbúðafélags undirrituðu í dag rammasamning um að nýta reynslu og þekkingu Bjargs til að taka næsta skref í uppbyggingu verkalýðshreyfingarinnar á íbúðum á viðráðanlegu verði. VR kemur til með að byggja íbúðir fyrir sína félagsmenn með langtímahugsun og lághagnað að leiðarljósi undir hatti systurfélags Bjargs íbúðafélags;…Lesa meira

true

Bjarney ráðin framkvæmdastjóri UMSB

Bjarney Bjarnadóttir hefur verið ráðin í starf framkvæmdastjóra Ungmennasambands Borgarfjarðar, UMSB, og kemur til starfa í júní. Bjarney er með BSc í íþróttafræði frá Háskólanum í Reykjavík auk kennsluréttinda fyrir grunn- og framhaldsskóla. Þá leggur Bjarney stund á meistaranám í forystu og stjórnun með áherslu á mannauðsstjórnun. Bjarney er með víðtækan bakgrunn þegar kemur að…Lesa meira

true

Kári fékk tvö rauð spjöld fyrir norðan

Kormákur/Hvöt og Kári mættust í 3. deild karla í knattspyrnu síðasta laugardag og fór leikurinn fram á Sauðárkróksvelli. Lítið markvert gerðist í fyrri hálfleik fyrir utan fjögur gul spjöld sem fóru á loft hjá dómara leiksins og átti Kári þrjú þeirra. Á síðustu mínútu fyrri hálfleiks skoraði Hilmar Þór Kárason fyrsta mark leiksins fyrir Kormák/Hvöt…Lesa meira

true

Tap hjá Víkingi Ólafsvík gegn Njarðvík

Víkingur Ólafsvík og Njarðvík áttust við í 2. deild karla í knattspyrnu á laugardaginn og fór leikurinn fram á gervigrasvellinum í Ólafsvík. Njarðvíkingar höfðu unnið fyrstu tvo leiki sína í deildinni samanlagt 9-0 á meðan Víkingur hafði tapað einum og gert eitt jafntefli. Oumar Diock kom Njarðvík yfir á elleftu mínútu og þannig var staðan…Lesa meira

true

Árni Snær bjargaði stigi fyrir ÍA

Skagamenn gerðu sér ferð út fyrir landsteinana á laugardaginn þegar þeir heimsóttu lið ÍBV til Vestmannaeyja í 7. umferð Bestu deildar karla í knattspyrnu. Fyrir leikinn voru Eyjamenn án sigurs og Skagamenn búnir að tapa síðustu þremur leikjum sínum. Heimamenn stjórnuðu ferðinni á upphafsmínútum leiksins, Skagamaðurinn Steinar Þorsteinsson fékk þó fyrsta alvöru færið en hitti…Lesa meira