Fréttir

true

H listi sigurvegari í Stykkishólmi og Helgafellssveit

Búið er að telja öll atkvæði í sameinuðu sveitarfélagi Stykkishólmsbæjar og Helgafellssveitar á Snæfellsnesi. Tveir listar voru í kjöri. Á kjörskrá voru 934 og greiddu 761 atkvæði. Auðir seðlar voru 15, en enginn ógildur. Úrslit urðu þau að H-listi Framfarasinna hlaut 408 atkvæði og I-listi Íbúalistans 338 atkvæði. H-listi myndar því fyrsta meirihlutann í sameinuðu…Lesa meira

true

Úrslit liggja fyrir í Skorradalshreppi

Búið er að telja atkvæði í Skorradalshreppi. Á kjörskrá voru 47 og var kjörsóknin 87,2%. Í sveitarstjórn voru eftirtalin kosin: Jón Eiríkur Einarsson Mófellsstaðakoti, 22 atkvæði Kristín Jónsdóttir Hálsum, 22 atkvæði Pétur Davíðsson Grund, 21 atkvæði Óli Rúnar Ástþórsson Birkimóa 1, 20 atkvæði Guðný Elíasdóttir, Mófellsstöðum, 15 atkvæði. Varamenn í sveitarstjórn: Sigrún Guttormsdóttir Þormar Björn…Lesa meira

true

Fyrstu tölur úr Borgarbyggð

Búið er að birta fyrstu tölur úr Borgarbyggð. Á kjörskrá voru 2.804. Nú klukkan 23:00 hafa verið talin 1.436 atkvæði og þau hafa fallið þannig: A listi Samfylkingar og Viðreisnar – 175 atkvæði B listi Framsóknarflokks – 687 atkvæði D listi Sjálfstæðisflokks – 340 atkvæði V listi Vinstri hreyfingarinnar græns framboðs – 159 atkvæði. Auðir…Lesa meira

true

Framsókn bætir við sig fylgi á Akranesi

Nú eru innan við 800 atkvæði ótalin á Akranesi, en fyrstu tölur voru birtar nú fyrir skömmu. Á kjörskrá á Akranesi voru 5.691. Greidd atkvæði voru 3.563, sem er 62,8% kjörsókn. Talin hafa verið 2.670 atkvæði. Þau hafa fallið þannig: B – Listi Framsóknarflokks og Frjálsra 953 atkvæði, eða 35,7% (3 bæjarfulltrúar) D – Listi…Lesa meira

true

Talningu lokið í Eyja- og Miklaholtshreppi

Nú er búið að telja atkvæði í Eyja- og Miklaholtshreppi á Snæfellsnesi, en þar var kosið óhlutbundinni kosningu. Kjörsókn var tæp 78%. Í hreppsnefnd voru kosin: Herdís Þórðardóttir sem fékk 42 atkvæði, Veronika G. Sigurvinsdóttir 37 atkv., Valgarð S. Halldórsson 36 atkv., Gísli Guðmundsson 28 atkv. og Sigurbjörg Ellen Ottesen hlaut 27 atkvæði.Lesa meira

true

Mótorhjólaslys á Snæfellsnesi

Þyrla Landhelgisgæslunnar var síðdegis í dag kölluð út til að sækja einstakling sem slasast hafði á mótorhjóli á Snæfellsnesi. Það var lögreglan á Vesturlandi sem óskaði eftir aðkomu Gæslunnar. Nánari tildrög slyssins eða líðan hins slasaða liggur ekki fyrir. Þyrlan lenti á bryggjunni í Grundarfirði og tók á loft þaðan á sjöunda tímanum í kvöld.Lesa meira

true

Kosningaskjálfti í Þrengslunum

Laust fyrir klukkan 17 í dag varð nokkuð snarpur jarðskjálfti sem átti upptök sín skammt norðaustan við Þrengslin, leiðina frá Þorlákshöfn um Hellisheiði. Samkvæmt staðfestum mælingum Veðurstofunnar var skjálftinn 4,3 stig. Hann fannst víða á suðvesturhorni landsins, Suðurlandi og Vesturlandi.Lesa meira

true

Kjörsókn heldur dræmari klukkan 13 á Akranesi

Klukkan 13 í dag höfðu 990 kosið á Akranesi í sveitarstjórnarkosningunum sem fram fara í dag. Það jafngildir 17,4% kjörsókn. Geir Guðjónsson formaður yfirkjörstjórnar segir að á sama tíma fyrir fjórum árum hafi 18,21% verið búnir að kjósa klukkan 13:00. Á Akranesi er nú kosið í íþróttahúsinu á Jaðarsbökkum. Kjördeildir eru fjórar. Meðfylgjandi mynd sýnir…Lesa meira

true

Meiri kjörsókn í Borgarbyggð en fyrir fjórum árum

Klukkan 12 á hádegi höfðu 352 íbúar í Borgarbyggð nýtt atkvæðisrétt sinn í sveitarstjórnarkosningunum þar. Það jafngildir 12,5% kjörsókn. Sveinbjörn Eyjólfsson formaður yfirkjörstjórnar segir að þetta sé prósenti meiri kjörsókn en á sama tíma fyrir fjórum árum. Á kjörskrá í Borgarbyggð eru 2.804.Lesa meira