Fréttir

true

Skagamenn drógu stutta stráið í gjaldskrárbreytingu Vegagerðarinnar

Helgi Hauksson íbúi á Akranesi hefur að jafnaði notað strætisvagn 57 til að ferðast milli Akraness og höfuðborgarsvæðisins. Í aðsendri grein hér á vefnum færir Helgi í tal gríðarlega gjaldskrárhækkun samhliða því að Vegagerðin hefur nú tekið yfir rekstur landsbyggðarvagna og ný gjaldskrá tekið gildi. “Samkvæmt nýrri gjaldskrá hækkar samgöngukortið mitt um 92% milli ára,…Lesa meira

true

Ræktun matvæla í þéttbýli og samrækt hringrásarframleiðsla

Málþing um nýsköpun og nýjar viðskiptahugmyndir í ræktun matvæla í þéttbýli og samrækt hringráðsarframleiðslu verður haldið á morgun, miðvikudaginn 4. maí milli klukkan 13 og 16, í Ársölum á Hvanneyri. Yfirskrift málþingsins er Ræktun matvæla í þéttbýli og samrækt hringrásarframleiðsla. Erindin fara fram á ensku. Allir eru velkomnir en skrá þarf mætingu og er þátttaka…Lesa meira

true

Hjólað í vinnuna að hefjast

Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands stendur fyrir heilsu- og hvatningarverkefninu Hjólað í vinnuna, heilbrigðri vinnustaðakeppni um allt land í þrjár vikur í maí ár hvert. Nú í ár fer Hjólað í vinnuna fram dagana 4. til 24. maí 2022. Meginmarkmið „Hjólað í vinnuna“ er að vekja athygli á virkum ferðamáta sem heilsusamlegum, umhverfisvænum og hagkvæmum samgöngumáta.…Lesa meira

true

Jafntefli hjá Fram og ÍA í tilþrifalitlum leik

Fram og ÍA mættust í þriðju umferð í Bestu deild karla í knattspyrnu í gærkvöldi og fór leikurinn fram á Framvellinum í Safamýri. Lítið markvert gerðist í leiknum á fyrsta korteri leiksins en á 18. mínútu fékk Skagamaðurinn Gísli Laxdal Unnarsson ágætis færi, náði góðu skoti að marki en markvörður Fram varði vel. Skömmu síðar…Lesa meira

true

Hvetja til notkunar kattakraga

Fuglavernd skorar á kattaeigendur að halda köttum inni yfir varptíma fugla. Kettir eru öflug og afkastamikil rándýr sem höggva stór skörð í stofna fugla sem verpa í nágrenni við mannabústaði ár hvert. Á varptíma er því mikilvægt að lausaganga katta sé takmörkuð og sérstaklega yfir nóttina. Bjöllur og kattakragar eru í sumum tilfellum betri vörn…Lesa meira

true

Handrið við handverksaðstöðuna

Sæmundur Kristjánsson og Jón Eggertsson voru á laugardaginn að leggja lokahönd á smíði handriðs fyrir utan handverksaðsöðu eldri borgara í Ólafsvík. Þeir leyfðu þó myndatöku þegar ljósmyndari truflaði þá. Mikil og fjölbreytt starfsemi fer fram í húsinu. Þar er m.a. stundaður útskurður, rennismíði, tré-, gler- og leirvinna og því bráðnauðsynlegt að aðgengi sé sem best.Lesa meira

true

Stemning við löndun á Stapa á fyrsta degi strandveiða – myndaspyrpa

Það var líf og fjör á höfninni á Arnarstapa í dag þegar strandveiðisjómenn komu til hafnar eftir fyrstu veiðiferð sumarsins. Einnig var í hópnum að finna aflaklær sem gera út allt árið og veiða upp í kvóta. Gunnhildur Lind Hansdóttir ljósmyndari Skessuhorns brá sér bæjarleið og fangaði stemninguna í dag. Við leyfum myndum hennar að…Lesa meira

true

Tveir nýir leikskólastjórar

Búið er að ganga frá ráðningu leikskólastjóra við leikskólana Teigasel og Vallarsel á Akranesi. Íris Guðrún Sigurðardóttir hefur verið ráðin leikskólastjóri Teigasels og Vilborg Valgeirsdóttir leikskólastjóri Vallarsels. Íris Guðrún tekur við af Margréti Þóru Jónsdóttur og Vilborg af Brynhildi Björgu Jónsdóttur. Á vefsíðu Akraneskaupstaðar er þeim óskað farsældar í starfi og því fagnað að þær…Lesa meira

true

Fékk aðsvif við að hræra í skít

Í síðustu viku var Styrmir Gíslason bóndi á Kötlulandi, við Reykhóla, að hræra upp í áburðarkjallara í fjárhúsunum hjá sér. Með honum voru tveir nágrannar hans, Tómas bóndi á Reykhólum og Gústaf Jökull bóndi á Miðjanesi, en frá þessu atviki er greint á vef Reykhólahrepps. Þegar hrært er í skít, ekki síst á þessum árstíma,…Lesa meira

true

Skoðunarmánuður ferðavagna er í maí

Maí er nýr skoðunarmánuður fyrir húsbíla, hjólhýsi, fellihýsi, tjaldvagna, bifhjól, létt bifhjól í flokki II og fornökutæki. Samgöngustofa vekur athygli á að með samþykkt reglugerðar nr. 414/2021, um skoðun ökutækja, hafa ökutæki í ákveðnum ökutækja- og notkunarflokkum fengið nýjan skoðunarmánuð. Skal nú og framvegis færa þau til skoðunar eins og þau hefðu 5 í endastaf…Lesa meira