Fréttir

true

Krónan þakkar fyrir sig með afslætti  

„Krónan býður viðskiptavinum sínum upp á 5% afslátt af öllum vörum í verslunum sínum á morgun, laugardaginn 22. janúar. Tilefnið er að fimmta árið í röð eru viðskiptavinir Krónunnar þeir ánægðustu á matvörumarkaði, samkvæmt niðurstöðum Íslensku ánægjuvogarinnar sem kynntar voru fyrr í dag,“ segir í tilkynningu frá Krónunni. „Krónan hlaut hæstu einkunn meðal verslana á…Lesa meira

true

Fjölgar um 27 í einangrun milli daga

Lögreglan á Vesturlandi hefur birt nýjustu tölur yfir fjölda þeirra sem eru í sóttkví eða einangrun á Vesturlandi vegna Covid-19. Nokkur fjölgun er í báðum hópum milli daga en í dag eru 228 einstaklingar í einangrun í landshlutanum en 201 var í einangrun í gær. 109 eru í einangrun á Akranesi, 70 í Borgarnesi, 21…Lesa meira

true

Staðfestir ákvörðun um lokun mannvirkja í Brákarey

Fyrr í mánuðinum bárust Borgarbyggð tveir úrskurðir samgöngu- og sveitarstjórnaráðuneytisins vegna ákvarðana slökkviliðsstjóra Borgarbyggðar í málefnum Ikan ehf., um lokun húsnæðis að Brákarbraut 27, innsiglun húsnæðis Ikan ehf. og synjun um afhendingu frekari gagna. Ákvarðanir slökkviliðsstjóra voru staðfestar af hálfu ráðuneytis í báðum tilfellum. „Í úrskurði samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytisins er staðfest að aðgerðir slökkviliðsstjóra vegna…Lesa meira

true

Fimmtán milljarða samdráttur í verklegum framkvæmdum

Útboðsþing Samtaka iðnaðarins (SI) fer fram í dag í samstarfi við Mannvirki – félag verktaka og Félag vinnuvélaeigenda. Þinghaldið er í streymi og stendur yfir frá klukkan 13.00-15.00. Á þinginu kynna fulltrúar ellefu opinberra aðila fyrirhugaðar verklegar framkvæmdir á árinu og fæst því gott yfirlit yfir helstu útboð ársins. Í nýrri greiningu SI kemur fram…Lesa meira

true

Bóndadagurinn er í dag

Bóndadagurinn er í dag, fyrsti dagur Þorra. Fjölmargir gera sér dagamun í mat af því tilefni. Í verslunum er víða hægt að fá þorramat í ýmsum pakkningum. Meðfylgjandi mynd var hins vegar tekin í Einarsbúð á Akranesi í morgun. Þar getur fólk valið úr kjötborðinu mat sem hentar hverjum og einum. Kjötborðið í Einarsbúð er…Lesa meira

true

Um 7% landsmanna í einangrun eða sóttkví

Í gær voru 1.456 sem greindust með kórónuveiruna innanlands og 211 smit voru greind á landamærunum skv. uppfærðum tölum á covid.is. 56% voru í sóttkví við greiningu. 35 liggja nú á sjúkrahúsi vegna veirunnar og þar af eru þrír á gjörgæslu, allir í öndunarvél. Á landinu eru nú 10.803 í einangrun og 13.689 í sóttkví,…Lesa meira

true

Vegagerðin varar við skemmdum á slitlagi

Vegagerðin varar við slitlagsskemmdum á milli Svínadals og Bröttubrekku og biður vegfarendur að sýna aðgát á svæðinu. Þá er færð á Skógarströnd erfið þar sem frost er farið úr efsta lagi malarvegarins. Ferjan Baldur mun ekki sigla í dag vegna veðurs.Lesa meira

true

Skoða að Silfurtún og Barmahlíð renni í eina sæng

Stjórn Dvalar- og hjúkrunarheimilisins Silfurtúns var í síðustu viku falið að leita eftir samstarfi við Reykhólahrepp um sameiningu þess og Dvalar- og hjúkrunarheimilisins Barmahlíðar á Reykhólum. Ákvörðunin var tekin á fundi sveitarstjórnar Dalabyggðar, þann 13. janúar. Hún kemur í kjölfar fundar sem fulltrúar frá báðum sveitarfélögum sóttu og báru saman stöðu, rekstur og skipulag beggja…Lesa meira

true

Skagabón flutt í nýtt og betra húsnæði

Pálmi Þór Jóhannsson opnaði bílaþvottastöðina Skagabón á Akranesi 1. nóvember 2020. Fyrst um sinn var hann með aðstöðu í litlu iðnaðarbili við Kalmansvelli og rak hann stöðina á eigin kennitölu. Í dag hefur Pálmi opnað Skagabón í nýrri og betri aðstöðu við Faxabraut 3 og er fyrirtækið komið með eigin kennitölu. „Það var stefnan hjá…Lesa meira

true

Elsa Lára á leið úr bæjarpólitíkinni

Elsa Lára Arnardóttir, fyrrverandi þingmaður og núverandi oddviti Framsóknar og frjálsra á Akranesi og formaður bæjarráðs, sendi í gær frá sér yfirlýsingu þess efnis að hún hyggist ekki gefa kost á sér sem oddviti listans fyrir bæjarstjórnarkosningarnar 14. maí næstkomandi. Flokkurinn á nú tvo fulltrúa í bæjarstjórn, en Ragnar B Sæmundsson skipaði annað sæti listans…Lesa meira