Fréttir

true

Flugeldasala björgunarsveitanna að hefjast

Björgunarsveitir víðs vegar um landið eru nú byrjaðar flugeldasölu, en salan er til að standa straum af rekstri sveitanna. Mismunandi er milli sveita hversu stór þáttur í heildar fjármögnun, flugeldasalan er, en hún er allt að 80% af veltu sumra. Þeim sem eru á móti notkun flugelda er bent á að hægt er að gerast…Lesa meira

true

Áréttað um búnað í bílum í vetrarfærð

Í ljósi atburða undanfarinna daga vill Slysavarnafélagið Landsbjörg hvetja alla til að huga vel að útbúnaði í bifreiðum sínum. Ferðalag á vanbúnum bíl getur ekki bara þýtt vandræði fyrir bílstjóra hans, heldur marga aðra sem ekki komast framhjá.„Það er gott að vera með skóflu í bílnum, hlý vetrarföt og góða skó, ef þú þarft að…Lesa meira

true

Heiðar Örn og Bjarni Kristinn stefna á sætaskipti

Tekist hefur samkomulag um að varaslökkviliðsstjóri og slökkviliðsstjóri Borgarbyggðar hafi sætaskipti 1. apríl næstkomandi. Heiðar Örn Jónsson varaslökkviliðsstjóri, hafði sagt upp störfum miðað við áramót, en hefur nú dregið uppsögn sína til baka og tekur við starfi slökkviliðsstjóra 1. apríl í vor. Bjarni Kristinn Þorsteinsson slökkviliðsstjóri verður þá um leið varaslökkviliðsstjóri og verkefnisstjóri. „Ég er…Lesa meira

true

Tilnefningar til kjörs á íþróttamanni Akraness 2022

Íþróttabandalag Akraness og Akraneskaupstaður standa fyrir vali í íþróttamanni Akraness árið 2022. Þrettán einstaklingar úr tólf íþróttagreinum eru tilnefndir að þessu sinni. Kosning verður með hefðbundnu sniði og gefst íbúum kostur á að taka þátt í valinu og kjósa inn á íbúagátt á www.akranes.is til og með 4. janúar næstkomandi. Kjörinu verður lýst eftir þrettándabrennu…Lesa meira

true

Ægir Örn ráðinn sóknarprestur í Snæfellsbæ

Biskup Íslands auglýsti í haust starf sóknarprests til þjónustu í Ólafsvíkur- og Ingjaldshólsprestakalli á Snæfellsnesi. Einn umsækjandi var um starfið og hefur biskup ráðið mag. theol Ægir Örn Sveinsson og tekur hann við starfinu um áramótin. Séra Aðalsteinn Þorvaldsson sóknarprestur í Setbergsprestakalli hefur þjónað í kirkjunum í Snæfellsbæ frá því í lok júlí þegar séra…Lesa meira

true

Efla geðheilbrigðisþjónustu á Fellsenda og Ási

Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að framlengja um eitt ár tilraunaverkefni sem verið hefur í gangi síðastliðið ár og miðar að því að efla sérhæfða þjónustu í geðhjúkrunarrýmum Áss og Fellsenda. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Stjórnarráðsins. Umrætt verkefni var sett á laggirnar í september 2021 þar sem fyrir lá mat embættis…Lesa meira

true

Tónleikar í kvöld í keilusalnum

Hljómsveitin Amma og úlfarnir heldur tónleika í kvöld, miðvikudaginn 28. desember kl. 20.00, í Keilusal Akraness við Vesturgötu. Tónleikarnir eru til styrktar samtökunum Það er von og kostar 2.500 krónur inn. Hljómsveitina skipa að þessu sinni Jónína Björg Magnúsdóttir söngur, Eðvarð Lárusson gítar, Davíð Atli Jones bassi og Guðjón Jósef Baldursson trommur. „Ef einhvern langar…Lesa meira

true

Fimmtán hross urðu undir snjóflóði

Í hádeginu í gær, mánudag, féll snjóflóð á hóp 15 hrossa á milli bæjanna Stekkjarbóls og Hólkots í Unadal austur af Hofsósi. Fram kemur í tilkynningu frá Landsbjörgu að björgunarsveitin Grettir á Hofsósi hafi verið boðuð út, en þegar björgunarsveitarmenn komust að hrossunum voru þau öll dauð. Mikið hefur snjóað víða á landinu á undanförnum…Lesa meira

true

Spáð er byl á suðausturlandi og á Steingrímsfjarðarheiði

Í tilkynningu frá Vegagerðinni er spáð vaxandi hríð og erfiðum akstursskilyrðum á Steingrímsfjarðarheiði og á Þröskuldum. Þá verður hvasst og hríðarbylur sunnan undir Vatnajökli og áframhaldandi ófærð suðaustanlands í dag. Þegar kemur fram á morgundaginn eru horfur á blindhríð austan Öræfa, allt austur á Hérað, norðaustan átt, 13-20 m/s.Lesa meira

true

Ráðherra staðfestir endanleg framlög Jöfnunarsjóðs

Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra hefur samþykkt tillögur ráðgjafarnefndar Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga um endurskoðaða úthlutun á tekjujöfnunarframlagi, útgjaldajöfnunarframlagi og framlagi vegna tekjutaps fasteignaskatts fyrir árið 2022. Þá hefur ráðherra samþykkt úthlutun á framlagi vegna nemenda sem þurfa að sækja tónlistarskóla utan síns sveitarfélags fyrir skólaárið 2022-2023. Jafnframt hefur ráðherra samþykkt tillögu um áætluð framlög til að mæta…Lesa meira