
Ægir Örn Sveinsson. Ljósm. af FB.
Ægir Örn ráðinn sóknarprestur í Snæfellsbæ
Biskup Íslands auglýsti í haust starf sóknarprests til þjónustu í Ólafsvíkur- og Ingjaldshólsprestakalli á Snæfellsnesi. Einn umsækjandi var um starfið og hefur biskup ráðið mag. theol Ægir Örn Sveinsson og tekur hann við starfinu um áramótin. Séra Aðalsteinn Þorvaldsson sóknarprestur í Setbergsprestakalli hefur þjónað í kirkjunum í Snæfellsbæ frá því í lok júlí þegar séra Óskar Ingi Ingason lét af störfum.