Fréttir

true

Gert ráð fyrir jákvæðri rekstrarniðurstöðu í Dalabyggð

Fjárhagsáætlun Dalabyggðar fyrir árin 2023-2026 var lögð fram til síðari umræðu í sveitarstjórn og samþykkt einróma á fundi í gær. Áætluð rekstrarniðurstaða samstæðunnar (A og B hluta) árið 2023 er jákvæð um 56,5 milljónir króna sem er breyting til hins betra frá yfirstandandi ári. Nýjasta útkomuspá gerir ráð fyrir neikvæðri niðurstöðu um 12 milljónir króna…Lesa meira

true

Veita ríflegan afslátt af gatnagerðargjöldum

Á fundi bæjarstjórnar Grundarfjarðarbæjar síðla í nóvember var samþykkt að veita afslátt af gatnagerðargjaldi af tilteknum eldri lóðum í bænum. Í sumar samþykkti bæjarstjórn að veita til reynslu 75% afslátt af gatnagerðargjöldum til ársloka. Á fundi sínum 24. nóvember samþykkti bæjarstjórn svo að þessi afsláttur muni gilda til áramóta og renna þá út, en frá…Lesa meira

true

Færðu leikskólabörnum í Stykkishólmi gjöf

Fyrir viku mættu þau Björn Ásgeir Sumarliðason og Rebekka Sóley Hjaltalín frá Björgunarsveitinni Berserkjum í Stykkishólmi og færðu leikskólanum að gjöf öryggisvesti á nemendur og einnig endurskinsmerki sem börnin fengu að fara með heim. Fram kemur á heimasíðu Stykkishólmsbæjar að leikskólinn þakkaði kærlega fyrir þessa höfðinglegu gjöf sem á eftir að nýtast vel í skammdeginu…Lesa meira

true

Lögregla leitar vitna að óhappi

Í tilkynningu frá Lögreglunni á Vesturlandi kemur fram að óskað er að ná tali af vitnum, sem ekki hefur þegar verið rætt við, að umferðaróhappi sem varð í gær á Akranesi. Óhappið varð á Stillholti á gatnamótum Kirkjubrautar og Kalmansbrautar klukkan 15:00, miðvikudaginn 14. desember. Þá vill lögregla jafnframt ná tali af ökumanni bifreiðar sem…Lesa meira

true

Jólaúthlutun Mæðrastyrksnefndar lokið

Í dag fór fram jólaúthlutun Mæðrastyrksnefndar Akraness sem jafnframt er síðasta úthlutun fyrir hátíðirnar. Þar sem nefndin fékk matvörur til úthlutunar þurfti að fá stærra húsnæði og útvega það með afar skömmum fyrirvara. Byggingafyrirtækið Uppbygging lagði til húsnæði við Dalbraut, þar sem Blikkverk var síðast til húsa. Á meðfylgjandi mynd er starfsfólk Mæðrastyrksnefndar ásamt Kristínu…Lesa meira

true

„Ég er sko forseti Íslands“ – MYNDBAND

Öll fimm ára börn í leikskólum á Akranesi voru saman komin við nýja Garðasel rétt fyrir klukkan eitt í dag. Þar tóku þau á móti forseta Íslands og fylgdarliði hans. „Ert þú ekki forsetinn?” spurði einn fimm ára gutti. „Jú, ég er sko forseti Íslands, takk fyrir að taka á móti mér,” svaraði Guðni Th.…Lesa meira

true

Síðustu forvöð að panta í Jólablaðið

Jólablað Skessuhorns kemur út næstkomandi þriðjudag, 20. desember. Vinnsla blaðsins er nú langt komin og verður lokað fyrir innsendingu á nýju efni og auglýsingum á morgun, föstudag. Þeir sem vilja koma á framfæri efni eða auglýsingum í Jólablaðið er því bent á að tryggja sér pláss í dag, en eigi síðar en fyrir hádegi á…Lesa meira

true

Stykkishólmsbær eða Sveitarfélagið Stykkishólmur

Í byrjun júlí óskaði sameinað sveitarfélag Helgafellssveitar og Stykkishólmsbæjar eftir eftir því við Örnefnanefnd að hún tæki til umsagnar tillögur að nafni á hið nýja sveitarfélag. Auglýst var eftir tillögum að nafni og rann út frestur til að skila inn tillögum 1. júní. Alls bárust 72 tillögur sem sveitarstjórn ákvað svo að óska eftir áliti…Lesa meira

true

Jólasveinaleikrit í Grundaskóla – MYNDBAND

Jólasveinaleikrit 7. bekkjar Grundaskóla á Akranesi var sýnt tvisvar í morgun í sal skólans við góðar undirtektir og verður önnur sýning klukkan fimm í dag. Verkið var samið og leikstýrt af Angelu Árnadóttur, Lilju Margréti Riedel og Margréti Sögu Gunnarsdóttur Clothier. Allur árgangurinn tók þátt í sýningunni með einhverjum hætti, í leik og söng eða á…Lesa meira

true

Ljósmyndasýning opnuð á 85 ára afmæli Silla

Sigvaldi Arason, fyrrverandi framkvæmdastjóri og stofnandi Borgarverks, verður 85 ára á sunnudaginn næsta, 18. desember. Af því tilefni býður hann vinum og velunnurum til veizlu í samkomusal Brákarhlíðar í Borgarnesi frá klukkan 12-15. Samtímis verður opnuð ljósmyndasýning á myndum Silla sem sýnir framkvæmdir og þróun í Borgarnesi og nærsveitum. Elstu myndirnar voru teknar árið 1970.…Lesa meira