Fréttir

true

Endurbætur gerðar á Olís í Borgarnesi

Undanfarnar vikur hafa verið í gangi endurbætur á húsnæði Olís við brúarsporðinn í Borgarnesi. Veitingasalurinn hefur fengið nýtt útlit og stækkaður. Fleiri breytingar hafa einnig verið gerðar. Veitingastaðurinn Lemon míní hóf starfsemi á Olísstöðinni síðastliðið sumar. Þá hefur nýr verslunarstjóri tekið til starfa; Borgnesingurinn Edda Fanney Guðjónsdóttir tók við starfinu í byrjun október en hún…Lesa meira

true

Bókaveisla 10. bekkjar haldin í Snæfellsbæ

Fimmtudaginn 8. desember síðastliðinn var árleg Bókaveisla Grunnskóla Snæfellsbæjar haldin í Félagsheimilinu Klifi. Bókaveislan var fyrst haldin árið 2002, þá að frumkvæði Framfararfélags Ólafsvíkur, en skipulag og framkvæmd hefur verið í höndum skólans frá árinu 2005. Frá upphafi hefur sú hefð haldist að bjóða rithöfundum í súpu og spjall með nemendum áður en farið er…Lesa meira

true

Frá félaginu Villiköttum Vesturlands

Félagið hóf störf á Vesturlandi 2018 og hefur síðan farið eins og þeytivinda um Vesturland að sinna villi- og vergangskisum. Einnig aðstoðað við leit að týndum kisum og þannig komið þeim aftur heim. Deildin hefur fengið endalausan stuðning frá almenningi, sem stendur þétt við bakið á okkur og á endalaust hrós og þakklæti skilið. Án…Lesa meira

true

Níu tonn af hlýjum vetrarfatnaði fyrir varnarsveitir og almenning í Úkraínu

Níu tonn af hlýju frá Íslandi voru um borð í kanadískri herflutningavél sem flaug frá Keflavíkurflugvelli áleiðis til Úkraínu í dag. Um að ræða vetrarútbúnað fyrir varnarsveitir Úkraínu og almenning sem er annars vegar afrakstur sjálfboðavinnu þúsunda Íslendinga og hins vegar kaup utanríkisráðuneytisins á margvíslegum vetrarbúnaði. Utanríkisráðuneytið auglýsti fyrr í haust eftir vetrarútbúnaði fyrir varnarsveitir…Lesa meira

true

Vilt þú koma á framfæri efni í Jólablaðið?

Jólablað Skessuhorns kemur út næstkomandi þriðjudag, 20. desember. Vinnsla blaðsins er nú vel á veg komin og verður blaðinu lokað um næstu helgi. Þeir sem vilja koma á framfæri efni eða auglýsingum í Jólablaðið er bent á að tryggja sér pláss í þessari viku, eigi síðar en fyrir hádegi nk. föstudag. Efni sendist á: skessuhorn@skessuhorn.is…Lesa meira

true

Kjarasamningar undirritaðir hjá iðnaðar- og verslunarmönnum

Samflot iðn- og tæknifólks, VR og Landssamband íslenskra verslunarmanna hafa undirritað kjarasamning við Samtök atvinnulífsins. Um er að ræða skammtímasamning sem gildir frá 1. nóvember 2022 og rennur út 31. janúar 2024. „Samningurinn felur í sér umtalsverðar kjarabætur,“ segir í tilkynningu sem var að berast frá ASÍ. Frá og með 1. nóvember 2022 hækka mánaðarlaun…Lesa meira

true

Þriðji bekkur í Brekkó hélt jólaball í Stúkuhúsinu – MYNDBAND

Síðasta fimmtudag fóru nemendur ásamt kennurum í 3. bekk í Brekkubæjarskóla á Akranesi í heimsókn á Byggðasafnið í Görðum og fengu þar jólafræðslu. Krökkunum var fyrst boðið að setjast inn í baðstofuna í stóra safnhúsinu og fengu þar fræðslu hjá Tinnu Royal um ýmsar hefðir og siði sem fylgdu jólunum í gamla daga og gera…Lesa meira

true

Skautasvell sett upp við Grundaskóla

Eldri kynslóðir minnast þess líklega að hafa skautað á svæði sem Grundaskóli á Akranesi stendur á og var oft nefnt „Krúsin.“ Færri vita að á skipulagi skólalóðar Grundaskóla er gert ráð fyrir nýju skautasvelli og nú er framundan mikill frostakafli. Fram kemur á vef Grundaskóla í morgun að von er á skautasvelli við skólann. „Við…Lesa meira

true

Jólanjólar koma fram á Bjarteyjarsandi

Tríóið Jólanjólar býður upp á tónleika á Bjarteyjarsandi í Hvalfirði í léttri aðventustemningu, fimmtudaginn 15. desember kl. 20. Tríóið skipa Helgi Georgsson, Jónína Magnúsdóttir og Linda Guðmundsdóttir. „Við Linda Munda kynntumst í grúppunni Syngjum veiruna burt á Facebook. Sungum svo fyrst saman í Svarthamarsrétt í Hvalfirði og Linda spilaði á nikkuna. Helgi er svo shanghajaður…Lesa meira