Fréttir

true

Kjarasamningar undirritaðir hjá iðnaðar- og verslunarmönnum

Samflot iðn- og tæknifólks, VR og Landssamband íslenskra verslunarmanna hafa undirritað kjarasamning við Samtök atvinnulífsins. Um er að ræða skammtímasamning sem gildir frá 1. nóvember 2022 og rennur út 31. janúar 2024. „Samningurinn felur í sér umtalsverðar kjarabætur,“ segir í tilkynningu sem var að berast frá ASÍ. Frá og með 1. nóvember 2022 hækka mánaðarlaun…Lesa meira

true

Þriðji bekkur í Brekkó hélt jólaball í Stúkuhúsinu – MYNDBAND

Síðasta fimmtudag fóru nemendur ásamt kennurum í 3. bekk í Brekkubæjarskóla á Akranesi í heimsókn á Byggðasafnið í Görðum og fengu þar jólafræðslu. Krökkunum var fyrst boðið að setjast inn í baðstofuna í stóra safnhúsinu og fengu þar fræðslu hjá Tinnu Royal um ýmsar hefðir og siði sem fylgdu jólunum í gamla daga og gera…Lesa meira

true

Skautasvell sett upp við Grundaskóla

Eldri kynslóðir minnast þess líklega að hafa skautað á svæði sem Grundaskóli á Akranesi stendur á og var oft nefnt „Krúsin.“ Færri vita að á skipulagi skólalóðar Grundaskóla er gert ráð fyrir nýju skautasvelli og nú er framundan mikill frostakafli. Fram kemur á vef Grundaskóla í morgun að von er á skautasvelli við skólann. „Við…Lesa meira

true

Jólanjólar koma fram á Bjarteyjarsandi

Tríóið Jólanjólar býður upp á tónleika á Bjarteyjarsandi í Hvalfirði í léttri aðventustemningu, fimmtudaginn 15. desember kl. 20. Tríóið skipa Helgi Georgsson, Jónína Magnúsdóttir og Linda Guðmundsdóttir. „Við Linda Munda kynntumst í grúppunni Syngjum veiruna burt á Facebook. Sungum svo fyrst saman í Svarthamarsrétt í Hvalfirði og Linda spilaði á nikkuna. Helgi er svo shanghajaður…Lesa meira

true

Nýr útipallur við Grundaskóla

Í síðustu viku lauk Lúðvík Helgason, smiður og fyrrum húsvörður í Grundaskóla á Akranesi, við að byggja nýjan og glæsilegan útipall við skólann. Pallurinn er sunnan megin við skólann og mun í framtíðinni hýsa útikennslu og vinnuaðstöðu fyrir nemendur skólans. Einnig er möguleiki á að ganga út úr mötuneytinu og borða úti á góðviðrisdögum. Pallurinn…Lesa meira

true

Snæfell komið í undanúrslit í VÍS bikar kvenna

Það var ljóst síðasta laugardag að fyrstu deildar lið Snæfells er komið í undanúrslit annað árið í röð í VÍS bikar kvenna í körfuknattleik eftir sigur á úrvalsdeildarliði Fjölnis í 8-liða úrslitunum. Það sást strax í leiknum að Snæfellskonur báru enga virðingu fyrir Fjölniskonum þó þær væru einni deild ofar því Snæfell skoruðu fyrstu tíu…Lesa meira

true

Skinkuhorn hlaðvarp – Heiðar Örn Jónsson

Í þessum nýjunda þætti Skinkuhornsins ræðir Gunnlaug við Hvanneyringinn Heiðar Örn Jónsson.Heiðar er giftur Selmu Ágústsdóttur og eiga þau saman þrjú börn: Arnar Inga, Sigurð Örn og Arneyju Söru. Vorið 2020 tók Heiðar við starfi varaslökkviliðsstjóra og eldvarnareftirlitsmanns í slökkviliði Borgarbyggðar og er óhætt að segja að töluverð breyting hafi orðið á slökkviliðinu síðan hann…Lesa meira

true

Jólasveinarnir eru á þvælingi um Stykkishólm

Í ár hefur Þjónustumiðstöðin í Stykkishólmi sett upp jólasveinaratleik. Nú gefst bæjarbúum kostur á að arka um Stykkishólm og leita að jólasveinunum þrettán sem eru þar í ýmsum erindagjörðum fyrir jólin. Sveinarnir munu birtast hér og þar um bæinn, einn af öðrum og hófst ratleikurinn í dag með komu Stekkjarstaurs. Því er um að gera…Lesa meira

true

Háskólar áhugasamir um aukið samstarf

Allir íslensku háskólarnir sóttu um styrki í verkefnið Samstarf háskóla sem Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, setti á laggir í haust. Stefnt er að því að úthluta allt að einum milljarði króna á þessu ári, 2022, og sambærilegri upphæð árið 2023 en með þessu er háskólunum veittur fjárhagslegur hvati til að stofna til…Lesa meira