Fréttir

true

Gjöld fyrir þjónustu við börn hækka hvað mest hjá Borgarbyggð og Akraneskaupstað

Mikill munur er á breytingum á gjöldum fyrir þjónustu við börn milli sveitarfélaga á tímabilinu frá því að lífskjarasamningarnir tóku gildi í byrjun árs 2019 til dagsins í dag. Þetta kemur fram í samantekt Verðlagseftirlits ASÍ sem tók saman breytingar á leikskólagjöldum, skóladagvistunargjöldum og skólamat frá 2019 – 2022 hjá 15 stærstu sveitarfélögum landsins. Gjöld…Lesa meira

true

Fjölskyldutónleikar á sunnudaginn með Dúó Stemmu

Lokatónleikar Kalmans listafélags á þessu ári verða fjölskyldutónleikar sem haldnir verða í Vinaminni á Akranesi á fyrsta sunnudegi í aðventu, 27. nóvember nk. og hefjast kl. 14. Tvíeykið og gleðipinnarnir í Dúó Stemmu, þau Herdís Anna og Steef, bregða á leik og flytja vetrarskemmdegisdagskrá með jólalegu ívafi fyrir alla fjölskylduna. Þau munu leika sér með…Lesa meira

true

Aukin þjónusta innanbæjarstrætó á Akranesi

Fram kemur á heimasíðu Akraneskaupstaðar að ákveðið hafi verið að auka þjónustu innanbæjarstrætó á Akranesi. Auka strætisvagn sem kallaður verður „Leið 2“ mun nú fara stóran hring um bæinn tvisvar á morgnana fyrir skólabyrjun, einn hring í hádegi og tvo hringi eftir að frístundastrætó hefur lokið akstri seinni part dags. Allar ferðir með vagninum eru…Lesa meira

true

Roðagylltur heimur gegn kynbundnu ofbeldi

Soroptimistar um allan heim munu líkt og undanfarin ár slást í för með um 6000 samtökum í 187 löndum sem leidd eru af Sameinuðu þjóðunum til að vekja athygli á kynbundnu ofbeldi gegn stúlkum og konum með þátttöku í 16 daga átakinu #roðagyllumheiminn, #orangetheworld. Roðagyllti liturinn sem er litur átaksins táknar bjartari framtíð án ofbeldis…Lesa meira

true

Límtré Vírnet með gæðavottun og eflir starfsstöðina í Borgarnesi

Vel hefur gengið hjá Límtré Vírneti undanfarið og horft hefur verið til þess að bæta tækjabúnað í öllum deildum fyrirtækisins til að mæta auknum verkefnum og stytta afgreiðslutíma. Fyrirtækið er með starfsstöðvar á þremur stöðum í dag; í Reykjavík, á Flúðum og í Borgarnesi. Í Borgarnesi er framleitt valsað stál og ál til klæðninga utanhúss…Lesa meira

true

Fimmtíu fengu nýliðastuðning í landbúnaði

Matvælaráðuneytið hefur úthlutað nýliðunarstuðningi í landbúnaði fyrir árið 2022 í samræmi við reglugerð um almennan stuðning við landbúnað. Markmiðið með stuðningnum er að aðstoða nýliða við að hefja búskap og auðvelda ættliðaskipti í landbúnaði. Styrkur til einstakra nýliða getur að hámarki numið 9 milljónum króna og allt að 20% af fjárfestingarkostnaði á ári, en heimilt…Lesa meira

true

Bók um Halldór H. Jónsson arkitekt

Hið íslenska bókmenntafélag hefur gefið út bókina Halldór H. Jónsson arkitekt, eftir Björn Jón Bragason og Pétur H. Ármannsson. Bókin er hin veglegasta, um 250 blaðsíður að stærð og prýdd fjölda ljósmynda. Davíð Oddsson skrifar aðfararorð. Í bókinni er farið yfir feril og hönnun Halldórs Hauks Jónssonar (1912-1992) sem var Borgfirðingur og einn af merkustu…Lesa meira

true

Fullt út úr dyrum á Malavímarkaði

Í dag er góðgerðardagur í Grundaskóla til styrktar hjálparstarfi í Malaví. Undanfarna daga og vikur hafa nemendur og starfsfólk skólans undirbúið markaðinn en þar var til sölu fjölbreytilegur varningur. Fullt var út úr dyrum og margir með seðla á lofti til að tryggja sér fljóta og örugga afgreiðslu. Meðal annars var hægt að kaupa handverk…Lesa meira

true

Jólatrénu komið fyrir í Ólafsvík

Fyrsti sunnudagur í aðventu er nk. sunnudag. Af því tilefni verður víða í þéttbýli á Vesturlandi kveikt á ljósum jólatrjáa og fjölskylduskemmtanir verða í boði. Þá eru íbúar margir byrjaðir að lýsa upp skammdegið, ekki veitir af þar sem jörð er auð og dimmt yfir að líta. Í gærmorgun voru starfsmenn Snæfellsbæjar að koma upp…Lesa meira