
Síðastliðið laugardagskvöld var boðað til stórveislu fyrir líkama og sál í félagsheimilinu Brautartungu í Lundarreykjadal. Þar tóku höndum saman Kvæðamannafélagið Snorri og Ungmennafélagið Dagrenning. Á matseðlinum voru svið og meðlæti en að því búnu stigu hagyrðingar á svið og skemmtu gestum. Það voru þau Jón Jens Kristjánsson, Helgi Björnsson, Þórdís Sigurbjörnsdóttir og Gunnar J Straumland…Lesa meira








