
Laust fyrir klukkan 21 í gær voru viðbragðsaðilar; lögregla auk björgunarsveita á Akranesi, Borgarnesi og Borgarfirði kallaðar út með hæsta forgangi til leitar á sjó. Sjósundsmanns var þá saknað úti fyrir Langasandi á Akranesi. Þyrla Landhelgisgæslunnar tók einnig þátt í leitinni. Allir tiltækir björgunarbátar og sæþotur voru settar á flot og leitað fram eftir kvöldi.…Lesa meira








