Strandveiðiafla landað á Arnarstapa á fyrsta degi veiðanna í sumar. Ljósm. glh.

Ekki verði gripið inn í fyrirkomulag strandveiða fyrir þetta tímabil

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Strandveiðar voru stöðvaðar 21. júlí síðastliðinn þegar kvótinn kláraðist. Þá var meira en mánuður eftir af veiðitímabilinu. Matvælaráðherra hefur boðað frumvarp um breytingu á kvótakerfinu þar sem kvótanum yrði deilt milli landssvæða en strandveiðin á Norðurlandi var til dæmis nýlega komin í gang þegar kvótinn var uppurinn.\r\n\r\nEyjólfur Ármannsson, þingmaður Flokks fólksins í Norðvesturkjördæmi, fór í liðnum mánuði fram á að þingmenn Norðvesturkjördæmis funduðu með matvælaráðherra vegna stöðu strandveiða og fór fundurinn fram 3. ágúst síðastliðinn. „Stöðvun strandveiða svo snemma á veiðitímabilinu veldur miklum vonbrigðum. Hún hefur mikil áhrif á sjávarbyggðir í kjördæminu sem verða fyrir búsifjum vegna stöðvunarinnar, sem og strandveiðimenn og fjölskyldur þeirra. Stöðvun strandveiða hefur mikil áhrif á byggð í Norðvesturkjördæmi. Margar þessara byggða eru brothættar byggðir sem treysta á að strandveiðar verði leyfðar út sumarið. Að mínu mati eiga íbúar kjördæmisins, sjávarbyggðanna og strandveiðimenn, það inni hjá okkur þingmönnum kjördæmisins að við fundum með ráðherra um málið og reynum í sameiningu að finna lausn á því,“ segir Eyjólfur um núverandi stöðu málsins.\r\n\r\nAð sögn Stefáns Vagns Stefánssonar, formanns atvinnuveganefndar og 1. þingmanns NV-kjördæmis, komu á fundi þingmannanna fram áhyggjur þeirra um að búið væri að loka á strandveiðar þetta tímabilið og að sá viðbótarkvóti, þúsund tonn sem settur var í pottinn, hefði ekki verið nægjanlegur. Fram komu óskir um frekari inngrip ráðherra til að bæta við strandveiðipottinn. Á fundinum var greint frá sjónarmiðum ráðherra um að ljóst væri að skoða þurfi fyrirkomulagið fyrir næsta ár en ekki verður gripið til frekari aðgerða að hálfu ráðuneytisins nú fyrir þetta veiðitímabil. Í gangi eru starfshópar á vegum ráðuneytisins sem eiga að fara yfir og meta núverandi kerfi, þar með talið strandveiðikerfið með það að markmiði að gera kerfin skilvirkari og ná breiðari sátt um sjávarútveg en er í dag.",
  "innerBlocks": []
}
Ekki verði gripið inn í fyrirkomulag strandveiða fyrir þetta tímabil - Skessuhorn