Fréttir

true

Sigruðu Selfyssinga í æfingaleik

Skagamenn léku æfingaleik í fótbolta á Selfossi síðastliðinn laugardag gegn heimamönnum. Skagamenn sigruðu í leiknum 2:1. Eftir markalausan fyrri hálfleik náðu heimamenn á Selfossi forystunni með marki Arons Einarssonar, en aðeins þremur mínútum síðar jafnaði Gísli Laxdal Unnarsson metin fyrir Skagamenn eftir góðan undirbúning Guðmundar Tyrfingssonar og Hákons Inga Jónssonar. Það var síðan Þórður Þorsteinn…Lesa meira

true

Þingsályktunartillaga um staðsetningu vindorkuvera

Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra, mælti á Alþingi í vikunni sem leið fyrir frumvarpi til breytinga á lögum um rammaáætlun og tillögu til þingsályktunar um staðsetningu vindorkuvera í landslagi og náttúru Íslands. Frumvarpið um breytingar á lögum um verndar- og orkunýtingaráætlun (rammaáætlun) snýr að málsmeðferð virkjunarkosta í vindorku. Verði það að lögum mun vindorkan…Lesa meira

true

Lög um nýsköpun samþykkt á þingi

Ný lög um opinberan stuðning við nýsköpun urðu að lögum í síðustu viku þegar 32 stjórnarliðar greiddu þeim atkvæði. Frumvarpið var lagt fram af Þórdísi Kolbrúnu R Gylfadóttur ráðherra ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunar. Nú hafa verið gerðar umfangsmiklar breytingar á opinberu stuðningsumhverfi nýsköpunar á landinu. Starfsemi Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands verður lögð niður, stofnað verður tæknisetur með…Lesa meira

true

Nýr bátur með heimahöfn á Arnarstapa

Siggi á Bakka SH 228 kom til hafnar í Ólafsvík rétt fyrir helgi en hann er í eigu K. Sigurðssonar ehf. og verður með heimahöfn á Arnarstapa. Báturinn hét áður Gunna Beta ST 60 með heimahöfn á Norðurfirði, en K. Sigurðsson ehf. keypti hann síðla árs 2020. Báturinn er af gerðinni Sómi 1100 og er…Lesa meira

true

Kvennalið ÍA fær framherja frá USA

Bandaríski framherjinn Dana Scheriff hefur gengið til liðs við Knattspyrnufélag ÍA. Hún lék síðast í bandaríska háskólaboltanum með Monmouth Hawk í New Jersey. Hún gerir samning við ÍA út keppnistímabilið sem framundan er. Dana raðaði inn mörkum með Monmouth Hawks og fær nú að spreyta sig með Skagakonum í Lengjudeildinni í sumar.Lesa meira

true

Nýtir gestastofu til fræðistarfa og ræðuskrifa

Sagnfræðingurinn Guðni Th Jóhannesson, forseti Íslands, dvaldi í gestastofu Snorrastofu í Reykholti í síðustu viku. Hann segist reglulega fá þar aðstöðu í fræðimannsíbúðinni og nýti tímann í kyrrð sveitarinnar til að grúska í sagnfræði en einnig til að undirbúa ræðuskrif sem einatt fylgja embættisfærslu forseta. Aðspurður lætur hann vel af aðstöðunni í Reykholti en ekki…Lesa meira

true

Varað við salmonellu í HUSK trefjahylkjum og -dufti

Matvælastofnun varar við neyslu á HUSK Psyllium froskaller og HUSK Psyllium mavebalance trefjahylkjum og -dufti frá fyrirtækinu Orkla Care. Salmonella hefur greinst í vörunum og má rekja þrjú dauðsföll og fjölda sýkinga í Danmörku til neyslu þeirra. Matvælastofnun og heilbrigðiseftirlit sveitarfélaga vinna áfram að öflun upplýsinga um dreifingu til Íslands. Vörurnar hafa verið fluttar til…Lesa meira

true

Tvöfalt meira bóluefni mun berast frá Pfizer

Afhending bóluefna gegn COVID-19 frá bóluefnaframleiðandanum Pfizer eykst jafnt og þétt. Samkvæmt frétt heilbrigðisráðuneytisins er von á samtals 244.000 bóluefnaskömmtum Pfizer til Íslands í maí, júní og júlí. Í dag fékkst staðfest að tvöfalt fleiri bóluefnaskammtar verða afhentir í júlí en áður var vænst. Í maí berast 70.200 bóluefnaskammtar frá Pfizer, í júní 82.000 skammtar og…Lesa meira

true

Opið bréf frá starfsfólki Laugargerðisskóla

Í dag var starfsdagur í Laugargerðisskóla í Eyja- og Miklaholtshreppi og börn því heima. Eins og fram kom í frétt í síðasta Skessuhorni ríkir mikil óvissa um framtíð skólahalds vegna rakavandamála í húsnæði og gruns um heilsuspillandi myglu. Á fundi hreppsnefndar síðastliðinn þriðjudag var ákveðið vegna hækkandi rekstrarkostnaðar við skólann og rakavandamála í húsnæði að…Lesa meira

true

Anna Hildur ráðin fagstjóri skapandi greina á Bifröst

Anna Hildur Hildibrandsdóttir hefur verið ráðin 50% starf við Háskólann á Bifröst þar sem hún mun leiða verkefni tengd skapandi greinum. „Háskólinn á Bifröst hefur boðið upp á nám á meistarastigi í menningarstjórnun (MA og MCM) í meira en 20 ár. Diplómanámi í skapandi greinum var hleypt var af stokkunum haustið 2020 og næsta haust…Lesa meira