Fréttir

true

Barn dróst í veg fyrir bíl með rafhlaupahjóli

Lögreglan á Norðurlandi eystra segir frá því á Facebook síðu sinni að tíu ára barn á rafhlaupahjóli, frá hjólaleigunni Hopp, hafi ekki valdið hjólinu að fullu vegna stærðar og þyngdar þess. Dróst barnið með hjólinu út á götuna og munaði hársbreidd að barnið yrði fyrir bíl. Samkvæmt reglum Hopp þurfa leigutakar að vera 18 ára…Lesa meira

true

Opið fyrir umsóknir til þátttöku á listahátíðinni Plan B

Plan B Art Festival er alþjóðleg listahátíð sem haldin er árlega í Borgarnesi og nágrenni. Hátíðin mun fara fram helgina 5.-8. ágúst næstkomandi og er þetta sjötta árið í röð sem hún fer fram. Opnað hefur verið fyrir umsóknir til þátttöku og geta listamenn sent inn tillögur, ferilmöppur og ferilskrá til miðnættis 4. maí næstkomandi.…Lesa meira

true

Eldur kom upp í nýlegum bíl

Síðdegis í gær kom upp eldur í mælaborði á nýlegum Kia bíl hvar hann stóð í Flóahverfi á Akranesi. Eigandi bílsins hafði nýlega sest upp í bíl sinn og sett í gang þegar hann heyrði smell og eldur gaus upp í mælaborði. Að sögn Jens Heiðars Ragnarssonar slökkviliðsstjóra voru lögreglumenn fyrstir á vettvang og höfðu…Lesa meira

true

Fjallað um Norðvesturkjördæmi á föstudagsfundi Viðreisnar

Viðreisn býður fram fyrir alþingiskosningarnar í haust. Vikulegur föstudagsþáttur flokksins í dag klukkan 12 er helgaður Norðvesturkjördæmi. Yfirskrift þáttarins er: Um hvað verður kosið í Norðvesturkjördæmi? Tækifæri til sóknar. “Oddviti Viðreisnar í kjördæminu fyrir komandi þingkosningar, Guðmundur Gunnarsson, fær til sín góða gesti til þess að ræða það sem brennur á íbúum. Gestir Guðmundar verða…Lesa meira

true

„Tónlistin hefur alltaf fylgt mér“

Í umsögnum um flutning hljómsveitarinnar Vök á lögum sínum á streymisveitum eru skoðanir flestra mjög jákvæðar. Þar líkja margir söng Margrétar Ránar Magnúsdóttur við söng Bjarkar, Sinhéad O´Connor og jafnvel Kate Bush eða sambland af þeim þremur.  Miðað við þessar umsagnir er Skagakonan unga ekki í amalegum félagsskap þar. Þegar íslensku tónlistarverðlaunin voru afhent í…Lesa meira

true

Karfan fer af stað aftur

Domino’s deild kvenna í körfuknattleik fer aftur af stað á miðvikudaginn í næstu viku, 21. apríl. Þá munu Borgnesingar taka á móti Keflvíkingum í Fjósinu og Snæfellingar fá Hauka í heimsókn í Hólminn. Báðir leikir hefjast kl. 19:15. Skallagrímur situr nú í fimmta sæti deildarinnar með tólf stig, átta stigum á eftir Fjölni í sætinu…Lesa meira

true

Styðja við viðburðadagskrá á Vesturlandi

Stjórn Sóknaráætlunar Vesturlands hefur ákveðið að styðja við viðburðadagskrá á Vesturlandi 2021. Þetta verkefni er unnið í framhaldi af svipuðu verkefni sem hleypt var af stokkunum með stuttum fyrirvara á síðasta ári og skipti miklu máli fyrir viðburðahald á Vesturlandi sumarið 2020. „Við trúum því að nú fari að létta „kóvinu“ en vegna Covid-19 hefur…Lesa meira

true

Lækningaleyfi nú veitt ári fyrr

Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur staðfest reglugerðarbreytingu sem felur í sér að almennt og ótakmarkað lækningaleyfi verði veitt að loknu sex ára læknanámi við Háskóla Íslands. Starfsnám sem hingað til hefur farið fram á kandídatsári og verið hluti af grunnnámi lækna verður hér eftir hluti af sérnámi þeirra. Þetta er gert til samræmis við sambærilegar breytingar…Lesa meira

true

Haförn með aðsetur í Norðurárdal – sendir umsögn með videói

Fjölmargir íbúar hafa sent inn athugasemdir vegna fyrirhugaðra breytinga á aðalskipulagi á Grjóthálsi í Borgarbyggð, þar sem landeigendur tveggja jarða stefna að uppbyggingu vindmyllugarðs með allt að sex stórum vindmyllum. Skessuhorni barst afrit af erindi sem Thelma Harðardóttir á Skarðshömrum í Norðurárdal sendi sveitarstjórn vegna athugasemda hennar við fyrirhugaða skipulagsbreytingu. Myndbandið sýnir haförn sem hefur…Lesa meira

true

Ráðherra talar fyrir skýrari umgjörð um eineltismál

Lilja Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra mælti í dag fyrir frumvarpi sem miðar að því að styrkja lagastoð og heimildir fagráðsráðs eineltismála. Í frumvarpinu er meðal annars kveðið á um skýrari heimildir ráðsins til þess að vinna með persónuupplýsingar og heimild til að takmarka aðgang aðila að gögnum ef talið er að slíkt getis skaðað hagsmuni…Lesa meira