Fréttir

true

Fyrsta skóflustunga að fjölbýlishúsi Leigufélags aldraðra á Dalbraut 6

Síðdegis í dag var fyrsta skóflustungan tekin að nýju 31 íbúðar fjölbýlishúsi Leigufélags aldraðra hses. við Dalbraut 6 á Akranesi, á lóðinni þar sem vöruhús ÞÞÞ stóð áður. Það var Bragi Þórðarson heiðursborgari Akraneskaupstaðar sem tók fyrstu stunguna en auk hans bæjarfulltrúar, bæjarstjóri og formaður Leigufélagsins. Í húsinu verður bílakjallari, 22 tveggja herbergja íbúðir og…Lesa meira

true

Aðgerðir á landamærum verða hertar tímabundið

Stjórnvöld kynntu í dag tímabundnar hertar aðgerðir á landamærunum til að sporna við útbreiðslu Covid-19 innanlands. „Markmiðið er að skapa aðstæður sem gera kleift að aflétta sem mest takmörkunum innanlands þrátt fyrir mikla útbreiðslu faraldursins erlendis. Bólusetningu hér á landi miðar vel og eftir því sem hlutfall bólusettra hækkar skapast forsendur til að slaka á…Lesa meira

true

Mjólkursamsalan er nýr styrktaraðili Landsbjargar

Slysavarnafélagið Landsbjörg hefur átt í góðu samstarfi við Mjólkursamsöluna undanfarin ár og notið stuðnings í formi vöruúttekta þegar sjálfboðaliðar félagsins sinna tímafrekum útköllum og fjáröflunum. Nú hafa félögin stigið skrefinu lengra og undirritað samstarfssamning, þar með Mjólkursamsalan bætist við öflugan hóp aðalstyrktaraðila og styður með myndarlegum hætti starf mörg þúsund sjálfboðaliða. „Mikið hefur mætt á…Lesa meira

true

Leggja fram frumvarp sem skyldar komufarþega til dvalar í sóttvarnahúsi

Frumvarp Samfylkingarinnar um breytingum á sóttvarnarlögum sem heimilar heilbrigðisráðherra að skylda komufólk til dvalar í sóttvarnarhúsi var lagt inn til Alþingis um miðjan dag í gær og verður dreift á Alþingi dag. Logi Einarsson er fyrsti flutningsmaður frumvarpsins. Þingflokksformaður Samfylkingarinnar hefur þegar farið fram á það við forseta Alþingis að málið verði tekið fyrir sem…Lesa meira

true

Notuðu hrygningarstoppið til viðgerða

Hrygningarstoppinu lýkur í dag, miðvikudaginn 21. apríl. Mega bátar halda til veiða klukkan 10. Margir bátaeigendur hafa notað stoppið til að ditta að ýmsu í bátum sínum. Eru eigendur Ólafs Bjarnasonar SH þar engin undanteknin en í góða veðrinu fyrir síðustu helgi voru menn frá Smiðjunni Fönix að störfum í Ólafi.Lesa meira

true

Söng Línu fyrir alla sjómenn

Lítil stúlka sat í stýrishúsinu í bátnum hjá föður sínum síðastliðinn laugardag. Fékk hún að hafa síma föður síns á meðan hann gerði bátinn kláran fyrir sumarið. Stúlkan fór að syngja Línu Langsokk, af mikilli innlifun. Allt í einu gall við valdsmannleg rödd í talstöðinni: „Þetta er Landhelgisgæslan! Það er harðbannað að syngja Línu Langsokk…Lesa meira

true

Hefja tengingu veitukerfis við ný fjölbýlishús

Veitur, í samstarfi við Gagnaveitu Reykjavíkur, ætla að leggja veitulagnir austan við Þjóðbraut og að nýjum byggingum við Þjóðbraut 3 – 5 á Akranesi. Áætlaður framkvæmdartími er apríl til nóvember 2021. „Vegna framkvæmdanna má gera ráð fyrir aukinni umferð vinnuvéla og öðru raski. Viðeigandi merkingar verða settar upp á framkvæmdasvæðinu vegna lokana á verktíma. Íbúar…Lesa meira

true

Sjúkrabíll og álft í árekstri

Það atvik varð á Snæfellsnesvegi á Mýrum síðastliðið föstudagskvöld, þegar sjúkrabíll frá Ólafsvík var á heimleið frá því að flytja sjúkling á Akranes, að tvær álftir flugu uppúr vegkantinum rétt fyrir framan sjúkrabílinn og hafnaði önnur þeirra á framrúðu hans.  Gísli Björnsson yfirmaður sjúkraflutninga hjá Heilbrigðisstofnun Vesturlands segir að rúðan á bílnum hafi farið í…Lesa meira

true

Bakslag í baráttuna við veiruna

Þríeykið; Víðir Reynisson, Alma Möller og Þórólfur Guðnason, héldu upplýsingafund í dag þar sem fjallað var um það bakslag sem varð í síðustu viku og um helgina í útbreiðslu Covid-19. Smitum hefur fjölgað mikið af svokölluðu breska afbrigði veirunnar og hlutfallslega margir hafa verið utan sóttkvíar. 27 ný smit voru greind í dag og höfðu…Lesa meira

true

Grjóthrun úr Búlandshöfða

Grjóthrun var í Búlandshöfða um helgina. Ekki féllu stór björg og náði skriðan því ekki inná þjóðveginn. Spýjan fyllir þó vel í rásina sem er ætluð er til að taka við hruni af þessu tagi og ískögglum. Hrun eins og þetta gerast þegar vatn safnast fyrir í berginu og svo frystir. Reglulega hrynja þó einstaka…Lesa meira