Fréttir

true

Ársskýrsla Landmælinga Íslands er komin út

Ársskýrsla Landmælinga Íslands árið 2020 eru komin út á rafrænu formi. Af mörgu er að taka þegar litið er yfir verkefni ársins hjá stofnunni sem er til húsa á Akranesi. Í skýrslunni er að finna gott yfirlit yfir margþætta starfsemi LMÍ á liðnu ári. „Árið 2020 var um margt eftirminnilegt hjá Landmælingum Íslands eins og…Lesa meira

true

Íþrótta- og menningarstarf liggur niðri til 15. apríl

Reglur sem takmarka íþrótta- og menningarstarf tóku gildi á miðnætti, samkvæmt ákvörðun heilbrigðisráðherra. Ákvörðunin er tekin vegna sterkra vísbendinga um aukið Covid-19 samfélagssmit af völdum veiruafbrigðis, sem smitast milli fólks í ríkari mæli en önnur. Nú eru allar inni- og útiíþróttir óheimilar þar sem ekki er hægt að tryggja tveggja metra bil milli fólks eða…Lesa meira

true

Bakvarðasveit heilbrigðisstarfsfólks hefur verið endurvakin

Ákveðið hefur verið að endurvekja bakvarðasveit heilbrigðisþjónustu. Óskað er eftir liðsinni heilbrigðisstarfsfólks sem er reiðubúið að koma tímabundið til starfa með skömmum fyrirvara, hvort heldur í fullt starf, hlutastarf eða í tímavinnu, eftir því sem aðstæður leyfa. Þeir sem voru skráðir í bakvarðasveitina og sjá sér enn fært að veita liðsinni eru beðnir um að…Lesa meira

true

Fáum sama magn bóluefnis og ESB ríki á grundvelli EES samningsins

Í ljósi fréttaflutnings í fjölmiðlum um að framkvæmdastjórn Evrópusambandsins hafi ákveðið að banna útflutning á bóluefni gegn kórónuveirunni til Íslands, auk annarra landa, vilja forsætisráðuneytið og utanríkisráðuneytið árétta eftirfarandi: Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra fékk í gær skýr skilaboð frá Ursulu von der Leyen, forseta framkvæmdastjórnar ESB, um að nýjar reglur ESB um útflutningshömlur á bóluefni muni…Lesa meira

true

Ísland mætir Þýskalandi í kvöld

Íslenska A landslið karla í knattspyrnu mætir Þýskalandi í Duisburg í kvöld, fimmtudag, kl: 19:45. Þetta er fyrsti leikur liðsins í undankeppni fyrri HM 2022 og jafnframt 500. leikur íslenska liðsins frá upphafi. Ísland á að leika þrjá leiki í undankeppninni í mars. Strákarnir mæta Armeníu á sunnudaginn, 28. mars, og Liechtenstein næsta miðvikudag, 31.…Lesa meira

true

Tregðu gætir í kerfinu á fjölgun hjúkrunarrýma í Brákarhlíð

Stjórnendur hjúkrunar- og dvalarheimilisins Brákarhlíðar hafa sent heilbrigðisráðherra ítrekun á erindi sem þeir sendu 10. nóvember síðastliðinn. Í því var óskað eftir að þau fjögur biðrými sem Brákarhlíð var með samkvæmt sérstökum samningi vegna aðstæðna á LSH, yrðu samþykkt varanlega og hins vegar að fimm dvalarrýmum af sautján á heimilinu yrðu samþykkt sem hjúkrunarrými enda…Lesa meira

true

Sameinast um skipulags- og byggingafulltrúa

Eyja- og Miklaholtshreppur, Grundarfjarðarbær, Helgafellssveit og Stykkishólmsbær hafa ákveðið að sameinast um embætti skipulags- og byggingafulltrúa og hafa auglýst starfið laust til umsóknar, meðal annars í Skessuhorni vikunnar. Nýr skipulags- og byggingafulltrúi sveitarfélaganna mun hafa yfirumsjón með eignasjóði, verklegum framkvæmdum og fasteignum. Í fundargerð bæjarráðs Grundarfjarðar kemur fram að hvert sveitarfélag muni áfram vera með…Lesa meira

true

Íslandsmótinu í körfubolta frestað

Í ljósi hertari samkomutakmarkana sem tóku gildi á miðnætti hefur öllum leikjum í Íslandsmótinu í körfubolta verið frestað ótímabundið. Engar ákvarðanir hafa verið teknar um hvort og hvenær þeir leikir sem frestast munu fara fram en það mun skýrast þegar fram líða stundir.Lesa meira

true

Skipulagsstofnun gefur jákvæða umsögn um aukna sorpurðun í Fíflholtum

Skipulagsstofnun hefur gefið út álit sitt á matsskýrslu Sorpurðunar Vesturlands þar sem farið er fram á aukið starfsleyfi til urðunar sorps í Fíflholtum á Mýrum. Núverandi starfsleyfi gerir ráð fyrir að urða megi allt að 15 þúsund tonn á ári, en sótt var um stækkun á því í 25 þúsund tonn. Undanfarin tvö ár hefur…Lesa meira

true

Stórhertar sóttvarnaraðgerðir taka gildi strax á miðnætti

Forsvarsfólk ríkisstjórnarinnar kynnir nú á blaðamannafundi í Hörpu í Reykjavík stórhertar aðgerðir stjórnvalda til að sporna gegn enn frekari útbreiðslu breska afbrigðis kórónaveirunnar. Fjölmargar hömlur taka gildi strax á miðnætti í kvöld. Meðal þess sem ákveðið er er að allt staðnám í grunn,- framhalds- og háskólum leggst af frá og með nú og fram að…Lesa meira