Fréttir

true

Línulegt samtal um Holtavörðulínu

Landsnet hefur hafið undirbúning að mati á umhverfisáhrifum Holtavörðulínu 1 sem mun liggja frá tengivirkinu á Klafastöðum í Hvalfjarðarsveit að nýju tengivirki sem rísa mun á Holtavörðuheiði. Lagning þessarar línu er mikilvægur hlekkur í endurnýjun á núverandi byggðalínu og verður línan 220 kV raflína, hluti af nýrri kynslóð byggðalínu sem liggja mun allt frá Hvalfirði…Lesa meira

true

Stóri fundadagur SSV er í dag

Í morgun fóru fram á Hótel Hamri við Borgarnes aðalfundir Starfsendurhæfingar Vesturlands, Símenntunarmiðstöðvar Vesturlands, Heilbrigðisnefndar Vesturlands og Sorpurðunar Vesturlands. Fundaröðinni lýkur svo með aðalfundi Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi sem hófst klukkan 14. Á dagskrá er skýrsla stjórnar SSV um starfsemi liðins árs, ársreikningar, ákvörðun um laun og þóknun til stjórnar og nefnda, kosningar og önnur…Lesa meira

true

Ungmenni af Skaganum gerðu það gott í keilunni

Um liðna helgi fór fram Íslandsmót ungmenna í keilu. Þar fékk ÍA þrjá Íslandsmeistaratitla en alls tóku níu ungmenni þátt frá Keilufélagi Akraness. Á þessum árstíma koma í ljós framfarir eftir æfingar vetrarins og sáust þær greinilega á þessu móti. Í fimmta flokki hlutu Friðmey Dóra Richter og Haukur Leó Ólafsson viðurkenningu, en í yngstu…Lesa meira

true

Lýsa eindreginni andstöðu við vindmyllugarð á Grjóthálsi

Íbúar á 14 bæjum í Norðurárdal, Þverárhlíð og Stafholtstungum komu saman á íbúafundi að Skarðshömrum í Norðurárdal síðastliðinn föstudag. Tilefnið var að að ræða og bregðast við auglýsingu Borgarbyggðar um skipulags- og matslýsingu vegna aðalskipulagsbreytingar í landi jarðanna Hafþórsstaða í Norðurárdal og Sigmundarstaða í Þverárhlíð. Samþykkt var ályktun þar sem lýst er eindreginni andstöðu við…Lesa meira

true

Sterkar vísbendingar um að ný bylgja Covid-19 sé hafin

Margt bendir til þess að ný bylgja kórónuveirufaraldursins sé að hefjast eftir að fjöldi smita greindist í gær. Flest smit voru í hópi grunnskólabarna í Reykjavík. Nú eru 75 í einangrun með veiruna á landsvísu og 454 í sóttkví. Tveir voru í sóttkví á Vesturlandi á mánudaginn; einn í Stykkishólmi og annar á Akranesi. Innanlandssmitin…Lesa meira

true

Stefnir í baráttu um forystu VG í Norðvesturkjördæmi

Frestur til að tilkynna um framboð til forvals Vinstri hreyfingarinnar græns framboðs í Norðvesturkjördæmi rennur út á skírdag, 1. apríl næstkomandi. Flokkurinn mun viðhafa forval um röðun efstu sæta á framboðslistanum. Verður það rafrænt og fer fram dagana 23.-25. apríl. Kjörstjórn flokksins hefur auglýst að tekið er við ábendingum um frambjóðendur og framboðsyfirlýsingar á netfanginu…Lesa meira

true

Valgarður Lyngdal vill leiða lista Samfylkingarinnar

Valgarður Lyngdal Jónsson, grunnskólakennari og forseti bæjarstjórnar Akraneskaupstaðar, hefur lýst yfir framboði í fyrsta sæti á lista Samfylkingarinnar í Norðvesturkjördæmi fyrir komandi alþingiskosningar. Kjördæmisþing mun koma saman næstkomandi laugardag. Yfirlýsing Valgarðs er svohljóðandi: „Ég heiti Valgarður Lyngdal Jónsson, er grunnskólakennari á Akranesi og forseti bæjarstjórnar Akraneskaupstaðar. Ég býð mig fram í fyrsta sæti á framboðslista…Lesa meira

true

Fengu viðurkenningar fyrir úrvalsmjólk hjá Auðhumlu

Hefð er fyrir því að halda deildarfundi Auðhumlu svf. í marsbyrjun ár hvert. Á síðastliðnu ári var þó beygt út af þeirri venju þar sem fundurinn var haldinn í júníbyrjun vegna Covid-19. Þann 18. mars sl. var deildarfundur Auðhumlu hér á svæðinu haldinn með rafrænu formi.  Svæðið var óvenju stórt sem lá undir fundinum, eða…Lesa meira

true

Barnamenningarhátíð á Akranesi í lok apríl

Unnið er að undirbúningi Barnamenningarhátíðar sem haldin verður á Akranesi nú á vordögum. Frumkvæði að hátíðinn er hjá Hönnu Þóru Guðbrandsdóttur og Köru Sól Samúelsdóttur en þær eru verknámsnemar í Viðburðarstjórnun í Háskólanum á Hólum. Það er Akraneskaupstaður í samstarfi við Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi sem standa fyrir barnamenningarhátíð fyrir börn og ungmenni á Akranesi…Lesa meira