Fréttir

true

Eldgosið á Fagradalsfjalli sést frá Akranesi

Eldgosið á Fagradalsfjalli sást ágætlega frá Akranesi í kvöld. Blaðamaður Skessuhorns tók meðfylgjandi mynd af gosinu af Langasandi. Gera má ráð fyrir að að minnsta kosti tæp 800 ár séu síðan síðast sást til eldgoss frá Akranesi þó gosmekkir frá öðrum eldgosum hafi sést áður, svo sem frá Heimaeyjargosinu og Heklugosinu árið 1947.Lesa meira

true

Sjósund á Akranesi í frönskum fréttum

Franska fréttastofan AFP birti í síðustu viku athyglisvert myndband á Youtube sem fjallar um sjósund á Norðurlöndum en AFP er sögð elsta fréttastofa í heimi, stofnuð árið 1835. Í lýsingu sem fylgir myndbandinu segir, í lauslegri þýðingu blaðamanns: „Á vetri sem einkennist af Covid-19 faraldrinunum leita áhugamenn um vetrarsund víða á Norðurlöndum huggunar í áhugamálinu…Lesa meira

true

Gunnar Örn Jónsson er nýr lögreglustjóri á Vesturlandi

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráðherra hefur skipað Gunnar Örn Jónsson, lögreglustjóra á Norðurlandi vestra, í embætti lögreglustjórans á Vesturlandi frá 7. apríl næstkomandi. Gunnar Örn var frá árinu 2015 yfirmaður ákærusviðs við embætti lögreglustjórans á Suðurlandi og staðgengill lögreglustjóra, þar til að hann tók við embætti lögreglustjóra á Norðurlandi vestra árið 2017. Hann útskrifaðist með embættispróf…Lesa meira

true

Komu áhöfn á lekum báti til bjargar

Klukkan 12:53 í dag var björgunarskipið Björg í Rifi kallað út á hæsta forgangi til aðstoðar við smábát eftir að áhöfnin varð vör við leka um borð. Báturinn var þá staddur rétt utan við höfnina í Rifi. Átta mínútum síðar var Björgin komin á staðinn mönnuð sjö sjálfboðaliðum frá björgunarsveitum frá Snæfellsnesi. Vel gekk að…Lesa meira

true

Landa salti í höfnum á Snæfellsnesi

Saltskipið Wilson Cork kom til hafnar í Ólafsvík síðastliðinn föstudag og lóðsaði björgunarbáturinn Björg það til hafnar. Það voru starfsmenn Ragnars og Ásgeirs sem sáu um uppskipunina en alls var skipað upp 1200 tonnum í Ólafsvík. Fóru 500 tonn í KG fiskverkun í Rifi, 200 tonn í Valafell í Ólafsvík og 500 tonn voru sett…Lesa meira

true

Guðmundur mun leiða lista Viðreisnar

Guðmundur Gunnarsson, fyrrum bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar, mun leiða lista Viðreisnar í Norðvesturkjördæmi fyrir kosningarnar í haust. Í tilkynningu frá uppstillingarnefnd Viðreisnar í Norðvesturkjördæmi kemur fram að nefndin er enn að störfum og verður heildar framboðslisti kynntur síðar. Guðmundur er með meistarapróf í alþjóðaviðskiptum og BA próf í fjölmiðlafræði. Hann starfaði áður við fréttir og dagskrárgerð hjá…Lesa meira

true

Snævar Jón er nýr sóknarprestur í Dölum

Snævar Jón Andrjesson hefur verið ráðinn sóknarprestur í Dalaprestakalli en frá því er greint á vefsíðu Þjóðkirkjunnar. Snævar Jón er 36 ára, fæddur og uppalinn á Siglufirði. Hann lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum á Akureyri árið 2005 og BA gráðu í heimspeki, hagfræði og stjórnmálafræði frá Háskólanum á Bifröst árið 2012. Þá útskrifaðist hann með mag.…Lesa meira

true

Kvenfélagið gaf skólanum Cricut skera

Kvenfélag Ólafsvíkur færði á dögunum Grunnskóla Snæfellsbæjar Cricut skera að gjöf. Það var Elsa Sigurbjörg Bergmundsdóttir, formaður kvenfélagsins, sem afhenti gjöfina og sagði hún við það tækifæri að kvenfélagið vonaðist til þess að skerinn myndi nýtast skólanum sem best. Með Cricut skera er hægt að skera ýmsar myndir, stafi og fleira út í ýmis efni,…Lesa meira

true

Sjálfstæðismenn samþykktu prófkjörsleiðina

Kjördæmisráð Sjálfstæðisflokksins í Norðvesturkjördæmi samþykkti á streymisfundi laugardaginn 20. mars, með tveimur-þriðju greiddra atkvæða, að viðhafa prófkjör við uppröðun á framboðslista flokksins í kjördæminu. Kosið verður dagana 16. og 19. júní í sumar. Prófkjörið fer þannig fram að kjósendur merkja við fjóra frambjóðendur á listanum og verður farið eftir prófkjörsreglum Sjálfstæðisflokksins og þátttaka heimil öllum…Lesa meira

true

Fresta hátíðarhöldum vegna tíu ára afmælis Fornbílafjelags

Allt frá því Covid-19 veiran kom upp hér á landi hefur starfsemi Fornbílafjelags Borgarfjarðar í Brákarey verið í lágmarki. Núverandi reglur um samkomutakmarkanir gilda til 9. apríl en í þeim segir m.a. að hámarksfjöldi einstaklinga í sama rými sé 50 með ákveðnum takmörkunum, bæði í opinberu rými og í einkarými. Þetta gerir það að verkum…Lesa meira