Fréttir

true

Vegurinn lokaður um Kjalarnes

Veginum um Kjalarnes hefur verið lokað vegna umferðaslyss. Þetta kemur fram á heimasíðu Vegagerðarinnar. Vetrarfærð er nú víða um land og hálka eða hálkublettir.Lesa meira

true

Allt að 100 í lyfja- og matvöruverslunum

Heilbrigðisráðherra hefur sett reglugerð um breytingu á reglugerð um takmörkun á samkomum vegna farsóttar, sem veitir lyfja- og matvöruverslunum heimild til að taka á móti að hámarki 100 viðskiptavinum að uppfylltum öðrum skilyrðum reglugerðarinnar, í stað 50 áður. Óbreyttar reglur gilda í öðrum verslunum. Í verslunum gildir eftirfarandi regla við gildistöku breytingareglugerðarinnar: Þrátt fyrir ákvæði…Lesa meira

true

Slæmt veður næstu tvo daga – gul viðvörun fyrir Breiðafjörð

Fremur slæmt veður verður í dag um mestallt landið og gul viðvörun fyrir öll svæði nema suðvestur hornið. Á landinu verður norðan 15-23 m/s vestanlands, en mun hægari vindar eystra. Víða snjókoma eða él, en úrkomulítið suðaustanlands. Norðan 10-18 m/s eftir hádegi, en 15-23 suðaustanlands. Snjókoma verður með köflum eða él um landið norðanvert, en…Lesa meira

true

Aðgerðaáætlun um líknarþjónustu um allt land

Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur sett fram aðgerðaáætlun til fimm ára um líknarþjónustu. Áætlunin byggist á greiningu sem gerð hefur verið á þörf fyrir líknar- og lífslokameðferð og tillögum um bætta þjónustu þar að lútandi í öllum landshlutum. Lagðar eru til aðgerðir til að efla og byggja upp líknarþjónustu á sérgreinasjúkrahúsum, á hjúkrunarheimilum og í þjónustu…Lesa meira

true

Sigríður sýnir Ný verk í Safnahúsi

Ný verk er yfirskrift sýningar myndlistarkonunnar Sigríðar Ásgeirsdóttur sem opnuð verður í Hallsteinssal, í Safnahúsi Borgarfjarðar í Borgarnesi, næstkomandi mánudag. Í tilkynningu frá Safnahúsi segir: „Flest þekkjum við Sigríði fyrir steindu glerverkin hennar en hér sýnir hún verk unnin með akrýl og vatnslit á pappír. Sigríður er Borgfirðingur að ætt og hefur náttúra Íslands, himinn…Lesa meira

true

VÍS bikarinn í körfuknattleik

Dregið var í VÍS bikarnum í körfuknattleik á þriðjudaginn. Skallagrímur og Hamar mætast í forkeppni VÍS bikars karla en liðið sem sigrar mun komast í undankeppnina og mætir þar Sindra í keppni um sæti í 16 liða úrslitum bikarsins. Búið er að draga í 16. liða úrslit VÍS bikars kvenna. Þar mun Skallagrímur mæta Valskonum…Lesa meira

true

Einfaldara ferli að afskrá bifreiðar

Undanfarið hefur fjöldi stafrænna umsókna og ferla bæst við vefinn Ísland.is, upplýsinga- og þjónustuveitu opinberra stofnana á Íslandi. Þeirra má meðal má nefna að nýverið urðu skilavottorð vegna úr sér genginna ökutækja stafræn sem felur í sér mikinn sparnað á tíma almennings, fyrirtækja og stofnana. Ætla má að breytingarnar spari um 10-12 þúsund bílferðir á…Lesa meira

true

Kom drekkhlaðinn að landi með boltaþorsk

Eymar Einarsson útgerðarmaður og menn hans á Ebba AK gera það ekki endasleppt á þorskveiðunum. Hafa þeir fiskað afar vel í netin í róðrum í mars, en metið var þó kirfilega slegið í gær þegar þeir komu að landi með fulllestaðan bát af stórþorski, alls 22,6 tonn. Aflann fengu þeir í net á fyrrum siglingarleið…Lesa meira

true

Snæfríður endurvakin á Akranesi

Í gær var haldinn aðalfundur Snæfríðar – félags ungra jafnaðarmanna á Akranesi, og jafnframt endurvakið félagið eftir margra ára dvala. Ný stjórn var mynduð með Jón Hjörvar Valgarðsson sem forseta. Aðrir í stjórn eru Guðjón Snær Magnússon, Sara Rut Heimisdóttir, Árni Þórir Heiðarsson og Benedikt Júlíus Steingrímsson. „Félagið heitir Snæfríður eftir Snæfríði Íslandssól úr Íslandsklukku…Lesa meira

true

Fermingar með breyttu sniði

Í ljósi hertra sóttvarnaraðgerða og samkomutakmarkana hefur fyrirkomulagi fermingarathafna í Akraneskirkju næstu helgar verið breytt. Þar sem nýjar takmarkanir gera ráð fyrir að hámarki 30 manns í athöfnum hjá trú- og lífsskoðunarfélögum hefur verið ákveðið að fjölga athöfnum og fækka fermingarbörnum í hverri athöfn. Hvert fermingarbarn á Akranesi má hafa fjóra gesti í athöfninni. Þau…Lesa meira