Fréttir

true

Slæm veðurspá síðdegis og í kvöld

Gert er ráð fyrir hvassviðri samhliða éljagangi eða hríð á stórum hluta landsins þegar líður á daginn og framundir morgun. Appelsínugul viðvörun er fyrir allt sunnan- og vestanvert landið vegna norðaustan hvassviðris og hríðarveðurs frá því um nónbil í dag og þar til í fyrramálið. Því er spáð að verulega hvessi síðdegis í dag og…Lesa meira

true

Bjarni sækist eftir 1. sæti í forvali VG í Norðvesturkjördæmi

„Ég gef kost á mér til að leiða framboðslista VG í Norðvesturkjördæmi fyrir komandi alþingiskosningar í 1. sæti og óska eftir stuðningi til þess í forvali hreyfingarinnar sem framundan er,“ segir í yfirlýsingu frá Bjarna Jónssyni fiskifræðingi og varaþingmanni í kjördæminu. „Ég tel mig hafa víðtæka reynslu og þekkingu á málefnum landsbyggðarinnar og vil gjarna…Lesa meira

true

Nýja deildin fær nafn eftir lýðræðislega kosningu barna í Uglukletti

Leikskólinn Ugluklettur í Borgarnesi hefur frá opnun árið 2007 verið þriggja deilda leikskóli. Nú hefur orðið breyting þar á og bættist fjórða deildin við núna í mars þegar ný deild var opnuð. Börnum hefur fjölgað jafnt og þétt í sveitarfélaginu frá haustinu 2020, það mikið að leikskólinn þurfti að setja börn á biðlista. Til þess…Lesa meira

true

Fermingar í Borgarnesi á sunnudaginn

Í vikunni tóku gildi hertar sóttvarnaraðgerðir og samkomutakmarkanir. Samkvæmt nýjum reglum er gert ráð fyrir að hámarki 30 manns í athöfnum hjá trú- og lífsskoðunarfélögum. Í ljósi þessa verða fermingar á sunnudaginn, 28. mars, í Borgarnesi með breyttu sniði. Í staðinn fyrir eina fermingarguðsþjónustu verða þær tvær, hvor með fimm fermingarbörnum. Þá geta aðeins fjórir…Lesa meira

true

Í Flóahverfi á Akranesi verða vistvænir iðngarðar

Skipulags- og umhverfisráð Akraneskaupstaðar hefur falið bæjarstjóra ásamt skipulagsfulltrúa bæjarins að hafa samráð við nokkra aðila varðandi þróun og framtíðarhugmyndir um iðnaðarsvæðið Flóahverfi á Akranesi. Að sögn Sævars Freys Þráinssonar bæjarstjóra hefur bærinn nýlega sett af stað vefinn www.300akranes.is sem ætlaður er til markaðssetningar á atvinnu- og íbúðarhúsnæði í bæjarfélaginu. Tilganginn með vefnum 300akranes.is segir…Lesa meira

true

Nýr fjarskiptasæstrengur til Írlands

Fjármögnun á nýjum fjarskiptasæstreng milli Íslands og Írlands hefur verið tryggð með aðkomu ríkisins. Í tilkynningu frá fjármálaráðuneytinu kemur fram að ráðgert sé að taka strenginn í notkun fyrir árslok 2022, en honum er ætlað að stórauka öryggi í fjarskiptasamböndum Íslands við Evrópu í samræmi við stefnumótun ríkisstjórnarinnar í fjarskiptum fram til ársins 2033. Strengurinn,…Lesa meira

true

Barnamenningarhátíð frestað til hausts

Eins og við sögðum frá hér á vefnum og í Skessuhorni í vikunni, stóð til að halda Barnamenningarhátíð á Akranesi í lok apríl. Hátíðinni hefur nú, vegna samkomutakmarkana, verið frestað fram í september.Lesa meira

true

Menningarstefna Vesturlands í mótun – kynningarfundir framundan

Vinna við mótun menningarstefnu Vesturlands 2021-2025 er nú í fullum gangi. Verkefnið er á vegum Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi (SSV) en sérstakt fagráð, samsett af aðilum tilnefndum af sveitarfélögunum á Vesturlandi, auk fjögurra fagaðila úr menningartengdum atvinnugreinum hefur verið skipað til að stýra stefnumótuninni. Til viðbótar við þann hóp hefur öflugum aðilum sem starfa á…Lesa meira

true

Búið að opna á Kjalarnesi

Búið er að opna veginn milli Þingvallavegar og Esjumela á Kjalarnesi, sem var lokaður vegna umferðaróhapps fyrr í dag. Slæmt skyggni er á Kjalarnesi og erfið akstursskilyrði. Þá segir í tilkynningu frá Vegagerðinni að vetrarfærð sé um allt land.Lesa meira