Fréttir

true

Grunnur að fjölbýlishúsi í Grundarfirði

Góður gangur er í framkvæmdum við Grundargötu í Grundarfirði en þar mun á næstu misserum rísa níu íbúða fjölbýlishús. Verktakar hafa lokið við að grafa fyrir húsinu og nú er kominn myndarlegur grunnur sem húsið mun standa á. Húsið er við Grundargötu 12-14 og í því verða þrjár stúdíó íbúðir, fjórar tveggja herbergja íbúðir og…Lesa meira

true

Viðurkenningar fyrir störf á sviði sjó- og strandminja

Síðastliðinn mánudag veitti Samband íslenskra sjóminjasafna þremur valinkunnum mönnum viðurkenningu fyrir farsæl störf á sviði sjó- og strandminja um áratuga skeið. Þessir menn hafa starfað hver á sínu sviði en allir skilað sérlega drjúgu og merku lífsverki. Þetta eru Hafliði Aðalsteinsson, Þór Magnússon og Geir Hólm. Hafliði Aðalsteinsson hefur verið starfandi tréskipasmiður alla tíð, lærði…Lesa meira

true

Magnea Guðlaugs ráðin þjálfari meistaraflokks kvenna hjá ÍA

Knattspyrnufélag ÍA hefur ráðið Magneu Guðlaugsdóttur sem þjálfara meistaraflokks og 2. flokks kvenna í knattspyrnu. Magnea hefur mikla reynslu af þjálfun og hefur þjálfað í öllum aldursflokkum kvenna hjá ÍA og einnig í yngri flokkum karla. Magnea er margreynd knattspyrnukona og lék alls 119 leiki með ÍA í meistaraflokki og skoraði í þeim átta mörk.…Lesa meira

true

Stofnaði gluggaþvottafyrirtæki á Akranesi

Eitt nýjasta fyrirtækið í flóru fyrirtækja á Vesturlandi nefnist Fagleg þrif og tekur það að sér gluggaþvott. Eigandi þess og eini starfsmaður er Przemyslaw Oskar Dobrzyski, en hann flutti ásamt konu sinni frá Kraká í Póllandi fyrir þremur árum. Sjálfur segist hann af praktískum ástæðum nota millinafnið Oskar hér heima þar sem fyrra nafn hans…Lesa meira

true

„Mikil reynsla fyrir okkar ungu leikmenn“

Körfuknattleikslið ÍA hefur hafið leik í 1. deild karla þennan veturinn og leikið þrjá leiki í deildinni og tapað þeim öllum. Skessuhorn heyrði í Jóni Þór Þórðarsyni, formanni körfuknattleiksdeildarinnar, eftir fyrsta leikinn og spurði hann fyrst hvernig undirbúningstímabilið hefði gengið fyrir sig. Jón Þór segir að það hafi verið stutt og snaggaralegt og hann ráðleggi…Lesa meira

true

Dalamenn sigursælir í glímu

Glímufélag Dalamanna var sigursælt á Haustmóti Glímusambands Íslands sem fram fór á Blönduósi síðastliðinn sunnudag en þetta var fyrsta mót keppnistímabilsins. Samtals voru 42 keppendur skráðir, keppt var í 17 flokkum og glímdar alls 150 glímur. Glímufélag Dalamanna átti þar tíu keppendur í barna-, unglinga- og fullorðins flokkum. Þórarinn Páll Þórarinsson sigraði í flokki 12…Lesa meira

true

Kynntu hugmyndir um stofnun LazyTown studio í Borgarnesi

Í gærkveldi héldu forsvarsmenn verkefnisins um uppbyggingu LazyTown studio í Borgarnesi opinn kynningarfund í Hjálmakletti fyrir íbúa um hvar verkefnið er statt og næstu skref í því. Framsögu höfðu Helga Halldórsdóttir hvatamaður að verkefninu, Margrét Katrín Guðnadóttir kaupfélagsstjóri, Magnús Scheving frumkvöðull og Páll Kr Pálsson verkefnisstjóri. Eftir framsögu þeirra var opnað fyrir fyrirspurnir úr sal.…Lesa meira

true

Verðlaunaðir á lokahófi Skallagríms

Meistaraflokkur Skallagríms í knattspyrnu hélt lokahóf sitt laugardaginn 24. september síðastliðinn á B59 í Borgarnesi þar sem keppnistímabilið 2021 var gert upp. Viktor Már Jónasson var valinn leikmaður tímabilsins af liðsfélögum sínum en hann var jafnframt markahæsti leikmaður liðsins með sjö mörk í 13 leikjum. Efnilegasti leikmaðurinn var valinn Arnar Eiríksson sem er fæddur árið…Lesa meira

true

Bekkur gefinn til minningar um Björgu og Alexander

Þann 26. september síðastliðinn færðu börn og tengdabörn Bjargar H. Finnbogadóttur og Alexanders Stefánssonar Snæfellsbæ bekk að gjöf til minningar um foreldra þeirra en þennan dag voru 100 ár liðin frá fæðingu Bjargar. Hún var fædd á Búðum en flutti með foreldrum sínum til Ólafsvíkur árið 1926 þegar faðir hennar keypti verslunarhúsin þar. Alexander fæddist…Lesa meira

true

Stutt undirbúningstímabil hjá Skallagrímsmönnum

Tímabilið er farið af stað hjá Skallagrímsmönnum í fyrstu deild körfuknattleiks karla. Þeir hafa nú þegar spilað þrjá leiki, fyrst gegn Álftanesi, svo gegn Fjölni og núna síðast við Hamar en liðið hefur þurft að sætta sig við tap í öllum þessum viðureignum. Atli Aðalsteinsson stýrir liðinu og er bjartsýnn á tímabilið fram undan, þrátt…Lesa meira