Fréttir

true

Skotfimi er mikil tækniíþrótt

Stefán Gísli Örlygsson, félagi í Skotfélagi Akraness, varð í sumar Íslandsmeistari í haglabyssugreininni Skeet, eða leirdúfuskotfimi, á vegum Skotíþróttasambands Íslands. Mótið fór fram á velli Skotíþróttafélags Suðurlands við Þorlákshöfn dagana 7. til 8. ágúst. Á mótinu voru allir bestu skotmenn landsins mættir. Í úrslitunum skaut Stefán Gísli 55 af 60 dúfum mögulegum sem tryggði honum…Lesa meira

true

„Framtíð Grundaskóla er björt“

Grundaskóli á Akranesi fagnaði 40 ára starfsafmæli miðvikudaginn 6. október síðastliðinn og ákvað blaðamaður Skessuhorns að kíkja á afmælisbarnið í tilefni dagsins. Grundaskóli var í upphafi stofnaður í anda nýrra hugmynda og var skólinn oft kenndur við umræðu um svokallað opið skólastarf. Slíkir skólar voru þekktir fyrir að brjóta upp bekkjastarf og halda teymisvinnu á…Lesa meira

true

Hugurinn stefnir á atvinnumennsku í samkvæmisdönsum

Skagamærin Rósa Kristín Hafsteinsdóttir og Hafnfirðingurinn Aron Logi Hrannarsson náðu glæsilegum árangri á Opna breska meistaramótinu í samkvæmisdönsum, sem haldið var í Blackpool á Englandi á dögunum. Náðu þau 5. sæti í flokki undir 21 árs í Latin dönsum sem verður að teljast mjög góður árangur, en þau Aron Logi og Rósa Kristín eru einungis…Lesa meira

true

„Munum að sjálfsögðu leggja okkur fram“

Miklar breytingar hafa orðið á kvennaliði Snæfells úr Stykkishólmi í körfuknattleik fyrir þetta tímabil. Gamli leikmannakjarninn er nánast hættur og ýmis óvissa hefur verið varðandi það hvort Snæfell yrði einfaldlega með í vetur. Snæfell ákvað eftir síðasta tímabil að færa liðið niður í 1. deildina, setja af stað þriggja ára áætlun og hefja uppbyggingarstarf sem…Lesa meira

true

Byrjað að steypa á Laugarbrautinni

Frá því í byrjun júní hafa staðið yfir framkvæmdir á Laugarbraut á Akranesi. Akraneskaupstaður var að endurnýja gangstéttir við götuna og samhliða því voru Veitur ohf að skipta um vatns- og raflagnir. Verktaki endurnýjunar gangstétta er Skóflan og verktaki lagnavinnu er Þróttur. Á mánudaginn voru steyptar gangstéttir mestan hluta öðrum megin á Laugarbrautinni alveg að…Lesa meira

true

Reglugerð um komandi loðnuvertíð

Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra hefur í samræmi við ráðgjöf Hafrannsóknastofnunar undirritað reglugerð um veiðar á loðnu á komandi vertíð. Alls heimilar reglugerðin veiðar íslenskra skipa á allt að 662.064 tonnum sem gefur væntingar um að komandi vertíð verði sú stærsta í tæp 20 ár. Nýverið kynnti Hafrannsóknastofnun ráðgjöf fyrir loðnuveiðar vertíðarinnar 2021-2022 upp…Lesa meira

true

Fyrirtækið Algó ehf. aflar sæmetis með sæslætti

Vill breyta mataræði Íslendinga til góðs Fyrirtækið Algó ehf. sótti nýlega um heimild til öflunar og sjálfbærrar nýtingar sjávarþörunga á strandsvæði innan netalaga í umdæmi Akraneskaupstaðar. Skipulags- og umhverfisráð tók jákvætt í erindið og samþykkti að tilraunir til eins árs yrðu gerðar í nánu samráði við Akraneskaupstað. Tilgangur félagsins, Algó ehf, er að þróa starfsemi…Lesa meira

true

Skrifstofa Skessuhorns straum- og símasambandslaus eftir hádegi í dag

Veitur hyggjast í dag endurnýja rafmagnstengingar að húsinu Garðabraut 2A á Akranesi. Af þeim sökum verða skrifstofur Mannvits og Skessuhorns, auk íbúða á efri hæðum hússins, straumlausar frá klukkan 13-17 í dag, miðvikudaginn 13. október. Af þessum sökum verður ekki hægt að hringja í aðalnúmer skrifstofu Skessuhorns á þessum tíma. Hægt er að ná í…Lesa meira

true

Fjögur sveitarfélög á Snæfellsnesi í samstarf um umhverfis- og skipulagsmál

Fjögur sveitarfélög af fimm á Snæfellsnesi; Eyja- og Miklaholtshreppur, Grundarfjarðarbær, Helgafellssveit og Stykkishólmsbær, hafa nú tekið höndum saman um uppbyggingarverkefni innan stjórnsýslunnar með stofnun nýs sameiginlegs sviðs umhverfis- og skipulagsmála. Tveir starfsmenn hafa verið ráðnir. Kristín Þorleifsdóttir er nýr sviðsstjóri umhverfis- og skipulagsmála og verður jafnframt skipulagsfulltrúi sveitarfélaganna fjögurra. Þá hefur Fannar Þór Þorfinnsson verið…Lesa meira

true

Snæfellsstúlkur sigruðu Stjörnuna

Snæfell tók á móti Stjörnunni í 1. deild kvenna í körfuknattleik í Stykkishólmi í gærkvöldi. Heimastúlkur byrjuðu af miklum krafti og voru komnar í 9:1 eftir rúmlega þriggja mínútna leik. Stjörnustúlkur gáfust þó ekki upp við þetta áhlaup, náðu að halda í við Snæfell og munurinn aðeins þrjú stig eftir fyrsta leikhluta, 19:16.  Í öðrum…Lesa meira