Fréttir

true

Meistaradeild Sósíalista birtir stefnuyfirlýsingu

„Meistaradeild Sósíalista (55 ára og eldri) hafnar alfarið hugmyndafræði nýfrjálshyggjunnar sem með kapítalískri stefnu sinni leiðir til arðráns á þeim sem lokið hafa starfsævinni og dæmir um leið eldra fólk til fátæktar með skerðingum á framfærslu. Þetta hefur verið gert samhliða orðaflaumi blekkinga og fyllibyttuloforða íslenskra stjórnmálaflokka um úrbætur, sérstaklega í aðdraganda kosninga.“ Þannig hljómar…Lesa meira

true

Framkvæmdir á Arnarstapa á Snæfellsnesi

Nú á haustdögum hefjast framkvæmdir við aðkomu og skipulag umhverfis styttuna af Bárði Snæfellsás á Arnarstapa. Frá þessu segir á vef Snæfellsbæjar en framkvæmdin felst í að laga og snyrta umhverfið við styttuna með hellulögn, lagningu göngustígar að bílastæði sem einnig verður hellulagt og gerð dvalarsvæðis með leiktækjum og bekkjum við göngustíginn. Um fyrsta áfanga…Lesa meira

true

Stjórn KSÍ biður þolendur afsökunar – formaðurinn hættur

„Kæru þolendur, við í stjórn Knattspyrnusambands Íslands trúum ykkur og biðjum ykkur innilega afsökunar. Við vitum að við sem ábyrgðaraðilar höfum brugðist ykkur og við ætlum okkur að gera betur. Stjórnin hefur fundað undanfarna daga um þær alvarlegu ásakanir sem beinst hafa að sambandinu að undanförnu um þöggun kynferðisbrota. Við lítum málið afar alvarlegum augum.…Lesa meira

true

Hvalreki í Kjaransstaðafjöru

Dauðan hval rak á land í fjörunni fyrir landi Kjaransstaða í Hvalfjarðarsveit á föstudag eða laugardag. Búið er að skera á kvið hvalsins, líklega til að koma í veg fyrir að búkurinn tútni út og springi. Hvalurinn er rúmlega 12 metra langur og samkvæmt óstaðfestum upplýsingum er um langreyði að ræða, fremur en hrefnu. Landeigendur…Lesa meira

true

Einar Örn Íslandsmeistari í bekkpressu

Íslandsmeistaramót í bekkpressu og klassískri bekkpressu hjá Kraftlyftingasambandinu fóru fram í gær og var það Stjarnan í Garðabæ sem annaðist mótshaldið. Fyrst var keppt í búnaði og urðu stigahæst þau Einar Örn Guðnason á Akranesi og Þóra Kristín Hjaltadóttir frá Massa. Einar Örn er því Íslandsmeistari í -120kg flokki með og án búnaðar. Í klassískri…Lesa meira

true

Grafa sökk í mýri á Mýrunum

Síðastliðinn föstudagsmorgun voru menn frá verktakafyrirtæki að plægja niður ljósleiðara í Kolviðarsundi, sem er mýrlendi í landi Miðhúsa í Álftaneshreppi á Mýrum. 24 tonna grafa fylgdi í kjölfar jarðýtu sem plægt hafði niður strenginn og var hlutverk gröfumannsins að lagfæra plógfarið. Ekki vildi betur til en svo að grafan sökk og það býsna hratt. Einungis…Lesa meira

true

Tvennir jazztónleikar á Akranesi í vikunni

Framundan eru tvennir tónleikar í Vinaminni á Akranesi. Kalman listafélag nýtur góðs af Jazzhátíð Reykjavíkur sem er nýhafin og mun teygja anga sína á Akranes. Fyrri tónleikarnir eru mánudaginn 30. ágúst kl. 20. Þar er á ferðinni Oddrún Lilja Jónsdóttir, sem kemur hér fram undir nafninu LILJA. Hún er íslensk/norsk tónlistarkona sem mestan part ævinnar…Lesa meira

true

Litagleði á leiksvæðinu við Grundaskóla

Blaðamaður Skessuhorns skellti sér út í rokið á Skaganum í dag og fór í smá hjólatúr. Það var ansi hressandi að fá smá loft í lungun og ekki versnaði það þegar hjólað var fram hjá Grundaskóla, þar sem allt var í regnbogans litum og lýsti nánast upp drungann sem læddist aftan að blaðasnápnum. Þar er…Lesa meira

true

Móta framtíðarstefnu Menntaskóla Borgarfjarðar

Síðastliðið vor fékk Menntaskóli Borgarfjarðar til liðs við sig einstaklinga úr atvinnulífinu og menntamálum til að mynda starfshóp sem hafði það hlutverk að skoða hvernig nám og kennsluaðferðir gætu undirbúið unga fólkið fyrir framtíðina. Ætlunin var að nota niðurstöðurnar til að leggja grunn að og móta tillögur fyrir skólaþróun Menntaskóla Borgarfjarðar í þeim tilgangi að…Lesa meira

true

Nýr göngustígur tengir Hellissand við Rif og Ólafsvík

Framkvæmdir hófust fyrir nokkrum dögum við gerð göngustígs neðan við Keflavíkurgötu á Hellissandi sem tengir Hellissand við Rif og Ólafsvík og er alls um níu kílómetra langur. Á mánudag var lokið við að malbika um 300 metra göngustíg fyrir neðan Keflavíkurgötu sem lengir stíginn inn í þéttbýlið á Hellissandi og meðfram strandlínunni. Stígurinn verður síðan…Lesa meira