Fréttir

true

Nokkrar veiðiár að bæta sig á milli ára

„Við vorum í Flókadalsá og fengum þrjá laxa en hann var tregur að taka hjá okkur, 20 stiga hiti,“ sagði veiðimaður sem var að hætta í Flókadalsá í Borgarfirði undir lok síðustu viku. Áin hafði þá gefið 166 laxa.  Skoðum aðeins stöðuna á svæðinu eins og hún var fyrir helgi. Einhverjar ár hafa bætt sig…Lesa meira

true

Aldarafmæli Péturs Péturssonar fyrrverandi alþingismanns úr Hnappadal

„Saga hans er í senn saga einstaklings sem haslar sér völl og saga samfélagsbreytinga,“ skrifar Magnús Pétursson meðal annars í formála bókar sinnar um lífshlaup föður síns: Lífshlaup athafnamanns, sem kom út á síðasta ári. Pétur Pétursson, fyrrum alþingismaður Alþýðuflokksins og athafnamaður, hefði fagnað aldarafmæli sínu 21. ágúst síðastliðinn. Til stóð að afkomendur Péturs myndu…Lesa meira

true

“Ætlum okkur varnarsigur í næstu kosningum”

Fyrir kosningarnar 25. september næstkomandi býður Miðflokkurinn fram lista í öllum kjördæmum. Hér í Norðvesturkjördæmi skipa efstu sætin tveir þeir sömu og fyrir kosningarnar fyrir fjórum árum þegar flokkurinn vann stórsigur. Bergþór Ólason er nú sem fyrr oddviti listans og Sigurður Páll Jónsson skipar annað sætið. Þeir hlutu báðir kosningu síðast; Bergþór sem kjördæmakjörinn en…Lesa meira

true

Rafræn viðhorfskönnun um hönnun Langasandssvæðisins

Akraneskaupstaður ákvað árið 2020 að efna til hugmyndasamkeppni um skipulag og hönnun Langasandssvæðisins á Akranesi í samstarfi við FÍLA, Félag íslenskra landslagsarkitekta. Markmiðið með samkeppninni var að fá hugmyndir um framtíðarskipulag svæðisins í heild sem tengir m.a. strandsvæði, skólasvæði, framtíðar uppbyggingarreit og hafnarsvæðið. Svæðið sem um ræðir nær frá Innnesvegi til norðausturs, Langasandi og Leyni…Lesa meira

true

Ný reglugerð um sóttkví og einangrun og sýnatöku við landamæri

Ný reglugerð um sóttkví og einangrun og sýnatöku við landamæri Íslands vegna COVID-19 hefur tekið gildi. Með reglugerðinni er einstaklingum sem eru metnir minna útsettir fyrir Covid-19 veirunni heimilað að sæta smitgát í stað sóttkvíar í samræmi við endurskoðaðar leiðbeiningar sóttvarnalæknis. Einstaklingur sem viðhefur smitgát skal takmarka samneyti við aðra eins og hægt er, og…Lesa meira

true

Vel heppnaður Einkunnardagur

Ferðafélag Borgarfjarðarhéraðs, Skógræktarfélag Borgarfjarðar og Umsjónarnefnd Einkunna efndu til sameiginlegs átaksverkefnis, Einkunnardags, síðastliðinn laugardag. Um þrjátíu sjálfboðaliðar á öllum aldri tóku til hendinni í fólkvanginum Einkunnum rétt fyrir ofan Borgarnes og var miklu komið í verk. Vinnugleði sjálfboðaliða einkenndi hópinn sem var saman kominn til að hlúa að svæðinu. Helstu verkefni voru að endurstika gönguleiðina…Lesa meira

true

Píratar birta lista sinn í Norðvesturkjördæmi

Eftirfarandi er framboðslisti Pírata í NV kjördæmi fyrir alþingiskosningarnar 25. september næstkomandi: Nr. 1 Magnús Davíð Norðdahl, Reykjavík, mannréttindalögmaður Nr. 2. Gunnar Ingiberg Guðmundsson, Snæfellsnesi, strandveiðisjómaður Nr. 3. Pétur Óli Þorvaldsson, Suðureyri, verslunarmaður Nr. 4. Sigríður Elsa Álfh.d, Ísafirði, sjúkraliðanemi Nr. 5. Ragnheiður Steina Ólafsdóttir, Borgarnesi, öryrki Nr. 6. Ólína Björk Hjartardóttir, Sauðárkróki, atvinnurekandi Nr.…Lesa meira

true

Tekið verður við allt að 120 afgönskum flóttamönnum

Ríkisstjórn Íslands samþykkti á fundi sínum í morgun tillögur flóttamannanefndar vegna þess ófremdarástands sem hefur skapast í Afganistan í kjölfar valdatöku talibana. Með tillögum flóttamannanefndar verður stutt við þær fjölskyldur sem eru hér á landi og eiga rétt á sameiningu við fjölskyldumeðlimi í Afganistan. Þá verður lögð áhersla á að aðstoða einstaklinga sem eru í…Lesa meira

true

Frjálslyndi lýðræðisflokkurinn birtir framboðslista sinn

Framboðslistar Frjálslynda lýðræðisflokksins hafa nú verið birtir í öllum landsbyggðarkjördæmum, en listar fyrir Reykjavíkurkjördæmin verða birtir í næstu viku. Flokkurinn hefur fengið úthlutað listabókstafnum O. Listi flokksins í Norðvesturkjördæmi er þannig: Nr. 1 Sigurlaug Guðrún Inga Gísladóttir, verslunarmaður Nr. 2 Jóhann Bragason, rafvirki Nr. 3 Hafþór Magnússon, sjómaður Nr. 4 Jón Sigurðsson, smiður Nr. 5…Lesa meira

true

Skallagrímur semur við þrjá leikmenn

Penninn var á lofti í í herbúðum Skallagríms í Borgarnesi í liðinni viku. Samningar voru endurnýjaðir við tvo leikmenn, þá Davíð Guðmundsson og Benedikt Lárusson, sem ætla að taka slaginn með meistaraflokki karla á komandi vetri. Þar að auki var Arnar Smári Bjarnason fenginn aftur í liðið fyrir komandi vetur en hann hélt í víking…Lesa meira