Fréttir

true

Skellur hjá Skallagrími á Valsvellinum

Skallagrímur úr Borgarnesi mætti KH (Knattspyrnufélaginu Hlíðarenda) í 4. deildinni á laugardaginn og fór leikurinn fram á Valsvellinum. Skallagrímsmenn fengu skell og töpuðu leiknum 2:9. Ernir Daði Arnberg Sigurðsson varð fyrir því óhappi að koma KH yfir með sjálfsmarki á 20. mínútu, en mínútu síðar jafnaði Viktor Ingi Jakobsson metin fyrir Skallagrím. En aðeins þremur…Lesa meira

true

Lýsir áhyggjum af umferðaröryggi á Arnarstapa

Jón Jóel Einarsson, ferðaþjónustubóndi á Arnarstapa á Snæfellsnesi, hefur sent opið bréf til Vegagerðarinnar þar sem hann lýsir þungum áhyggjum af umferðaröryggi á Arnarstapa. Áður hafði hann sömuleiðis lýst áhyggjum sínum við bæjaryfirvöld í Snæfellsbæ. „Ég leyfi mér að fullyrða að Arnarstapi sé fjölsóttasti ferðamannastaður á Snæfellsnesi yfir sumartímann, jafnvel á öllu Vesturlandi. Gott væri…Lesa meira

true

Mikið fjaðrafok þegar hani gengur laus

Undanfarna daga hefur myndarlegur hani, af íslensku landnámshænsnakyni, verið á ferðinni í skógræktinni á Akranesi og í jaðri golfvallarins. Tilurð hanans á þessu svæði hefur vakið upp talsverðar vangaveltur og ítrekaða umræðu á samfélagsmiðlum, þar sem fólk á fremur að venjast að sjá endur en hana á útivistarsvæðunum. Í morgun sást haninn þar sem hann…Lesa meira

true

Mikilvægur sigur hjá Skagakonum

Kvennalið ÍA sem hefur átt frekar rýrt keppnistímabil í sumar og voru stelpurnar því komnar í fallsæti í Lengjudeildinni fyrir leikinn gegn Grindavík sem fór fram á föstudagskvöld á Akranesvelli. Þurftu þær því nauðsynlega á sigri að halda í leiknum til þess að rífa sig upp töfluna. Það var nákvæmlega það sem þær gerðu og…Lesa meira

true

Fimm mörk frá Jóhanni Árna afgreiddu Víkinga

Það er ekki á hverjum degi sem einn og sami leikmaðurinn skorar fimm mörk í leik. En það gerðist þegar að Fjölnir sigraði Víking Ólafsvík 7:0 í leik sem spilaður var á Ólafsvíkurvelli á föstudagskvöldið, en þá skoraði hinn tvítugi Jóhann Árni Gunnarsson fimm mörk. Það var fátt sem benti til þess að leikurinn mundi…Lesa meira

true

Breyttar reglur um sóttkví í skólum

Sóttvarnalæknir hefur endurskoðað leiðbeiningar um sóttkví á öllum skólastigum og í frístundastarfi og félagsmiðstöðvum. Með breytingunum má gera ráð fyrir að færri þurfi að sæta sóttkví ef smit kemur upp. Í leiðbeiningum (sjá hér að neðan) vegna breyttra reglna eru skilgreind viðmið um sóttkví eftir því hvort samvera við smitaðan einstakling hafi verið mikil eða…Lesa meira

true

Dalamenn brölta

Í apríl síðastliðnum varð til skemmtilegur hópur á facebook, með heitinu Dalamannabrölt – áhugamannahópur. Ingibjörg Jóhannsdóttir stóð fyrir stofnun hópsins, en hann telur nú tæplega hundrað manns. Tilgangurinn er að „brölta“, þ.e. að fara í gönguferðir um Dalina sér til skemmtunar og heilsubótar. „Ég nefndi það við nokkra hvort við ættum ekki að stofna hóp…Lesa meira

true

Kviknaði í bíl við árekstur

Í hádeginu í dag varð harður árekstur tveggja bíla á mótum Stillholts og Vesturgötu á Akranesi. Ökumaður bíls virti ekki stöðvunarskyldu og ók í veg fyrir bíl sem ekið var um Vesturgötu. Annar bíllinn valt við áreksturinn og eldur kom upp í hinum. Slys urðu ekki teljandi en ökumenn beggja bíla voru þó fluttir til…Lesa meira

true

Kirkjugarði Ólafsvíkur afhent minningargjöf

Þriðjudaginn 10. ágúst síðastliðinn færðu afkomendur hjónanna Maríu Sveinsdóttur og Aðalsteins Guðbrandssonar kirkjugarði Ólafsvíkur bekk að gjöf til minningar um þau, en María hefði átt aldarafmæli þann dag. María og Aðalsteinn bjuggu lengst af sinni búskapartíð í Ólafsvík en bjuggu síðustu æviárin í Kópavogi. María lést 18. september 2007 og Aðalsteinn 3. febrúar 2011. Það…Lesa meira

true

Skallagrímsmenn töpuðu gegn Uppsveitum

Skallagrímsmenn þurftu að sætta sig við 3-1 tap gegn Uppsveitum þegar liðin mættust á miðvikudaginn í 4. deild karla í knattspyrnu. Leikið var í uppsveitum Árnessýslu. Fyrsta markið skoraði Viktor Már Jónasson fyrir Borgnesinga á 29. mínútu en heimamenn í Uppsveitum náðu að lagfæra stöðu sína áður er flautað var til hálfleiks. Óliver Jóhannsson skilaði…Lesa meira