Fréttir

true

Stal bíl og afhentu lögreglu í næsta bæjarfélagi

Á fimmtudaginn í síðustu viku, 12. ágúst, var lögreglu tilkynnt um að bíl hefði verið stolið í Borgarnesi. Þjófurinn sem tók bílinn ók á honum út á Akranes þar sem hann lagði bílnum og stakk lyklunum í gegnum bréfalúgu á lögreglustöðinni. Engar skemmdir voru unnar á bílnum.Lesa meira

true

Gefur út bók fyrir börn sem hún nefnir Lífshlaup

Sigrún Hjartardóttir á Hátúni í Borgarfirði gaf nýverið út litið myndskreytt kver, eða bók, sem nefnist Lífshlaup. Bókin er ætluð börnum á leikskólaaldri og fyrstu árum grunnskóla og fjallar eins og nafnið bendir til um lífshlaupið; þegar líf kviknar og því lýkur. „Hugmyndin að þessu riti kviknaði þegar þegar ég sat hjá móður minni á…Lesa meira

true

Björn Bjarki tekur við formennsku í SFV

Gísli Páll Pálsson, forstjóri Grundarheimilanna og formaður Samtaka fyrirtækja í velferðarþjónustu, hefur ákveðið að segja sig frá trúnaðarstörfum fyrir samtökin. Við hlutverki hans tekur varaformaður SFV, Björn Bjarki Þorsteinsson, framkvæmdastjóri hjúkrunarheimilisins Brákarhlíðar í Borgarnesi. María Fjóla Harðardóttir, forstjóri Hrafnistu, tekur við sem varaformaður stjórnar SFV. Í Samtökum fyrirtækja í velferðarþjónustu eru hátt í 50 stofnanir,…Lesa meira

true

Pollur bílaþvottur opnaði í morgun á Akranesi

Átján ára Skagamaður, Alexander Dagur Helgason, opnaði í morgun fyrirtæki sem nefnist Pollur bílaþvottur ehf. Eins og nafnið gefur til kynna mun hann taka bíla í þrif og bón. Starfsemin er til húsa í miðjubilinu á iðnaðarhúsi við Þjóðbraut 13A, sem er á bakvið lögreglustöð bæjarins. Hjá Polli bílaþvotti verður boðið upp á þrenns konar…Lesa meira

true

Rúllur skreyttar í Lundarreykjadal

Efnt var til rúlluskreytingakeppni í Lundarreykjadal í vikunni sem leið og var sigurvegari krýndur í vikulok. Krakkarnir í Arnþórsholti unnu að þessu sinni og mátti sjá nánast aðra hverja rúllu skreytta allskonar teikningum á bænum. Er þetta í annað skiptið sem þessi keppni fer fram. „Við vorum fyrst með þetta í hitteðfyrra og þá var…Lesa meira

true

Eftirlitsiðnaðurinn með allar klær úti

Eiganda strandveiðibáts barst nýverið bréf frá veiðieftirlitssviði Fiskistofu. Þar er tilkynnt að við veiðieftirlit Fiskistofu frá Ólafsvík hafi sjómaðurinn verið staðinn að brottkasti. Tveimur þorskum hafi verið hent í sjóinn eftir að þeir fengust á handfæri. Í bréfi til eiganda bátsins segir m.a: „Við eftirlit hafi verið notast við fjarstýrt flugfar með stafrænni myndavél. Flognir…Lesa meira

true

Framboðsfrestur ekki liðinn þótt utankjörfundar atkvæðagreiðsla er hafin

Dómsmálaráðuneytið vekur athygli á því að framboðsfrestur til Alþingis er til klukkan 12 á hádegi 10. september. Fyrir þann tíma liggur ekki fyrir hvaða stjórnmálasamtök bjóða fram lista í komandi kosningum til Alþingis, sem fara fram 25. september. „Vegna þessa liggja ekki frammi upplýsingar um framboðslista og listabókstafi, á þeim stöðum þar sem kosning utan…Lesa meira

true

Stykkishólmsbær veitti í fyrsta skipti umhverfisviðurkenningar

Eins og fram kom í síðasta Skessuhorni stóð umhverfisganga bæjarstjóra Stykkishólmsbæjar yfir dagana 9.-12. ágúst. Í göngunni að þessu sinni voru Umhverfisverðlaun Stykkishólmsbæjar veitt í fyrsta sinn. Síðastliðið miðvikudagskvöld var m.a. gengið um Sundabakkann og voru Árþóra Steinarsdóttir og Björn Benediktsson við Sundabakka 1 verðlaunuð fyrir snyrtilegan garð og umhverfi. Við hlið lóðar þeirra er…Lesa meira

true

Stækka friðlandið í Flatey á Breiðafirði

Í síðustu viku undirritaði Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra auglýsingu um stækkun friðlandsins í Flatey. Markmið friðlýsingarinnar er að vernda fjölbreytt lífríki svæðisins og búsvæði fugla, sér í lagi varpsvæði fágætra fuglategunda eins og þórshana, kríu og lunda, auk þess að tryggja rannsóknir og vöktun á lífríki svæðisins. „Friðlandið hefur hátt vísinda- og fræðslugildi…Lesa meira

true

Í verkefninu GróLind er ástand gróðurs vaktað

Þriðja sumarið í röð vinnur hópur sérhæfðs starfsfólks á vegum Landgræðslunnar að mælingum og útlagningum vöktunarreita víðsvegar um landið. Mæling reitanna er hluti GróLindar, langtímaverkefnis sem hefur það meginmarkmið að vakta ástand gróður- og jarðvegsauðlindar Íslands. Þær upplýsingar sem fást úr vöktuninni eru dýrmætar þegar kemur að ákvarðanatöku um endurheimt vistkerfa og landnýtingu, segir í…Lesa meira