Fréttir

true

Leiðbeiningar um sóttvarnir í skólastarfi nú í haust

Menntamálaráðuneytið hefur gefið út leiðbeinandi reglur um sóttvarnir í skólum í haust. Núgildandi reglugerð heilbrigðisráðherra nr. 878/2021 um takmörkun á samkomum gildir til og með 27. ágúst næstkomandi og tekur nú einnig til skólastarfs. Með hliðsjón af henni veitir mennta- og menningarmálaráðuneyti nánari leiðbeiningar til skóla um áhrif gildandi sóttvarnaráðstafana á mismunandi skólastigum. Markmið sóttvarnaráðstafana…Lesa meira

true

Upplýsingavefurinn kosning.is hefur verið opnaður

Vefurinn kosning.is er upplýsingavefur fyrir framkvæmd alþingiskosninga sem fara fram 25. september næstkomandi. Á vefnum er að finna upplýsingar um framkvæmd kosninganna, framboð og kjósendur. „Vakin er sérstök athygli á því að allt það helsta á vefnum er tekið saman á sérstakri síðu sem „auðlesið efni“. Slíkt hentar þeim sem reynist örðugt að lesa lengri…Lesa meira

true

Staða Káramanna orðin erfið

Enn og aftur misstu Káramenn unninn leik niður í jafntefli í uppbótartíma þegar Leiknir frá Fáskrúðsfirði náði að jafna leikinn í 2:2 á þriðju mínútu í uppbótartíma. Liðin áttust við í Akraneshöllinni í gær. Káramenn urðu hreinlega að taka öll stigin í leiknum til þess eiga von um að bjarga sér frá falli. Fyrir leikinn…Lesa meira

true

Buðu límonaði til sölu

Fjórar vinkonur og bekkjarsystur úr Borgarnesi; þær Emma Elísa Magnúsdóttir, Dagmar Lind Estrajher, Lovísa Ósk Hlynsdóttir og Snæfríður Júlía Kjartansdóttir, ákváðu að setja upp límonaðisölu í neðri bænum í Borgarnesi í liðinni viku. Salan var við aðalgötuna beint á móti Bara Ölstofu Lýðveldisins, í mikilli veðurblíðu á fimmtudaginn. Límonaðið, sem alla jafnan er gott að…Lesa meira

true

Sósíalistaflokkurinn birtir framboðslista sinn í Norðvesturkjördæmi

Listi Sósíalistaflokksins í Norðvesturkjördæmi fyrir alþingiskosningarnar 25. september hefur verið kynntur. Í fyrsta sæti er Helga Thorberg, menntuð leikkona og garðyrkjufræðingur. Í öðru sæti er Árni Múli Jónasson mannréttindalögfræðingur og framkvæmdastjóri Þroskahjálpar og í þriðja sæti er Sigurður Jón Hreinsson, vélahönnuður og bæjarfulltrúi. „Græðgi, taumlaus neysla og virðingarleysi við móðir jörð er á góðri leið…Lesa meira

true

Leigufélagið Bríet flytur starfsemi sína í Borgarnes

Leigufélagið Bríet verður flutt í Borgarnes, en sveitarstjórn og starfsfólki ráðhúss sveitarfélagsins var greint frá þessu við litla athöfn í dag. Ólafur Sveinsson, formaður stjórnar Bríetar, og Soffía Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri Bríetar, greindu frá starfsemi leigufélagsins við athöfnina. Þá lýsti Þórdís Sif Sigurðardóttir, sveitarstjóri Borgarbyggðar, yfir ánægju sinni og sveitarstjórnarinnar með að fá fleiri opinber störf…Lesa meira

true

Umhverfisverðlaun í Stykkishólmi

Í Stykkishólmsbæ fór Jakob Björgvin Jakobsson bæjarstjóri Stykkishólmsbæjar ásamt öðrum fulltrúum bæjarins með íbúum í umhverfisgöngu dagana 9.12. ágúst. Gengið var um hverfi bæjarins í þeim tilgangi að koma á samtali um hvað mætti betur fara varðandi frágang og umhirðu bæjarins og til að miðla betur upplýsingum frá Stykkishólmsbæ til íbúa um framkvæmdir í bænum.…Lesa meira

true

Leikskólabörn að leik við Langasand

Það var líf og fjör við Langasand í morgun þegar blaðamaður kíkti við í blíðskaparveðri.Þar voru leikskólakrakka frá Akraseli og Vallarseli sem voru að busla í sjónum, moka og leika sér í sandinum, klifra í klettunum og hoppa á ærslabelgnum.Lesa meira

true

Mikil eftirspurn eftir lóðum á Akranesi

Á opnum aukafundi hjá bæjarráði Akraneskaupstaðar á fimmtudag í síðustu viku var mikil spenna í loftinu því þar fór fram útdráttur varðandi umsóknir ellefu einbýlishúsalóða og sex raðhúsalóða í Skógarhverfi. Hægt var að fylgjast með fundinum í beinni á vefstreymi. Formaður bæjarráðs, Elsa Lára Arnardóttir, áréttaði á fundinum að sá aðili sem fengi lóð úthlutað,…Lesa meira

true

Þjófar í leyni hjá Golfklúbbnum Leyni

Síðustu kvöld hefur komið í ljós að nærri helmingur þeirra æfingabolta sem eru í eigu Golfklúbbsins Leynis á Akranesi hefur horfið af æfingasvæðinu. Þetta kemur fram á fésbókarsíðu Leynismanna en undanfarið hefur borið á því að boltavélin sé tóm á kvöldin og þykir forsvarsmönnum Leynis það heldur miður því þeir hafi lagt mikla áherslu á…Lesa meira