Fréttir

true

Stækka friðlandið í Flatey

Í gær undirritaði Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra auglýsingu um stækkun friðlandsins í Flatey. Frá þessu er greint í frétt á vef Stjórnarráðs Íslands. Markmið friðlýsingarinnar er að vernda fjölbreytt lífríki svæðisins og búsvæði fugla, sér í lagi varpsvæði fágætra fuglategunda eins og þórshana, kríu og lunda, auk þess að tryggja rannsóknir og vöktun…Lesa meira

true

Rúllur skreyttar í Lundarreykjadal

Efnt var til rúlluskreytikeppni í Lundarreykjadal í vikunni og var sigurvegari krýndur í gær. Krakkarnir í Arnþórsholti unnu að þessu sinni og mátti sjá nánast aðra hverja rúllu skreytta allskonar teikningum á bænum. Er þetta í annað skiptið sem þessi keppni fer fram. „Við vorum fyrst með þetta í hittifyrra og þá var þátttakan frábær.…Lesa meira

true

Málefni fatlaðs fólks eru henni hjartans mál

Sigurlaug Gísladóttir mun leiða lista Frjálslynda lýðræðisflokksins í Norðvesturkjördæmi í kosningunum í næsta mánuði. Sigurlaug á sterkar rætur í kjördæmið. Hún fæddist á Laugabóli í Skagafirði, betur þekkt sem Steinsstaðir, árið 1963. Tveggja ára flutti hún með fjölskyldu sinni suður í Garðabæ þar sem hún bjó til níu ára aldurs en þá fór fjölskyldan aftur…Lesa meira

true

Tunglskotin heim í hérað

Vinnustofa í Frystiklefanum í Rifi í ágúst Allir sem fylgst hafa með nýsköpun í dreifðum byggðum hafa líklega einhvern tímann velt því fyrir sér hvernig mætti skapa betri skilyrði til að stórhuga nýsköpun gæti blómstrað enn frekar, líka í fámennum byggðum. „Tunglskotin heim í hérað“ er yfirskrift vinnustofu, þar sem þetta verður rætt og skoðað…Lesa meira

true

Líkur á að Legsteinahúsið standi

Útlit er fyrir að samningar hafi náðst milli aðila í Húsafellsmálinu á fundi frá því klukkan 8 í morgun. Verið er að skrifa upp samning sem líklega verður skrifað undir á næsta klukkutímanum og að Legsteinahúsið muni standa áfram. En öll tæki eru tilbúin á staðnum til að hefja niðurrif klukkan 2 í dag ef…Lesa meira

true

Kauptilboð í Fannahlíð samþykkt

Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar ákvað í vor að setja félagsheimilið Fannahlíð á söluskrá. Á fundi sveitarstjórnar á þriðjudaginn, 10. ágúst, var tilboði Magnúsar Jóns Engilberts Gunnarssonar í eignina, að upphæð 51 milljón króna, tekið til umræðu. Var tilboðið samþykkt og sveitarstjóra falið að undirrita og ganga frá söluferlinu.Lesa meira

true

Miðá er mikil perla í veiðinni

„Það er gaman að veiða fyrsta fiskinn,“ sagði Árni Rúnar Einarsson fjögurra ára sem var að veiða í fyrsta sinn á ævinni í ósi Hundadalsár í Dölum í síðustu viku. Áin rennur í Miðá. Góð bleikjuveiði hefur verið í Miðá og eru komnar á land um 400 bleikjur og 78 laxar hafa hafa veiðst vítt…Lesa meira

true

Skagamenn slógu FH út úr Mjólkurbikarnum

Skagamenn tóku í gærkvöldi á móti liði FH í 16-liða úrslitum Mjólkurbikarsins á Akranesvelli í blíðskaparveðri: Smá gola, 14 stiga hiti og völlurinn í toppstandi. Skagamenn voru ekki að tvínóna við hlutina og komust yfir strax á sjöttu mínútu þegar Sindri Snær Magnússon vann boltann á miðjunni og sendi boltann á Ísak Snæ Þorvaldsson sem…Lesa meira

true

Mokveiði á strandveiðum og heimildir klárast því í næstu viku

Ekkert lát er á góðum aflabrögðum á strandveiðum, metafli dag eftir dag. Á fyrstu fimm dögum ágústsmánaðar er meðaltal dagsafla í þorski 278 tonn sem er 46% meiri veiði en var í júlí. Ef fram heldur sem horfir verða útgefnar veiðiheimildir til strandveiða uppurnar um miðja næstu viku. Þetta kemur fram á vef Landssambands smábátaeigenda.…Lesa meira

true

Sitja á fundi og leita sátta

Sveitarfélagið Borgarbyggð boðaði í gærkvöldi alla aðila í Húsafellsmálinu til fundar sem átti að hefjast klukkan 8 í morgun. Fundurinn var boðaður í því skyni að gera lokatilraun til að koma á sáttum í deilunni um Legsteinahús, sem að óbreyttu stendur til að rífa síðar í dag. Að sögn Lilju Bjargar Ágústsdóttur forseta sveitarstjórnar höfðu…Lesa meira