Fréttir

true

Skagamenn heppnir með dráttinn í Mjólkurbikarnum

Í gærkvöldi var dregið í 8-liða úrslit Mjólkurbikarsins í knattspyrnu karla. Drátturinn fór fram í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport eftir leik Víkings Reykjavíkur og KR þar sem Víkingur hafði betur 3-1. Annarrar deildarlið ÍR fékk heimaleik gegn ÍA í Breiðholtinu og Lengjudeildarlið Vestra, sem Skagamaðurinn Jón Þór Hauksson þjálfar, mætir Íslandsmeisturum Vals. Þá…Lesa meira

true

Aulos Flute Ensemble á tónleikum í Saurbæ

Næstkomandi sunnudag kl. 16 flytur Aulos Flute Ensemble tónleika í Hallgrímskirkju í Saurbæ. Fluttar verða ýmsar tónlistarperlur frá Japan og Íslandi. Aulos Flute Ensemble var stofnað árið 2019 en þær Pamela De Sensi, Petrea Óskarsdóttir og Karen Karólínudóttir hafa lengi leikið saman. Með stofnun AFE settu þær sér það markmið meðal annars að stuðla að…Lesa meira

true

Píratar fresta um viku aðalfundi sínum

Aðalfundi Pírata fyrir alþingiskosningarnar í haust, sem fram átti að fara dagana 14. til 15. ágúst, hefur verið frestað um eina viku. Aðalfundurinn verður því haldinn helgina 21. til 22. ágúst. „Ástæðan er kórónuveirusmit starfsmanns Vogs á Fellsströnd, þar sem aðalfundurinn fer fram. Hluti starfsfólks var settur í sóttkví eins og reglur kveða á um…Lesa meira

true

Flokkur fólksins kynnir nýjan oddvita til leiks

Eyjólfur Ármannsson verður oddviti framboðslista Flokks fólksins í Norðvesturkjördæmi fyrir komandi alþingiskosningar. Í tilkynningu frá flokknum kemur fram að Eyjólfur er lögfræðingur að mennt, með meistarapróf í lögfræði frá HÍ og LL.M. frá University of Pennsylvania. Á ferli sínum hefur hann starfað sem lögfræðingur bæði á Íslandi og í Noregi, fyrir m.a. fjármálaráðuneytið, Isavia, Nordea…Lesa meira

true

Samstarfsverkefni skógræktarfélags og Skallagríms

Um 6.500 plöntum af alaskaösp og stafafuru var plantað í landi Reykholts í Borgarfirði í liðinni viku af Körfuknattleiksdeild Skallagríms. Markar þetta verkefni hluta af fyrsta áfanga í annars fimm ára áætlun um að gróðursetja 60.000 plöntur í Reykholtslandi á árinu. Stefnan er sett á að gróðursetja svipaðan fjölda af plöntum næstu fimm árin á…Lesa meira

true

Sylvía stóð sig vel á Norðurlandamótinu í grjótglímu

Sylvía Þórðardóttir, klifurkona úr ÍA, keppti á Norðurlandamótinu í grjótglímu sem fram fór um síðustu helgi í Kaupmannahöfn. Þetta er í annað sinn sem keppandi frá ÍA tekur þátt á Norðurlandamóti en Brimrún Eir Óðinsdóttir tók þátt á Norðurlandamótinu í línuklifri fyrir nokkrum árum. Þetta var frumraun Sylvíu í keppni á erlendri grundu en alls…Lesa meira

true

Sveitarstjórn fagnar því að sættir hafa náðst

Sveitarstjórn Borgarbyggðar sendi nú síðdegis í dag frá sér svohljóðandi yfirlýsingu vegna máls Bæjargils og Húsafells 1: „Í gærkvöldi náðist samkomulag milli allra aðila máls um að forsendur væru fyrir því að gera úrslitatilraun til sátta vegna málefnis Gamla bæjar og Bæjargils. Í morgun klukkan 8.00 hófst fundur sem þrátt fyrir að hafa verið erfiður…Lesa meira

true

Búið að undirrita samning

Húsafellsmálið hefur verið leitt til lykta. Páll Guðmundsson listamaður á Húsafelli og Þórdís Sif Sigurðardóttir sveitarstjóri Borgarbyggðar undirrituðu rétt í þessu samning sem náðist í morgun. Sæmundur Ásgeirsson hafði þegar undirritað samninginn. Hefur því niðurstaða náðst í erfiða deilu sem má segja að hafi verið einstök. En hætt hefur verið við niðurrif Legsteinasafnsins.Lesa meira

true

Veðurblíða næstu daga

Fallegt veður var í Borgarfirði í morgun þegar blaðamaður Skessuhorns lagði af stað til vinnu á skrifstofu Skessuhorn á Akranesi. Borgarnes, sem margir vilja meina að sé þekkt fyrir mikla vinda, naut sín í logninu í morgunsárið og var erfitt að sjá á spegilsléttum sjónum hvar sjórinn endaði og himinn tók við. Veðurspáin lofar góðu…Lesa meira

true

Legsteinasafnið verður ekki rifið

Samkomulag hefur náðst í Húsafellsmálinu og Páll Guðmundsson mun innan tíðar skrifa undir samning sem náðist í morgun með milligöngu Borgarbyggðar. Sæmundur Ásgeirsson hefur þegar undirritað samkomulagið en verður ekki viðstaddur undirritun samningsins á Húsafelli. Felur samningurinn það m.a. í sér að Legsteinahúsið verður ekki rifið. Fjölmenni hefur fylgst með gangi mála í blíðskaparveðri á…Lesa meira