Fréttir

true

Reynir Hellissandi tapaði fyrir Álafossi

Reynir fór í bæjarferð í Mosfellsbæinn í gær og lék gegn liði Álafoss á Tungubakkavelli í C-riðli í 4. deild karla í knattspyrnu. Eina mark leiksins kom strax á níundu mínútu og var það Róbert Steinar Hjálmarsson sem skoraði markið fyrir Álafossmenn. Ekki náðu Reynismenn að svara þessu og lokastaðan því 1-0. Reynir er í…Lesa meira

true

Heyjað undir hlíðum Stapans

Í hægviðrinu síðastliðinn sunnudag unnu frístundabændur á Bjargi á Arnarstapa við heyskap. Rökuðu saman og rúlluðu heyinu af heimatúninu. Ferðamenn sem voru margir staddir á útsýnispallinum við höfnina fylgdust með og mynduðu milli þess sem þeir dáðust af útsýninu yfir Arnarstapahöfn.Lesa meira

true

Bjarki Péturs á keppnisskónum í Finnlandi

Bjarki Pétursson, atvinnukylfingur úr Borgarnesi, varð í 66. sæti á Vierumaki Finnish Challenge mótinu sem lauk í Finnlandi síðastliðinn sunnudag. Spilaðir eru fjórir hringir á fjórum dögum og endaði Bjarki mótið á samtals þremur höggum yfir pari eftir að hafa leikið lokahringinn á einu höggi yfir pari. Besti hringur Bjarka var þó á öðrum degi…Lesa meira

true

Thule ferðavörufyrirtækið tekur upp markaðsefni á Íslandi

Nú í haust verður tekin upp á Íslandi kvikmynd um Thule vörur og vörumerkið í nánu samstarfi við alþjóðlega talsmenn og áhrifavalda vörumerkisins. Þetta er liður í heimskynningarstefnu fyrirtækisins og verður áhersla lögð á sýna íþróttafólkið og áhrifavaldana í sínu rétta umhverfi. Hátt í tuttugu talsmenn Thule vörumerkisins um allan heim verða með í kvikmyndinni…Lesa meira

true

Stefán Gísli Íslandsmeistari í leirdúfuskotfimi

Íslandsmeistaramótið í haglabyssugreininni Skeet, eða leirdúfuskotfimi á vegum Skotíþróttasambands Íslands, fór fram á velli Skotíþróttafélags Suðurlands við Þorlákshöfn um helgina. Í karlaflokki varð Stefán Gísli Örlygsson úr Skotfélagi Akraness Íslandsmeistari, í kvennaflokki Helga M. Jóhannsdóttir úr Skotíþróttafélagi Hafnarfjarðar, í unglingaflokki Daníel Logi Heiðarsson úr Skotfélagi Akureyrar og í liðakeppninni sveit Skotfélags Reykjavíkur. Stefán Gísli keppir…Lesa meira

true

Umhverfisganga í Stykkishólmi hefst í dag

Umhverfisganga verður í Stykkishólmi dagana 9. til 12. ágúst. Frá þessu segir á vefsíðu Stykkishólmsbæjar en í þessum göngum mun Jakob Björgvin Jakobsson bæjarstjóri, ásamt öðrum fulltrúum bæjarins, ganga með íbúum um hverfi Stykkishólmsbæjar og huga að nánasta umhverfi. Tilgangur umhverfisgöngu er að efna til samtals um nánasta umhverfi, hvað megi fara betur í frágangi…Lesa meira

true

Samþykkt að hefja sameiningarviðræður tveggja sveitarfélaga á Snæfellsnesi

Á fundi í hreppsnefnd Eyja- og Miklaholtshrepps síðastliðinn miðvikudag var tekið fyrir erindi frá Snæfellsbæ dagsett 20. júlí síðastliðinn þar sem óskað er eftir afstöðu sveitarstjórnar til þess að hafnar verði formlegar sameiningarviðræður milli sveitarfélaganna. Hreppsnefnd samþykkti með fjórum atkvæðum að hefja formlegar viðræður við Snæfellsbæ um sameiningu sveitarfélaganna. Gísli Guðmundsson greiddi atkvæði á móti…Lesa meira

true

Jaðarsbakkalaug lokuð út vikuna

Vegna árlegs viðhalds er Jaðarsbakkalaug á Akranesi lokuð frá og með deginum í dag, mánudag, og til föstudagsins 13. ágúst. Þreksalurinn verður opinn frá kl. 06.00 – 19.00 mánudag til fimmtudags en lokað verður á föstudag. Þá var Guðlaugin lokuð í gær og í dag vegna viðhalds og lagfæringa. Nánari upplýsingar um opnun Guðlaugar verða…Lesa meira

true

Örvunarskammtar gefnir á miðvikudaginn

Miðvikudaginn 11. ágúst verða gefnir örvunarskammtar af Pfizer bóluefninu á Akranesi fyrir þá sem bólusettir voru með bóluefni Janssen. Bólusett verður í íþróttahúsinu á Jaðarsbökkum á Akranesi frá klukkan 10-12 og klukkan 13-14. „Þeir sem eru búsettir á Akranesi og Borgarnesi fá boð með strikamerki og tímasetningu. Aðrir sem tilheyra heilbrigðisumdæmi HVE eru einnig velkomnir…Lesa meira

true

Ólsarar töpuðu gegn Eyjamönnum

Víkingur Ólafsvík tók á móti liði ÍBV í Lengjudeild karla í knattspyrnu á Ólafsvíkurvelli á laugardaginn. Eyjamenn komust yfir eftir hálftíma leik með marki frá Ísak Andra Sigurgeirssyni sem lék óáreittur með boltann inn í teig Ólsara og sneiddi boltann snyrtilega í nærhornið. Eyjamenn voru mun sterkari aðilinn í leiknum og þeir bættu við öðru…Lesa meira