Fréttir

true

Tólf til fimmtán ára börnum gefst kostur á bólusetningu

Heilbrigðisráðherra hefur fallist á tillögu sóttvarnalæknis um að gefa börnum á aldrinum 12 til 15 ára kost á bólusetningu við Covid-19 með það að markmiði að veita þeim vörn gegn sjúkdómnum. Bólusett verður með bóluefni Pfizer þar sem meiri reynsla er fyrirliggjandi um bólusetningar þessa aldurshóps með því efni en bóluefni Moderna sem einnig hefur…Lesa meira

true

Starfar hjá einu stærsta sjávarútvegsfyrirtæki heims

Skagamaðurinn Sturlaugur Haraldsson starfar í dag hjá einu stærsta sjávarútvegsfyrirtæki heims, rússneska fyrirtækinu Norebo. Hann er framkvæmdastjóri Norebo Europe, sem er söluarmur Norebo samstæðunnar í Evrópu og Bandaríkjunum. Starfsstöð Sturlaugs er í úthverfi London en hann var í stuttu fríi á Akranesi þegar tíðindamaður Skessuhorns sótti hann heim á dögunum og ræddi við hann um…Lesa meira

true

Kartöfluuppskeran í ár lofar góðu

Þau Guðrún María Björnsdóttir og Jóhann Páll Þorkelsson, bændur á Snartarstöðum í Lundarreykjardal í Borgarfirði, setja sig nú í startholurnar fyrir komandi vertíð í kartöfluuppskeru. „Kartöfluvertíðin byrjar fyrr en við áttum von á. Uppskeran er fyrr heldur en venjulega, miðað við hvað vorið var kalt,“ segir Guðrún María, eða Gunna Mæja eins og hún er…Lesa meira

true

Brenndur brjóstsykur vekur minningar í sveitaversluninni í Brautarholti

Það var óneitanlega skemmtileg stemning í gömlu sveitabúðinni í Brautarholti í Dölum, en hún var opin fyrir gesti um verslunarmannahelgina. Það var ekki laust við að tilhlökkunar gætti hjá Dalamönnum og talsvert rætt um viðburðinn á samfélagsmiðlum. Atli Ingólfsson tók á móti fólki og bauð brenndan brjóstsykur úr krús og baka til var einnig í…Lesa meira

true

Flutti til Íslands til að taka myndir af íslenska hestinum

Við Esjurætur í litlu og notalegu húsi hitti blaðamaður Skessuhorns Carolin Giese, eða Linu eins og hún er jafnan kölluð. Lina starfar sem ljósmyndari en hún hefur sérhæft sig í ljósmyndum af hestum og hundum en einstaka kettir rata einnig í myndatökur til hennar. Lina er þýsk en hún kom fyrst til Íslands veturinn 2012…Lesa meira

true

Líklega óbreyttar samkomutakmarkanir

Ríkisstjórnin hélt síðdegis í dag blaðamannafund í Reykjanesbæ. Þar voru ýmsar ákvarðanir stjórnarinnar kynntar, svo sem um þingrof og sitthvað fleira. Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra sagði þar frá minnisblaði Þórólfs Guðnasonar sóttvarnalæknis. Hann leggur til að núverandi sóttvarnareglugerð verði framlengd um tvær vikur. Að óbreyttu hefðu þær runnið út að kvöldi föstudagsins 13. ágúst. Fram kom…Lesa meira

true

Berglind ráðin aðstoðarþjálfari Vals

Körfuknattleikskonan Berglind Lára Gunnarsdóttir úr Stykkishólmi, sem lék með Snæfelli og íslenska landsliðinu í körfubolta til margra ára, hefur verið ráðin aðstoðarþjálfari deildar- og Íslandsmeistara Vals í körfuknattleik kvenna. Berglind, sem er 26 ára, varð að leggja skóna á hilluna eftir að hafa lent í alvarlegu bílslysi í byrjun árs 2020 en þegar hún slasaðist…Lesa meira

true

Á bumbunni í morgunsárið

Það var létt yfir þeim félögum Bjarna Má Stefánssyni og Ármanni Smára Björnssyni frá Trésmiðjunni Akri á níunda tímanum í morgun. Þeir vinna við að lagfæra klæðningu á Gulu blokkinni við Jaðarsbraut 25 á Akranesi. Voru þá staddir utan við fjórðu hæð, berir að ofan og vannst verkið hratt og örugglega. Þeir kváðust vera að…Lesa meira

true

25 í einangrun á Vesturlandi með Covid-19

Fjöldi smitaðra af Covid-19 á Vesturlandi er nú 25 og 42 að auki eru í sóttkví. Langflest smitanna eru í umdæmi heilsugæslu HVE á Akranesi, eða 15. Í Grundarfirði eru fimm í einangrun, fjórir í Ólafsvík og einn í Borgarnesi. 27 eru í sóttkví á Akranesi, sex í Borgarnesi, sex í Grundarfirði og þrír í…Lesa meira

true

Meðmælendum framboða nú safnað rafrænt á island.is

Opnað hefur verið fyrir rafræna söfnun meðmæla með framboðslistum og umsóknum um listabókstafi stjórnmálasamtaka á Ísland.is. Rafræn söfnun meðmæla er nýr valkostur fyrir stjórnmálasamtök en jafnframt verður áfram unnt að safna meðmælum á pappír eins og venjan hefur verið hingað til. Með rafrænni söfnun meðmæla er aðgangur að meðmælasöfnun einfaldaður og söfnunin gerð aðgengilegri bæði…Lesa meira