Fréttir

true

Búrhval rak á land í Staðarsveit

Á fjörunni við Ytri Tungu í Staðarsveit liggur nú hræ af búrhval sem þar rak á land 25. júlí síðastliðinn. Um er að ræða rúmlega tólf metra langan tarf sem að líkindum hefur verið löngu dauður áður en hann rak á fjörur Staðsveitunga. Lyktin af hræinu bendir í það minnsta til að skepnan sé ekki…Lesa meira

true

38 í einangrun með Covid-19 á Vesturlandi

Af 3.837 sýnum sem tekin voru innanlands í gær vegna Covid-19 reyndust 116 með covid-smit. 71 þeirra sem greindust með smit í gær er fullbólusettur en 43 óbólusettir. Rúmlega þriðjungur, eða 36%, þeirra sem greindust með covid í gær voru í sóttkví. Samkvæmt nýjustu tölum frá Almannavörnum eru 1.329 í einangrun vegna covid-smits og 1.941 í…Lesa meira

true

Huppa fær afar góðar viðtökur

Ísbúð Huppu var opnuð í húsnæði Food Station við Brúartorg í Borgarnesi síðastliðinn miðvikudag. Óhætt er að segja að viðtökurnar hafi verið góðar því biðröð hefur verið út úr dyrum nánast síðan. Ísbúðin er með sama sniði og útliti og aðrar ísbúðir Huppu á landinu en fyrsta ísbúðin var opnuð á Selfossi 2013, fimm eru …Lesa meira

true

Undirbúningur fyrir Kassabílarallý á Akranesi 28. ágúst

Laugardaginn 28. ágúst fer fram í fyrsta skipti á Akranesi kassabílarallý og hefst það klukkan 13 og stendur til kl. 17. Hugmyndin er að allir geti tekið þátt án mikils tilkostnaðar og að bílarnir verði sem mest smíðaðir úr notuðu efni. Á vef Akraneskaupstaðar kemur fram að Terra safnar dekkjum af barnavögnum og reiðhjólum sem…Lesa meira

true

Tveir bætast í hópinn hjá Skallagrímsmönnum

Körfuknattleiksdeild Skallagríms tilkynnti í liðinni viku ráðningu tveggja nýrra leikmanna fyrir komandi keppnistímabil í 1. deild karla. Félagið samdi við Litháann Deividas Mockaitis og Bandaríkjamanninn Elijah Bailey. Mockaitis er 213 cm hár miðherji sem kemur til Skallagríms eftir að hafa varið síðasta ári í EBA deildinni á Spáni. Bailey er aftur á móti bakvörður, 190…Lesa meira

true

Skrifstofan opin að nýju

Í dag mætir starfsfólk Skessuhorns til vinnu eftir vikulokun skrifstofunnar. Undirbýr það nú nýtt og ferskt Skessuhorn sem kemur út miðvikudaginn 11. ágúst. Athygli er vakin á því að ekki kom út blað í morgun, af fyrrgreindri ástæðu.Lesa meira

true

Gestir á veitingastaðnum geta fylgst með laxinum í hylnum

Myndavél hefur verið komið fyrir undir vatnsyfirborðinu í Veiðifossi í Grímsá. Fossinn er framan við veitingahúsið í Fossatúni og er fyrrum helsti maðkveiðistaður árinnar, en ekki er veitt í honum eftir að Grímsá varð eingöngu fluguveiðiá. Allur lax í ánni þarf að fara upp Veiðifoss og því hafa gestir á útipalli veitingahússins í Fossatúni löngum…Lesa meira

true

Hjón á Vesturlandi unnu rúmlega 80 milljónir í EuroJackpot

„Þau voru glöð og ánægð hjónin nýgiftu sem komu við hjá Íslenskri getspá í síðustu viku til að sækja rúmlega 80 milljóna króna vinning í EuroJackpot. Hjónin voru ein fjögurra sem hlutu 2. vinning í EuroJacpot í útdrætti vikunnar á undan,“ segir í tilkynningu frá Íslenskri getspá. „Ég kaupi stundum lottómiða í vinnunni í gegnum…Lesa meira

true

Sögusvið Hylsins er í Borgarnesi

Gróa Finnsdóttir er núna um verslunarmannahelgina að gefa út sína fyrstu skáldsögu, en hún hefur áður verið meðhöfundur í smásagnasafni auk þess að skrifa ljóð og greinar. Gróa hefur undanfarin 33 ár starfað sem bókasafns- og upplýsingafræðingur á Þjóðminjasafninu í Reykjavík og í starfi sínu m.a. sinnt greinaskrifum. Gróa er gamall Borgnesingur, á sumarbústað í…Lesa meira

true

Stofnuðu hóp í þágu SOS í Grunnskóla Stykkishólms

Æska landsins lætur sig svo sannarlega varða bágstödd börn í heiminum. Ýmsar frumlegar hugmyndir hafa orðið að veruleika í því sambandi. Þær Nikola og Tara, sem eru á leið í tíunda bekk í Grunnskólanum í Stykkishólmi, hafa fengið stjórnendur skólans og stóran hluta nemenda í lið með sér og stofnað öflugan stuðningshóp innan skólans í…Lesa meira