Fréttir

true

Eyrnakonfekt – söngverk eftir Þórunni Guðmundsdóttur

Sunnudaginn 8. ágúst kl. 16 verða flutt ýmis söngverk eftir Þórunni Guðmundsdóttur á tónleikum í Hallgrímskirkju í Saurbæ. Flytjendur eru þrautreynt tónlistarfólk sem hefur komið víða fram: Björk Níelsdóttir, sópran, Erla Dóra Vogler, mezzó-sópran, Eyjólfur Eyjólfsson, tenór, Hafsteinn Þórólfsson, baritón og Eva Þyri Hilmarsdóttir, píanó. Efnisskrá tónleikanna samanstendur af verkum eftir Þórunni Guðmundsdóttur og eru…Lesa meira

true

Brann við enda Hvalfjarðarganga

Á þriðja tímanum í dag kom upp eldur í fólksbíl skammt frá norðurenda Hvalfjarðarganganna og varð hann fljótt alelda. Slökkvilið Akraness og Hvalfjarðarsveitar mætti á svæðið og tók slökkvistarf skamman tíma. Umferð suður í gegnum göngin var stöðvuð og hafa talsverðir raðir bíla myndast langleiðina á Akranes, en í dag var umferð suður beint norður…Lesa meira

true

Skjaldbakan Marteinn komin heim eftir þriggja vikna flakk

Við sögðum frá því hér á vefnum síðdegis í gær að börn sem voru að leik í fjörunni við tjaldsvæðið við Kalmansvík á Akranesi fundu skjaldböku í flæðarmálinu. Tóku þau skjaldbökuna, sem er af gerð rauðeyrna, til handargagns og hugðust koma henni í Húsdýragarðinn í dag. Af því varð þó ekki. Um hálftíma eftir að…Lesa meira

true

Sylvía keppir á Norðurlandamótinu í grjótglímu

Sylvía Þórðardóttir klifurkona úr ÍA, keppir á Norðurlandamótinu í grjótglímu sem fram fer um næstu helgi, 6. og 7. ágúst í Kaupmannahöfn í Danmörku. Sylvía keppir í B-flokki stúlkna en þetta er í annað sinn sem keppandi frá ÍA tekur þátt á Norðurlandamóti en Brimrún Eir Óðinsdóttir tók þátt á Norðurlandamótinu í línuklifri fyrir nokkrum…Lesa meira

true

Hjáleið norður fyrir Akrafjall í dag

Til klukkan 17 í dag verður unnið við malbikun nokkurra útskota við Akrafjall, milli Hvalfjarðarganga og Melahverfis í Hvalfjarðarsveit. Veginum var því lokað til suðurs og er hjáleið norður fyrir Akrafjall um Akrafjallsveg. Umferð til norðurs verður fram hjá framkvæmdasvæðinu.Lesa meira

true

Við eigum nóg inni segir fyrirliðinn fyrir leik kvöldsins

Stelpurnar í meistaraflokki kvenna í knattspyrnu hjá ÍA taka á móti stöllum sínum í HK á Akranesvelli í kvöld. Leikurinn er í 13. umferð Lengjudeildarinnar en deildin er afar spennandi þetta sumarið og er í raun hver leikur sem úrslitaleikur. Skagakonur gerðu jafntefli 1-1 gegn toppliði KR í síðustu umferð en HK tapaði fyrir Aftureldingu…Lesa meira

true

Staða Skagamanna að verða vonlítil eftir tapleik gærdagsins

Skagamenn mættu Stjörnunni á Samsungvellinum í gærkveldi í miklum botnbaráttuslag. Þeir gulklæddu urðu hreinlega að vinna leikinn til þess að eiga von um að rífa sig upp úr fallsæti í deildinni. Stjörnumenn byrjuðu leikinn betur og fengu draumabyrjun þegar Eggert Aron Guðmundsson kom þeim yfir strax á fimmtu mínútu leiksins. Þorsteinn Már Ragnarsson átti sendingu…Lesa meira

true

Plan B í Borgarnesi hefst í dag

Samtímamyndlistarhátíðin Plan B verður haldin sjötta árið í röð í Borgarnesi dagana 5. til 8. ágúst. Hátíðin hefur frá árinu 2016 fest sig í sessi sem þekkt stærð í íslensku listalífi og vex ásmegin ár frá ári. Sem dæmi, þá hefur hátíðin fengið tvær tilnefningar til Eyrarrósarinnar, árin 2019 og 2020. Eyrarrósin er viðurkenning sem…Lesa meira

true

Héldu golfmót á Húsafelli

Annað golfmót sumarsins á Húsafellsvelli var haldið á laugardaginn um verslunarmannahelgina. Frábært veður var í Húsafelli á mótsdag og hiti um 22 gráðurnar í logni.  Fullbókað var á golfmótið og komust færri að enn vildu. 48 keppendur tóku þátt og voru þeir hæstánægðir með daginn og aðstæður á vellinum sem hefur sjaldan verið í betra…Lesa meira

true

Skjaldbaka fannst í fjörunni við Kalmansvík

Þau ráku heldur betur upp stór augu krakkarnir sem voru að leik í fjörunni við tjaldstæðin í Kalmansvík á Akranesi síðdegis í dag. Systkinin Sunna Margrét, Salka Kristín og Magnús auk systkinanna Eyjólfs Arnar, Sveins Óla og Grétu Bjargar voru að leik í fjörunni þegar þau sáu dýrið. Skjaldbakan er af gerðinni rauðeyra, en sú…Lesa meira